Fréttablaðið - 24.03.2010, Síða 6
6 24. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Hvers vegna kalla ný lög um skötusel
á svo hörð viðbrögð frá atvinnulífinu?
SJÁVARÚTVEGUR Bráðabirgðaákvæði
í nýjum lögum leyfir sjávarútvegs-
ráðherra að auka veiðar á skötusel
um allt að 2.000 tonn á ári næstu
tvö ár. Vegna þessa er stöðugleika-
sáttmáli aðila vinnumarkaðarins
og stjórnvalda fallinn úr gildi.
Undir kraumar ágreiningur um
grundvöll fiskveiðistjórnarkerf-
isins.
Svokölluð aflahlutdeild hefur
ráðið úthlutun allra aflaheimilda
hér við land síðustu áratugi. Afla-
hlutdeildin er
kjarni kvóta-
kerfisins. Sam-
kvæmt þeirri
reglu skiptist
allur kvóti hlut-
fallslega og án
endurgjalds
milli skipa sem
eiga aflaheim-
ildir fyrir. Hlut-
fall skipa í heild-
araflanum á að
haldast óbreytt
milli ára. Skötu-
selslögin mæla
fyrir um nýja
aðferð. Útgerð-
ir, sem eiga
hlutdeild í þeim
2 . 5 0 0 ton na
skötuselskvóta,
sem úthlutað
var í haust fá
ekkert af við-
bótarkvótanum
í sinn hlut. Hlut-
ur þeirra í heild-
inni skerðist þar
sem ríkið mun
selja viðbótar-
kvótann fyrir
120 krónur kíló-
ið. Ríkið gæti
haft 240 millj-
ónir í tekjur af þeirri kvótasölu,
ef ráðherrann nýtti heimild sína
til fulls.
Andstæðingar kvótakerfisins
telja að með skötuselslögunum sé
áfanga náð í baráttu fyrir endur-
skoðun kerfisins. Ólína Þorvarð-
ardóttir, Samfylkingu, segist vilja
að viðbótarkvóta í öllum tegund-
um verði framvegis úthlutað með
þessari skötuselsaðferð. „Fyrir
þær aflahlutdeildir greiði útgerð-
in hóflegt gjald inn í sameigin-
legan sjóð,“ segir hún. Tekjurn-
ar eiga að nýtast í samfélagsleg
verkefni.
Árið 2007 var þorskkvóti skert-
ur umtalsvert í samræmi við ráð-
gjöf Hafrannsóknastofnunar.
Vonir standa til að ástand stofns-
ins batni og að hægt verði að auka
kvótann á ný. Hvaða aðferð verður
þá beitt við úthlutun á viðbótinni?
Meira í leiðinniN1 STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9
1118 HF384
Mundo Eagle
• Stillanlegt bak
• Stillanleg hæð
• PU áklæði
Tilboðsverð
22.990 kr.
Tilvalinn við
skrifborðið heima
SÍMI 440 1000
WWW.N1.IS
Markmið námskeiðsins er að þjálfa fólk til starfa við
bókhaldsstörf. Námið er byggt upp á kennslu í verslunar-
reikningi (24 st.), bókhaldi (36 st.) og tölvubókhaldi (48
st.). Allar námsgreinar eru kenndar frá grunni. Nemendur
þurfa að vera orðnir 18 ára og hafa grunnþekkingu á tölvum.
OFT ER AUGLÝST EFTIR
BÓKARA!
Upplýsingar og skráning: 544 4500 / www.ntv.is
108 stundir - Verð: 99.000.-
Verð fyrir atvinnulausa: 74.250.-
Kvöld- og helgarnámskeið
byrjar 8. apríl.
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI
Grunnnám í bókhaldi
Óvissa um kvótann
vegna skötusels
Skötuselslög vega að rótum kvótakerfisins. Grundvallaratriði varðandi and-
stöðu LÍÚ við lögin og stöðugleikasáttmála, segir framkvæmdastjóri LÍÚ. And-
stæðingar kvótakerfis vilja að skötuselsreglan ráði úthlutun alls viðbótarkvóta.
Í fyrradag seldust þrjú tonn af skötuselskvóta fyrir 350 krónur hvert kíló.
Samkvæmt skötuselslögunum mun ríkið selja hvert kíló af viðbótarkvóta
fyrir fast verð, 120 krónur hvert kíló.
Núgildandi kvóti í skötusel er 2.500 tonn. Það er sama magn og Hafrann-
sóknastofnun lagði til.
LÍÚ lagði til að kvóti ársins yrði 3.000 tonn, eða 500 tonn umfram ráðgjöf
Hafró.
Í gær var búið að veiða rúm 2.100 tonn. Miðað við óbreyttan kvóta voru
því innan við 400 tonn til ráðstöfunar þá fimm mánuði sem eftir eru af
fiskveiðikerfinu. Fáir bátar gera út á skötusel. Mest af honum veiðist sem
meðafli við aðrar botnfiskveiðar.
Nýju lögin veita ráðherra heimild til að úthluta allt að 2.000 tonna viðbót-
arkvóta af skötusel í ár og næsta ár.
Í umsögn til LÍÚ segir Hafró að svo mikil aukning myndi „að öllum líkind-
um leiða til þess að mjög gangi á uppvaxandi árganga og stofninn fari hratt
minnkandi“.
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur sagt að leitað verði álits Hafró
um útgáfu viðbótarkvótans. Hann segir að allt frá 2003 hafi útgefinn kvóti
verið að jafnaði um 30 prósent umfram ráðgjöf Hafró sem hafi þótt var-
færinn miðað við í hve mikilli sókn skötuselsstofninn hefur verið. Fram hefur
komið að líklega muni Jón leyfa veiðar á um 700 tonnum til viðbótar.
Úr 350 kr. í 120 hvert kíló?
SKÖTUSELUR Andstæðingar kvótakerfisins telja skötuselslögin áfanga í baráttu
fyrir endurskoðun þess. Myndin er tekin af uppskipun í Reykjavíkurhöfn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Samtök atvinnulífsins (SA) hafa þá
ófrávíkjanlegu kröfu að skötuselsfrumvarp-
ið verði afturkallað eða fellt úr gildi. Annars
verða þau ekki aðili að stöðugleikasáttmálan-
um á ný.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær lítur
SA svo á að með lögunum hafi stjórnvöld vísað
þeim út úr stöðugleikasáttmálanum. Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur mótmælt
þessu og segir samtökin hafa sagt sig frá sam-
starfi við stjórnvöld. Það sé ekki í þágu félags-
manna þeirra. Jóhanna hitti forystumenn sam-
takanna í gær, en ekkert kom út úr þeim fundi.
Á blaðamannafundi SA í gær kom fram að þó
að skötuselsfrumvarpið væri frágangssök í því
að verða aðili að sáttmálanum á ný, hefði það
verið kornið sem fyllti mælinn. Fjöldi annarra
atriða hafi staðið út af borðinu. Óásættanlegt sé
að stjórnvöld hafi ekki efnt þau. - kóp
Frumvarpið um skötuselinn kornið sem fyllti mælinn hjá SA:
Frumvarpið verður að víkja
ÓSÁTTIR Vilmundur Jósefsson formaður og Vilhjálmur
Egilsson framkvæmdastjóri segja ríkisstjórnina hafa
vísað SA úr stöðugleikasáttmálanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
ÓLÍNA
ÞORVARÐARDÓTTIR
■ Í lok árs 2010 verði verðbólga ekki yfir 2,5
prósentum.
■ Halli hins opinbera verði ekki meiri en 10,5
prósent af vergri landsframleiðslu árið 2009.
■ Gengi krónunnar styrkist og nálgist jafnvæg-
isgengi.
■ Vaxtamunur við evrusvæðið verði innan við 4
prósent.
■ Skilyrði verði sköpuð fyrir aukinni fjárfestingu
innlendra sem erlendra aðila.
*SAMKVÆMT SA
Helstu markmið
Fundu eiturlyf og peninga
Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu fann 300 grömm af
amfetamíni og tvö hundruð þúsund
krónur í peningum við leit í húsi við
Laugaveg aðfaranótt laugardagsins.
Peningarnir eru taldir vera ágóði af
sölu fíkniefna. Karlmaður á þrítugs-
aldri var handtekinn við húsleitina en
sleppt að lokinni yfirheyrslu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Þjófar á Suðurlandi
Rúmlega tuttugu þjófnaðar- og
eignaspjallamál komu á borð lögreglu
á Selfossi í síðustu viku; innbrot í
sumarbústaði og þjófnaðir til dæmis
á flatskjáum og hjólbörðum. Á
síðustu tveimur vikum hafa um tíu
menn verið handteknir vegna rann-
sókna á innbrotum og þjófnuðum í
Árnessýslu og á höfuðborgarsvæðinu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Á að boða til kosninga sem
fyrst?
Já 43,1
Nei 56,9
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var rétt af Samtökum atvinnu-
lífsins að slíta stöðugleikasátt-
málanum?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
Núgildandi lög og yfirlýsing sjáv-
arútvegsráðherra frá 2007 standa
til þess að aflahlutdeild verði þar
lögð til grundvallar. Útgerðin
telur skötuselslögin skapa óvissu
að þessu leyti.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna, segir
að barátta fyrir óbreyttu afla-
hlutdeildarkerfi ráði mestu um
andstöðu samtakanna við skötu-
sels lögin og stöðugleikasáttmál-
ann. „Þetta er grundvallaratrið-
ið og númer eitt, tvö og þrjú frá
okkar hendi,“ segir Friðrik. Að
auki sé nú búið að lögfesta heimild
til að ofveiða einn fiskistofn um 80
prósent umfram ráðgjöf Hafró.
peturg@frettabladid.is
JÓN BJARNASON
KJÖRKASSINN