Fréttablaðið - 24.03.2010, Page 39
MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2010 23
UMRÆÐAN
Reynir Jónsson skrifar
um almenningssam-
göngur
Starfsmenn Strætó bs. fagna þessa dag-
ana frábærum árangri á
tveimur sviðum, sem full
ástæða er til að halda á
lofti: Á dögunum fékk fyrirtækið
forvarnaviðurkenningu VÍS fyrir
góðan árangur í forvarnamálum
– og í síðasta þjónustumati mæld-
ist gæðavísitala Strætó bs. hærri
en nokkru sinni. Hvort tveggja má
þakka samstilltu átaki frábærra
starfsmanna sem kappkosta að
bjóða farþegum hagkvæman,
öruggan og umhverfisvænan val-
kost í samgöngum.
Auk þess að bæta umferðarör-
yggi hafa umtalsverðir
fjármunir sparast á síð-
ustu árum eftir að farið
var að taka með markviss-
um hætti á forvarnamálum
í góðu samstarfi við VÍS.
Síðastliðið ár hefur verið
unnið að atvikaskráningu
hjá Strætó bs. Þegar hefur
verið sýnt fram á mælan-
legan árangur forvarna-
starfsins. Fjöldi tjóna á
árinu 2006 var 304 en hefur minnk-
að ár frá ári og var kominn niður
í 197 á síðasta ári, sem er frábær
árangur.
Með atvikaskráningunni eru
upplýsingar um öll tjón og tjóna-
aðstæður skráðar á nákvæmari
hátt en áður. Um leið gefast meiri
möguleikar á áhættugreiningu og
eftirfylgni til úrlausna. Skráningin
hefur t.d. vakið athygli á ákveðnum
stöðum þar sem mikill fjöldi tjóna
verður og varhugaverðum aðstæð-
um. Slíkar upplýsingar fækka tjón-
um.
Árlega er gert þjónustumat
meðal farþega. Í niðurstöðum nýj-
asta þjónustumatsins hefur vegin
gæðavísitala þjónustu Strætó bs.
aldrei verið hærri en nú. Þetta
skýrist einkum af því að ánægja
farþega með hitastig og innanþrif
vagna mælist meiri en áður, stund-
vísi og aksturslag hefur batnað og
viðmót vagnstjóra mælist mun
betra en áður. Um 650 farþegar
tóku þátt í þjónustumatinu.
Þessi árangur náðist ekki af
sjálfu sér. Hann er beinn afrakst-
ur verkefna sem ráðist hefur verið
í innan fyrirtækisins að undan-
förnu. Þar má nefna hertar kröf-
ur um þrif vagna og tímaáætlanir
einstakra leiða sæta reglubund-
inni endurskoðun, sem hefur leitt
til bættrar stundvísi. Nýtt þjón-
ustuver Strætó veitir alla farþega-
þjónustu ásamt samræmingu og
skipulagi alls aksturs á þjónustu-
svæðinu. Þá hefur aðgengi farþega
að upplýsingum og kortakaupum á
vef Strætó verið stórbætt. Nú nýtir
um fjórðungur viðskiptavina vef-
inn til að kaupa strætókort og far-
miða.
Hjá Strætó bs. starfar öflug-
ur hópur fólks sem hefur í fyr-
irrúmi stundvísi, áreiðanleika,
fagmennsku og gæði. Við höfum
gaman af að sjá mælanlegan árang-
ur af verkum okkar og hyggjumst
ekki láta staðar numið hér, heldur
bæta okkur enn frekar á komandi
árum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Strætós bs.
Aukið öryggi og ánægðari farþegar
REYNIR JÓNSSON
UMRÆÐAN
Sigurjón Þórðarson skrifar um
sjávarútvegsmál
Fyrir alþingiskosningar lofuðu núverandi stjórnarflokkar að
fiskveiðiauðlindin yrði í þjóðareign
og að látið yrði af mannréttinda-
brotum. Þegar Jón Bjarnason sjáv-
arútvegsráðherra og Atli Gíslason,
formaður sjávarútvegs- og landbún-
aðarnefndar, voru í stjórnarand-
stöðu fluttu þeir
sérstakt þing-
mál ásamt þing-
mönnum Frjáls-
lynda flokksins,
um að breyta
stjórn fiskveiða
í samræmi við
úrskurð Mann-
réttindanefndar
SÞ. Ríkisstjórn
Vg og Samfylk-
ingar festi síðan kosningaloforðin í
stefnuyfirlýsingu sína og skýrt var
tekið fram í henni að tryggja ætti
jafnræði við úthlutun afnotaréttar
og aðgengis að sameiginlegri auð-
lind. Það er sem sagt búið að kjósa
um kvótann.
Ríkisstjórnin hefur svikið að
uppfylla fyrirheit sín. Varaþing-
maður Samfylkingarinnar hefur
lýst því að þingið geti ekki komið í
veg fyrir rán á fiskveiðiauðlindinni.
Það hefur orðið hvati þess að hópur
ábyrgs fólks hefur stofnað samtökin
Þjóðareign, sem hafa það að mark-
miði að tryggja að fiskveiðiauðlind-
in verði í almannaeign. Leiðin til
þess er að setja illræmt kvótakerfi
í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þessi aðferð fékk óvæntan stuðn-
ing frá forsætisráðherra þjóðarinn-
ar, Jóhönnu Sigurðardóttur, en hún
ásamt Steingrími J. Sigfússyni eru
einu þingmennirnir sem enn sitja
á Alþingi sem samþykktu framsal-
ið og kvótabraskið á sínum tíma.
Stuðningur Jóhönnu við þjóðarat-
kvæðagreiðslu um kvótann kemur
á óvart í ljósi þess að hún taldi
það tímasóun að taka þátt í fyrstu
þjóðaratkvæðagreiðslunni á lýð-
veldistímanum. Á kjörtímabilinu
hefur forsætisráðherrann komið í
veg fyrir að þjóðin fái að segja sína
skoðun um hvort sækja eigi um
aðild að ESB og sömuleiðis hafnað
því að þjóðaratkvæðagreiðsla um
aðild að ESB verði bindandi. Efast
má því um að það sé raunveruleg-
ur vilji Jóhönnu Sigurðardóttur að
þjóðin eigi að greiða atkvæði um
kvótakerfið. Ríkisstjórnin er ein-
faldlega að drepa á dreif umræðu
um svikin loforð.
Ef forsætisráðherra er alvara að
vilja breyta kvótakerfinu, þá væri
hann ekki með neinar refjar heldur
hrinti boðuðum breytingum í fram-
kvæmd.
Höfundur er formaður Frjáls-
lynda flokksins.
Búið að
kjósa um
kvótann
SIGURJÓN
ÞÓRÐARSON
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
Skíðavörurnar fást aðeins í Glæsibæ.
Brettin fást í öllum verslunum Útilífs.