Fréttablaðið - 27.04.2010, Síða 24

Fréttablaðið - 27.04.2010, Síða 24
 27. APRÍL 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín Slippurinn á Akureyri sinnir íslenskum sjávarútvegi og nokkrir Grænlendingar eru komnir þangað í fasta þjón- ustu með sín skip. Í næsta mánuði er svo von á norskum togara. Anton Benjamínsson er framkvæmdastjóri Slipps- ins. „Ég minnist þess ekki að norskt skip hafi komið hingað í breytingar fyrr en við munum gera talsvert mikl- ar endurbætur á togaranum K. Arc- tander frá Lofoten í Noregi, meðal annars skipta um allan frystibún- að í honum til að hann samræmist nútíma mengunarstöðlum,“ segir Anton og tekur fram að Kælismiðj- an Frost á Akureyri sé þar í sam- starfi við Slippinn. Spurður hvort auðveldara sé að ná í verkefni erlendis frá eftir að gengið breyttist svarar Anton: „Við erum búin að reka þetta fyrirtæki í fimm ár og höfum í raun haft nóg að gera frá fyrsta degi en höfum stigið varlega til jarðar. Uppsveifla vegna lágs gengis íslensku krónunnar er þó minni en ætla mætti. Auðvitað er hægara að keppa við útlönd nú en þegar evran var í 75 krónum en Ísland hefur ekki gott orð á sér út á við og margir halda að hér sé allt í skralli. Útgerðirnar hér heima hafa líka verið fremur varfærnar eftir hrunið. Þær hafa bara verið í þessu venjulega viðhaldi en minna í breyt- ingum á skipum eins og þær voru fyrir nokkrum árum.“ Slippurinn er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á landinu og þar fjölgaði starfsmönnum úr hundrað í hundrað og þrjátíu á síðasta ári. Í kvínni núna er rannsóknarskipið Póseidon, 67 metra langt skip sem verið er að taka í gegn. Mánaberg- ið er nýfarið niður og liggur við kaj ann. Ýmis verkefni leika í höndum starfsmanna Slippsins, sem tengj- ast bæði sjó og landi. Þeir smíða til dæmis DNG handfæravindur, sem Slippurinn keypti framleiðslurétt- inn af fljótlega eftir að hann komst á laggirnar. Anton segir framleiðsl- una mest hafa verið til útflutnings fyrstu árin en salan hafi tekið kipp hér innanlands aftur, meðal annars með tilkomu strandveiðanna. - gun Nóg að gera frá fyrsta degi „Auðvitað er hægara að keppa við útlönd nú en þegar evran var í 75 krónum,“ segir Anton. MYND/HEIDA.IS Póseidon er rannsóknarskip. Einu sinni hét það Harðbakur. Börkur Birgisson í framleiðslu á DNG handfæravindunum. „Þemað var Ísland í því verkefni sem við fengum að undirbúa fyrir keppnina,“ segir Jón Þröstur Ól- afsson, nýbakaður Íslandsmeist- ari í blómaskreytingum. Hann valdi blóm í okkar fánalitum, ger- berur, crysi, túlípana og alpaþyrni ásamt mosa í sína skreytingu. Allt íslenskt að hans sögn nema alpa- þyrnirinn. Jón starfar í Blómavali við Skútuvog og er menntaður blóma- skreytir. Hann segir íslensk blóm góða vöru enda séu þau notuð að langstærstum hluta hér á landi í vendi og skreytingar. „Íslensku blómin koma auð- vitað styttra að og eru því ferskari en þau inn- fluttu,“ segir hann. „Það eru helst grænar pálmagreinar og strá sem koma erlendis frá. Þar vaxa þau villt og eru því ódýrari en gróð- urhúsaræktaðir pálmar,“ tekur hann fram. Hann bendir fólki á síðuna www.blomaskreyt- ar.is þar sem þær verslanir sem hafa menntaða blóma- skreyta í starfi flagga lógói félagsins. - gun Fánalitir og mosi Jón með meistara- stykkið. MYNDIR/ PIOTR KOWALONEK PIOTERCZAK Eldgos eftir Þóreyju Sigurðardóttur.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.