Fréttablaðið - 27.04.2010, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2010 15
Þegar ein virtasta óperusöng-kona landsins, Þuríður Páls-
dóttir, settist á skólabekk með
jafnöldrum barna sinna haustið
1965, var óvenjulegt að fullorð-
ið fólk færi í nám. Hún hafði
verið í tónlistarstarfi frá ungl-
ingsárum, stefnt að því að verða
söngkennari og farið nýtrú-
lofuð til London þeirra erinda,
en snúið heim þegar í ljós kom
að hún átti von á barni. Síðar
fór hún til Ítalíu, nam söng hjá
góðum kennara og framhald-
ið þekkja allir. Þegar hún hóf
nám í tónmenntadeild Tónlistar-
skólans þetta ár, var hún í góðu
formi sem söngkona og hélt
áfram að syngja næstu árin.
Þegar það barst út að hún væri
komin í nám, vakti það nokkra
athygli, og hún fékk mikil við-
brögð. Fékk til dæmis upp-
hringingu frá konu sem þakkaði
henni mikið fyrir að stíga þetta
skref.
Sjálf hefði hún lengi gælt við
að fara í nám, en ekki þorað að
láta til skarar skríða á miðjum
aldri. En nú væri gatan greið.
„Úr því Þuríður Pálsdóttir
getur það, þá get ég það!“ sagði
hún, upptendruð af þessu nýja
frelsi.
Að biðjast afsökunar
Það hefur lengi staðið í þeim
sem misstigu sig alvarlega í
góðærinu að gangast við því.
Kannski hefur verið erfiðast
að horfast í augu við það. Þeir
sem hafa haldið um taumana í
langan tíma, verið mærðir og
klappaðir upp hvar sem þeir
komu, og fengið þau skilaboð
frá umhverfinu að þeir væru
bæði sól og máni viðskiptalífs-
ins, hljóta að hafa skilið það svo
að þeir væru á réttri leið, þó að
þeir hefðu átt að vita betur. Það
er ekki bara í uppeldinu sem
umhverfi og atlæti mótar fólk.
Allir vildu eiga þessa menn að
vinum, fá að standa í ljómanum
af þeim. Stjórnmálamenn, lista-
menn, langskólagengnir sér-
fræðingar og almenningur. En
svo kom vetur, og allt fraus.
Þó að við Íslendingar séum
allajafna bærilegir í mannasið-
um og kurteisi, ristir hún ekki
alltaf djúpt þegar á reynir. Við
biðjum afsökunar í minni hátt-
ar atvikum, þegar við rekumst
utan í einhvern, eða komum of
seint. En þegar afsökunarbeiðn-
in felur í sér umtalsvert geng-
isfall á okkur sjálfum, er okkur
tamara að grípa til skýringa og
sjálfsréttlætingar. Ef til vill er
að verða breyting á því. Eftir
að lykilmenn á stóreignastig-
inu hafa stigið fram, sýnt iðrun
og beðið þjóðina afsökunar og
leiðtogar stjórnmálaflokka beð-
ist afsökunar á andvaraleysi og
mistökum, verður auðveldara
fyrir alla aðra að gera slíkt hið
sama, bæði almennt og við yfir-
standandi aðstæður.
Og það merkilega er, að því
fylgir yfirleitt bæði léttir og
frelsistilfinning fyrir viðkom-
andi.
Að gangast við sjálfri sér
„Manneskja þarf hugrekki til
að gangast við sjálfri sér“, sagði
sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir í
útvarpsmessu frá Hafnarfjarð-
arkirkju síðastliðinn sunnudag.
„Hugrekki til að sjá mistökin,
óheiðarleikann og kærleiksleys-
ið. En það þarf ekki síður von til
að gangast við sjálfum sér. Von
um að sú sýn leiði til nýs upp-
hafs.“
Þetta var góð prédikun, vel
flutt og á erindi við okkur öll.
Sr. Guðbjörg sagði enn fremur:
„Við getum mörg án efa sagt:
Ég bar ekki ábyrgð á falli bank-
anna, mistökum í stjórnsýslu
og pólitískri vanrækslu, en við
berum öll ábyrgð á því hvern-
ig framtíðin lítur út og hvern-
ig samfélagi við ætlum okkur
að búa í. Þeir sem báru beina
ábyrgð verða að axla hana. Og
við berum öll á því ábyrgð að
það verði til lykta leitt. Og það
þarf að leiða til lykta með þá
sýn, að við ætlum að búa saman
í samfélaginu, þar sem við mæt-
umst á kassanum í búðinni, eða
liggjum hvert í sínu sjúkrarúm-
inu, börnin okkar ganga í sama
skóla og ættmennin á sama
ganginum á dvalarheimilinu.
Það þarf að leiða það til lykta
með svo afgerandi hætti að við
getum farið að treysta hvert
öðru.“
Hér talar prestur sem á erindi
við samtímann.
Hugrekki og ábyrgð
Jónína
Michaelsdóttir
blaðamaður
Í DAG
Eftir að lykilmenn á stóreignastig-
inu hafa stigið fram, sýnt iðrun og
beðið þjóðina afsökunar og leiðtogar
stjórnmálaflokka beðist afsökunar á
andvaraleysi og mistökum, verður auðveldara fyrir
alla aðra að gera slíkt hið sama.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Suðurnesjum
Húsavík
EURO Panelofn 50x120 cm
Hágæða ofnar á
áður óþekktu verði
MARGAR STÆRÐIR
MARGAR STÆRÐIR
EURO handklæðaofn beinn
hvítur 50x80 cm
EURO handklæðaofn kúptur króm
50x80 cm
VOTTUÐ
GÆÐAVARA
KRANAR OG
HITASTILLAR FRÁ
Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins
Grand Hóteli 6. og 7. maí 2010
Vorráðstefna
XXV
Fimmtudagur 6. maí
8.30-9.00 Skráning og afhending gagna.
Fundarstjóri: Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir, BUGL.
9.00-9.10 Setning ráðstefnu.
Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra.
Börn og kreppa
9.10-9.40 Geðheilbrigðisleg og félagsleg áhrif efnahagslægða.
Haukur Sigurðsson, klínískur sálfræðingur.
9.40-10.10 Áhrif kreppu á velferð barna til framtíðar: Hvað er til ráða?
Geir Gunnlaugsson landlæknir.
10.30-11.00 Velferðarvaktin: Staða barnafjölskyldna í dag.
Lára Björnsdóttir, formaður stýrihóps.
11.00-11.30 Meira fyrir minna: Hvernig tryggjum við gæði á tímum samdráttar?
Stefán J. Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins.
11.30-12.00 Sérfræðiþjónusta sveitarfélaga fyrir börn: Hvers er hún megnug?
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri málefna fatlaðra á
Norðurlandi vestra.
Matarhlé
Börn og rannsóknir
13.00-13.20 Rannsóknir á Íslandi: Helstu hindranir.
Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla
Íslands.
13.20-15.00 Kynningar á rannsóknum og þróunarverkefnum.*
15.30-16.00 Sjálfstætt líf - helstu hornsteinar.
Vilborg Jóhannsdóttir, lektor við Háskóla Íslands og
Freyja Haraldsdóttir háskólanemi.
Föstudagur 7. maí
Fundarstjóri: Gerður Aagot Árnadóttir, formaður Þroskahjálpar.
Börn og samfélag
9.00- 9.35 Færsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga: Er hún til bóta
fyrir fötluð börn?
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
9.35-10.10 Færsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga: Hvernig verður
tilfærsla reynslu og þekkingar tryggð?
Þór G. Þórarinsson, skrifstofustjóri félagsmálaráðuneyti.
10.30-11.00 Systkini fatlaðra barna.
Olga Björg Jónsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnastjóri
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis.
11.00-11.30 Þjónustuþörf ungmenna metin með ICF greiningar- og
flokkunarkerfi.
Þórunn Hanna Halldórsdóttir, talmeinafræðingur
Reykjalundi.
11.30-12.00 Sjálfsskilningur fatlaðra ungmenna.
Eiríkur Smith meistaranemi.
Matarhlé
Börn og rannsóknir
13.00-13.20 Fötluð börn og rannsóknir: Ábati eða álag?
Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins.
13.20-15.10 Kynningar á rannsóknum og þróunarverkefnum.*
15.30-16.00 „Nennið þið að passa að engu barni líður illa“
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna.
Gildi og gæði
í þjónustu við fötluð börn
Skráning á www.greining.is eða í síma 5108400.
Þátttökugjald: 12.000 kr. fyrir fagfólk og
6.000 kr. fyrir fatlaða, foreldra og háskólanemendur.
Ráðstefnan verður send út um fjarfundabúnað á
Háskólann á Akureyri.
Skráningu lýkur 29. apríl.
* Sjá nánar á www. greining.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki