Fréttablaðið - 24.03.2010, Page 54
38 24. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. teikning af ferli, 6. drykkur, 8.
temja, 9. fljótfærni, 11. númer, 12.
innkirtill, 14. anda, 16. öfug röð, 17.
fiskur, 18. viðmót, 20. tveir eins, 21.
treysta.
LÓÐRÉTT
1. ófá, 3. guð, 4. amast við, 5. skip,
7. úrræðis, 10. berja, 13. málmur, 15.
ferðast, 16. tíðum, 19. gyltu.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. graf, 6. öl, 8. aga, 9. ras,
11. nr, 12. gulbú, 14. sálar, 16. on, 17.
ýsa, 18. fas, 20. tt, 21. trúa.
LÓÐRÉTT: 1. mörg, 3. ra, 4. agnúast,
5. far, 7. lausnar, 10. slá, 13. blý, 15.
rata, 16. oft, 19. sú.
„Nemendur og starfsfólk felldu eig-
inlega bara tár yfir þessum frétt-
um, að Hera gæti ekki gert tónlistar-
myndband og ákváðu bara að ráðast
í gerð slíks myndbands,“ segir Elísa-
bet Bjarkardóttir, framkvæmda-
stjóri Kvikmyndaskóla Íslands. Eins
og Fréttablaðið greindi frá í gær þá
ákváðu þau Hera Björk og Örlygur
Smári að gera ekki myndband við
Eurovision-framlag Íslands, Je ne
sais quoi, eins og háttur hefur verið
á undanfarin tólf skipti. Ástæðan var
einfaldlega peningaleysi. En nú hafa
nemendur Kvikmyndaskólans ákveðið
að koma Heru til hjálpar og gera eitt
stykki tónlistarmyndband frítt.
Hera hefur verið að kenna söng
við Kvikmyndaskólann og vildu nem-
endurnir ólmir þakka henni kærlega
fyrir góða kennslu. Elísabet segir
enn ekki komið ljós hvenær mynd-
bandið verði gert. „Það verður tekin
ákvörðun um það á fundi klukkan hálf
fimm í dag [gær] og kannski byrjum
við bara strax eða á morgun [í dag],“
segir Elísabet.
Hera var að vonum himinlifandi
þegar Fréttablaðið flutti henni þess-
ar fréttir.
„Guð minn góður, þetta er yndis-
legt, vá, geðveikt, ég er bara orðlaus,“
sagði Hera. „Ég ætla að skála í hvít-
víni fyrir þeim. Við finnum eitthvað
skemmtilegt út úr þessu,“ bætti Hera
við. - fgg
Hera fær ókeypis Eurovision-myndband
ÓVÆNT GJÖF Hera
Björk fær ókeypis
Euro vision-mynd-
band frá nemend-
um Kvikmynda-
skólans en þar
hefur hún kennt
söng.
„Ég hlusta voðalega mikið á
Gullbylgjuna ef ég hlusta á
eitthvað í útvarpinu. Svo er ég
með slökunarmúsík, til dæmis
með Friðriki Karlssyni, því þetta
er snyrtistofa.“
Bergdís Þóra Jónsdóttir snyrtifræðingur.
„Þetta er svakalegt! Það brennur allt til grunna
sem maður kemur við! En við áttum síðasta tóninn
þarna,“ segir Krummi í Mínus. Hljómsveitin hélt
síðustu tónleikana í Batteríinu á föstudagskvöld-
ið. Tónleikastaðurinn brann sem kunnugt er í gær-
morgun. Mínus-menn skildu bassa- og gítarmagnara
eftir í kjallaranum og hluta af trommusettinu því
morguninn eftir tónleikana flaug bandið til Kaup-
mannahafnar og spilaði þar á laugardagskvöldið.
„Við hefðum eflaust verið löngu komnir heim og
búnir að taka græjurnar ef við hefðum ekki verið
fastir í Danmörku út af þessum bölvuðu flugvirkj-
um og þessu eldgosi!“ segir Krummi, allt annað en
ánægður. Þegar það náðist í hann síðdegis í gær var
hann ekki búinn að skoða verksummerkin og vissi
hreinlega ekki hversu illa græjurnar voru farnar.
„Þetta var allt í hefí dútí flight-keisum, svo þetta
gæti hafa sloppið,“ segir hann. „Þarna var magn-
ari sem Bjarni gítarleikari er búinn að eiga í 17 ár,
alvöru Marshall JCM græja, svo það væri mjög
slæmt ef hann væri farinn. Það munaði litlu að ég
ætlaði að geyma mitt dót þarna, en sem betur fer
fór ég með það heim áður en við flugum út.“ Auk
dótsins hjá Mínus var magnari í eigu Gregs Barrett
í DLX ATX fyrir barðinu á vatni og sóti.
Bruninn er slæmur fyrir bransann því það er ekki
eins og það sé allt vaðandi í heppileg-
um búllum til að spila á. Grand Rokk
var til að mynda lokað nýlega.
En það er ljós við enda ganganna
hjá Krumma og félaga. „Sem
betur fer hefur gengið frá-
bærlega hjá okkur að semja
nýju plötuna og við byrjum
að taka hana upp í lok apríl,“
segir hann. - drg
Allt í mínus hjá Mínus
BRUNNIÐ BATTERÍ Verkföll, eldgos og stórbrunar hafa dunið á
Krumma og félögum í Mínus. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þorfinnur Ómarsson, Ástrós
Gunnarsdóttir, eiginkona hans,
og tveir ballettkennarar lentu í
ryskingum við dyraverði Barböru
fyrir utan skemmtistaðinn aðfara-
nótt sunnudags. Afleiðingarnar
urðu þær að ein konan úr hópnum
handleggsbrotnaði og framtönn í
annarri brotnaði. Þorfinnur vildi
lítið tjá sig um málið í samtali við
Fréttablaðið en sagði að þau hefðu
verið fórnarlömb tilefnislausrar
árásar. Hann er búinn að kæra
árásina og er málið nú í rannsókn
hjá lögreglunni í Reykjavík.
Þorfinnur er sjálfur nokkuð
laskaður en ekki brotinn. „Ég
er að reyna að hrista þetta af
mér. Verra þykir mér hins
vegar að þeir hafi hand-
leggsbrotið eina konu og
brotið framtönn í annarri.“
Hann segist ekki vita hvað
þau hafi unnið sér til saka
þetta laugardagskvöld,
þau hafi verið á leið-
inni út af staðnum
þegar árásin átti
sér stað. „Þeir
bjuggu til vanda-
málið sjálfir og
ég veit eiginlega
ekki hvernig á að
útskýra hvern-
ig þetta gerð-
ist. En það er
alveg skýrt að
við látum þetta
ekki yfir okkur
ganga,“ segir
Þorfinnur. Að
hans sögn komu
lögreglumenn á
staðinn, þeir
hafi þó ekki
talað við nein
v itn i heldur
tekið sögu dyra-
varðanna trú-
anlega. Hann
hafi því farið
með lögregl-
unni upp á
lögreglustöð
til að útskýra
s i t t m á l .
Þor finnur
vildi jafn-
framt koma
því á fram-
f æ r i a ð
fjöldi vitna
hefði orðið að
árásinni og bað
hann þau um að
gefa sig fram við
lögreglu eða hann
til að auðvelda rann-
sókn málsins.
Skemmtistaðurinn
Barbara nýtir sér þjónustu örygg-
isfyrirtækisins Terr sem leggur
til dyraverði til móts við dyra-
verði frá skemmtistaðnum sjálf-
um. Framkvæmdastjóri Terr,
Stefán Stefánsson, sagði í sam-
tali við Fréttablaðið að hann vildi
hvetja aðila málsins til að kæra
það til lögreglu svo hægt yrði að
fá niðurstöðu í það. Hann upplýsti
jafnframt að umræddir dyraverð-
ir yrðu leystir frá störfum þang-
að til málið hefði verið rannsak-
að af lögreglunni og hafði boðað
þá á fund sinn til að fara yfir það
í heild sinni. Ekki náðist í Gunn-
ar Má Þráinsson, eiganda staðar-
ins, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Annar staður í hans eigu, Batterí-
ið, brann í fyrrakvöld.
freyrgigja@frettabladid.is
STEFÁN STEFÁNSSON: DYRAVERÐIR HAFA VERIÐ LEYSTIR FRÁ STÖRFUM
Þorfinnur Ómarsson sakar
dyraverði um líkamsárás
MEINT LÍKAMSÁRÁS Á STAÐNUM BARBÖRU Þorfinnur Ómarsson hefur kært
árásina til lögreglu en hann sakar dyraverði skemmtistaðarins Barböru á
Laugavegi 22 um að hafa ráðist á sig, eiginkonu sína og tvo aðra ballettkenn-
ara að tilefnislausu aðfaranótt sunnudags. Dyraverðir frá öryggisfyrirtækinu
Terr voru á vakt þetta kvöld og hafa þeir verið leystir frá störfum þar til
rannsókn málsins er lokið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jónínu Benediktsdóttur og Gunnari
Þorsteinssyni var tíðrætt um það
þegar fregnir af sambandi þeirra
rötuðu á síður blaðanna að þeim
væri umhugað um einkalíf sitt. En
nú virðast allar flóðgáttir brostnar.
Hin nýpússuðu hjónakorn
mættu í viðhafnarvið-
tal við Ísland í dag á
mánudagskvöldið eftir
að hafa svarað spurn-
ingum útvarpskvenn-
anna Heiðu Ólafsdóttur
og Margrétar Erlu
Maack í morg-
unþætti Rásar
2. Þau láta ekki
þar við sitja heldur mæta til Sölva
Tryggvasonar á Skjá einum í
kvöld. Semsagt Þrjú viðtöl á þrem-
ur fyrstu hveitibrauðsdögunum.
Hvorugir aðalleikaranna
í Kóngavegi verða
viðstaddir viðhafnar-
sýningu myndarinnar
í kvöld. Gísli Örn
Garðarsson er stadd-
ur í Kólumbíu á mikilli
leiklistarhátíð
og Daniel
Brühl er
upptekinn
við önnur
kvikmyndaverkefni en þeir tveir
prýða plakat kvikmyndarinnar. Hins
vegar munu flestir meðleikarar
myndarinnar mæta á svæðið.
Og eins og Fréttablaðið greindi frá
um jólin ætlar Vaktar-gengið að
skrifa nýja sjónvarpsseríu og hyggst
hefja þá vinnu seinnipart sumars.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins renna Jón Gnarr og félagar
hýru auga til Arnarholts þar sem
eitt sinn var geðsjúkrahús.
Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst vann Jón
þar um stundarsakir
áður en leið hans
lá á Kópavogshælið
þar sem hann
og Sigurjón
Kjartansson
hittust í
fyrsta
skipti. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI