Fréttablaðið - 27.04.2010, Page 15

Fréttablaðið - 27.04.2010, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2010 15 Þegar ein virtasta óperusöng-kona landsins, Þuríður Páls- dóttir, settist á skólabekk með jafnöldrum barna sinna haustið 1965, var óvenjulegt að fullorð- ið fólk færi í nám. Hún hafði verið í tónlistarstarfi frá ungl- ingsárum, stefnt að því að verða söngkennari og farið nýtrú- lofuð til London þeirra erinda, en snúið heim þegar í ljós kom að hún átti von á barni. Síðar fór hún til Ítalíu, nam söng hjá góðum kennara og framhald- ið þekkja allir. Þegar hún hóf nám í tónmenntadeild Tónlistar- skólans þetta ár, var hún í góðu formi sem söngkona og hélt áfram að syngja næstu árin. Þegar það barst út að hún væri komin í nám, vakti það nokkra athygli, og hún fékk mikil við- brögð. Fékk til dæmis upp- hringingu frá konu sem þakkaði henni mikið fyrir að stíga þetta skref. Sjálf hefði hún lengi gælt við að fara í nám, en ekki þorað að láta til skarar skríða á miðjum aldri. En nú væri gatan greið. „Úr því Þuríður Pálsdóttir getur það, þá get ég það!“ sagði hún, upptendruð af þessu nýja frelsi. Að biðjast afsökunar Það hefur lengi staðið í þeim sem misstigu sig alvarlega í góðærinu að gangast við því. Kannski hefur verið erfiðast að horfast í augu við það. Þeir sem hafa haldið um taumana í langan tíma, verið mærðir og klappaðir upp hvar sem þeir komu, og fengið þau skilaboð frá umhverfinu að þeir væru bæði sól og máni viðskiptalífs- ins, hljóta að hafa skilið það svo að þeir væru á réttri leið, þó að þeir hefðu átt að vita betur. Það er ekki bara í uppeldinu sem umhverfi og atlæti mótar fólk. Allir vildu eiga þessa menn að vinum, fá að standa í ljómanum af þeim. Stjórnmálamenn, lista- menn, langskólagengnir sér- fræðingar og almenningur. En svo kom vetur, og allt fraus. Þó að við Íslendingar séum allajafna bærilegir í mannasið- um og kurteisi, ristir hún ekki alltaf djúpt þegar á reynir. Við biðjum afsökunar í minni hátt- ar atvikum, þegar við rekumst utan í einhvern, eða komum of seint. En þegar afsökunarbeiðn- in felur í sér umtalsvert geng- isfall á okkur sjálfum, er okkur tamara að grípa til skýringa og sjálfsréttlætingar. Ef til vill er að verða breyting á því. Eftir að lykilmenn á stóreignastig- inu hafa stigið fram, sýnt iðrun og beðið þjóðina afsökunar og leiðtogar stjórnmálaflokka beð- ist afsökunar á andvaraleysi og mistökum, verður auðveldara fyrir alla aðra að gera slíkt hið sama, bæði almennt og við yfir- standandi aðstæður. Og það merkilega er, að því fylgir yfirleitt bæði léttir og frelsistilfinning fyrir viðkom- andi. Að gangast við sjálfri sér „Manneskja þarf hugrekki til að gangast við sjálfri sér“, sagði sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir í útvarpsmessu frá Hafnarfjarð- arkirkju síðastliðinn sunnudag. „Hugrekki til að sjá mistökin, óheiðarleikann og kærleiksleys- ið. En það þarf ekki síður von til að gangast við sjálfum sér. Von um að sú sýn leiði til nýs upp- hafs.“ Þetta var góð prédikun, vel flutt og á erindi við okkur öll. Sr. Guðbjörg sagði enn fremur: „Við getum mörg án efa sagt: Ég bar ekki ábyrgð á falli bank- anna, mistökum í stjórnsýslu og pólitískri vanrækslu, en við berum öll ábyrgð á því hvern- ig framtíðin lítur út og hvern- ig samfélagi við ætlum okkur að búa í. Þeir sem báru beina ábyrgð verða að axla hana. Og við berum öll á því ábyrgð að það verði til lykta leitt. Og það þarf að leiða til lykta með þá sýn, að við ætlum að búa saman í samfélaginu, þar sem við mæt- umst á kassanum í búðinni, eða liggjum hvert í sínu sjúkrarúm- inu, börnin okkar ganga í sama skóla og ættmennin á sama ganginum á dvalarheimilinu. Það þarf að leiða það til lykta með svo afgerandi hætti að við getum farið að treysta hvert öðru.“ Hér talar prestur sem á erindi við samtímann. Hugrekki og ábyrgð Jónína Michaelsdóttir blaðamaður Í DAG Eftir að lykilmenn á stóreignastig- inu hafa stigið fram, sýnt iðrun og beðið þjóðina afsökunar og leiðtogar stjórnmálaflokka beðist afsökunar á andvaraleysi og mistökum, verður auðveldara fyrir alla aðra að gera slíkt hið sama. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Kletthálsi Rvk Akureyri Suðurnesjum Húsavík EURO Panelofn 50x120 cm Hágæða ofnar á áður óþekktu verði MARGAR STÆRÐIR MARGAR STÆRÐIR EURO handklæðaofn beinn hvítur 50x80 cm EURO handklæðaofn kúptur króm 50x80 cm VOTTUÐ GÆÐAVARA KRANAR OG HITASTILLAR FRÁ Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins Grand Hóteli 6. og 7. maí 2010 Vorráðstefna XXV Fimmtudagur 6. maí 8.30-9.00 Skráning og afhending gagna. Fundarstjóri: Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir, BUGL. 9.00-9.10 Setning ráðstefnu. Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra. Börn og kreppa 9.10-9.40 Geðheilbrigðisleg og félagsleg áhrif efnahagslægða. Haukur Sigurðsson, klínískur sálfræðingur. 9.40-10.10 Áhrif kreppu á velferð barna til framtíðar: Hvað er til ráða? Geir Gunnlaugsson landlæknir. 10.30-11.00 Velferðarvaktin: Staða barnafjölskyldna í dag. Lára Björnsdóttir, formaður stýrihóps. 11.00-11.30 Meira fyrir minna: Hvernig tryggjum við gæði á tímum samdráttar? Stefán J. Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. 11.30-12.00 Sérfræðiþjónusta sveitarfélaga fyrir börn: Hvers er hún megnug? Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra. Matarhlé Börn og rannsóknir 13.00-13.20 Rannsóknir á Íslandi: Helstu hindranir. Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. 13.20-15.00 Kynningar á rannsóknum og þróunarverkefnum.* 15.30-16.00 Sjálfstætt líf - helstu hornsteinar. Vilborg Jóhannsdóttir, lektor við Háskóla Íslands og Freyja Haraldsdóttir háskólanemi. Föstudagur 7. maí Fundarstjóri: Gerður Aagot Árnadóttir, formaður Þroskahjálpar. Börn og samfélag 9.00- 9.35 Færsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga: Er hún til bóta fyrir fötluð börn? Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. 9.35-10.10 Færsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga: Hvernig verður tilfærsla reynslu og þekkingar tryggð? Þór G. Þórarinsson, skrifstofustjóri félagsmálaráðuneyti. 10.30-11.00 Systkini fatlaðra barna. Olga Björg Jónsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnastjóri Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. 11.00-11.30 Þjónustuþörf ungmenna metin með ICF greiningar- og flokkunarkerfi. Þórunn Hanna Halldórsdóttir, talmeinafræðingur Reykjalundi. 11.30-12.00 Sjálfsskilningur fatlaðra ungmenna. Eiríkur Smith meistaranemi. Matarhlé Börn og rannsóknir 13.00-13.20 Fötluð börn og rannsóknir: Ábati eða álag? Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. 13.20-15.10 Kynningar á rannsóknum og þróunarverkefnum.* 15.30-16.00 „Nennið þið að passa að engu barni líður illa“ Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna. Gildi og gæði í þjónustu við fötluð börn Skráning á www.greining.is eða í síma 5108400. Þátttökugjald: 12.000 kr. fyrir fagfólk og 6.000 kr. fyrir fatlaða, foreldra og háskólanemendur. Ráðstefnan verður send út um fjarfundabúnað á Háskólann á Akureyri. Skráningu lýkur 29. apríl. * Sjá nánar á www. greining.is Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.