Fréttablaðið - 27.04.2010, Page 19
ÞRIÐJUDAGUR 27. apríl 2010 3
Gasgrill eru gríðarlega vinsæl á
Íslandi og líklega flestir sem grilla
á þann máta í dag. Auðvelt er að
stjórna hitanum og maturinn brenn-
ur síður en á kolagrillum.
Gott ráð þegar heilt lambalæri
eða stór kjötstykki eru grilluð er að
kveikja aðeins á öðrum brennaran-
um og setja kjötið þeim megin sem
er slökkt. Grillinu er síðan lokað.
Með þessum hætti brennur kjötið
síður og bragðið verður gott. Mögu-
leiki er að flýta steikingartímanum
með því að forsteikja kjötið í ofni.
Annað gott ráð er að bera mat-
arolíu á grillgrindina áður en byrj-
að er að elda og pensla kjöt- eða
fisksneiðar með kryddlegi meðan
á steikingu stendur. Þegar græn-
meti er grillað er best að raða því á
álbakka smurðan með olíu.
Ef notaðir eru trépinnar til að
þræða bita upp á til að grilla þarf
að leggja þá í kalt vatn fyrir notk-
un, annars brenna þeir.
Fisk er best að grilla í þar til
gerðri grillgrind eða vafinn í smjör-
pappír/álpappír. Sama gildir um
kjúklingabita.
Það er góð regla að þrífa grill-
grindina sem fyrst eftir notk-
un. Annars er erfiðara að ná fitu
og brunnu kryddi og blóðsafa og
tægjum af. Með því að þrífa grillið
reglulega endist það lengur auk
þess sem bakteríur þrífast síður á
því.
Kolagrill eru klassísk og sumir
grilláhugamenn vilja ekki grilla á
neinu öðru.
Ekki þarf að nota mjög mikið
af kolum en mikilvægt er að leyfa
þeim að grána vel áður en matur-
inn er settur á grindina. Ekki skal
gera það meðan enn logar í kolunum
enda skal varast að láta loga leika
um matinn því brenndur matur
þykir hvorki góður né hollur.
Kolagrill þarf að tæma og þrífa
reglulega. Gott er að setja álpapp-
ír undir kolin, þannig er auðveldara
að þrífa þau.
Holugrill er skemmtilegur kost-
ur, sérstaklega þegar hópar koma
saman úti í náttúrunni. Tilvalið kjöt
í holuna er lambalæri.
Holugrill er búið þannig til að
grafin er hola eða renna, allt eftir
því hve mikið á að grilla. Þá þarf
að safna grjóti, spýtum og taka torf.
Grjótið er sett í botn holunnar til að
lofti um kolin sem eru sett ofan á
grjótið. Þá er kveikt í kolunum á
hefðbundinn hátt og ágætt er að
leggja grind eða járnteina yfir þau.
Matnum er pakkað inn þannig að
notaður er smjörpappír næst honum
og þar utan um er vafinn álpappír.
Þegar kolin hafa gránað er matur-
inn lagður ofan á. Holuna þarf að
byrgja svo vindur blási ekki ofan í
hana. Það er best að gera með því
að raða grjóti og spýtum í kring og
leggja síðan torf yfir. Gæta skal að
því að súrefni komist að til að halda
lífi í glæðunum. Það þarf að snúa
kjötinu á eldunartímanum sem er
um 1 klst. fyrir meðalstórt læri.
Grillað úti á þrjá vegu
Þrjár aðferðir eru notaðar við að grilla úti við, gasgrill, kolagrill og holugrill. Leiðbeiningarstöð heimil-
anna hefur tekið saman hvernig eigi að bera sig sem best að við hverja eldunaraðferð.
Lambalæri er tilvalið í holugrill.
Notið aldrei sama fat
fyrir hráa kjötið og
grillaða kjötið. Ein leið
er að setja plastfilmu
á fatið áður en hráa
kjötið er sett á og svo
fjarlægja filmuna áður
en grillaða kjötið er
sett á fatið.
www.vefupp-
skriftir.com
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Hæðasmára 6
201 Kópavogi
Hafnarborg
220 Hafnarfjörður
Opið virka daga kl. 10-20 | Laugardaga kl. 10-17 www.madurlifandi.is
Góð heilsa er auðveldari en þú heldur.
Heilbrigði er fyrsta auðlegð
hvers og eins.
Ralph Waldo Emerson
Matti Ósvald heldur fyrirlestur
Þriðjudaginn 27. apríl kl: 17:30–19:00 í Borgartúni 24
Úrval af gasgrillum í BYKO!
Vnr. 50630100
Gasgrill
OUTBACK gasgrill, tvískiptur járnbrennari og
grillflötur 48x36 cm. Hitaplata yfir brennara,
niðurfellanleg hliðarborð, neistakveikjari og
þrýstijafnari fylgjar. 6,2 kW.
Vnr. 50630104
Gasgrill
OUTBACK gasgrill með 3 járnbrennurum. Grill -
flötur 63x42 cm, grillgrind, neistakveikjari, hita-
dreifiplata og hitamælir. Efri grind, þrýstijafnari og
slanga fylgja. Svart postulínshúðað lok. 11,8 kW.
Vnr. 50632108
Gasgrill
DELUX gasgrill með tveimur brennurum, niðurfellan -
leg hliðarborð, fitubakki sem auðvelt er að þrífa, hita-
mælir, neistakveikjari, þrýstijafnari og slanga fylgja,
efri grind og hitadreifiplata. 4 hjól – mjög meðfæri-
legt, svart/grátt postulínshúðað lok, 12,3 KW.
ÓDÝRT
44.900
69.900
23.490
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08