Fréttablaðið - 27.04.2010, Blaðsíða 26
27. APRÍL 2010 ÞRIÐJUDAGUR6 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Til mikils er að vinna fyrir fuglamyndir
ferðalanga á Tröllaskaga í sumar.
Bláskeggsárbrú í Hvalfirði var
byggð árið 1907 og á hundrað ára
afmæli hennar fyrir þremur árum
var hafist handa við endurgerð
hennar.
Á sumardaginn fyrsta var brúin
tekin í notkun á ný. Hún er, líkt og
í upphafi, eingöngu ætluð gang-
andi fólki og ríðandi því hún var
byggð fyrir tíma bílsins á Íslandi,
síðar var hún reyndar breikkuð
og styrkt til að þola vélknúin öku-
tæki. Brúin er fyrir ofan Hvalstöð-
ina og Þyril og hægt að aka að upp-
lýsingaskilti þar sem stuttur spöl-
ur er að brúnni.
Bláskeggsárbrú var fyrsta stein-
steypta brúin utan Reykjavíkur. Í
fyrstu var talið að hún væri fyrsta
járnbenta brúin en svo reynd-
ist ekki vera. Brúin var byggð
árið 1907, lengd boga er 6,9 m og
breiddin 2,8. Þegar bílaöldin rann
upp var brúin breikkuð lítillega og
bætt við vængjum á brúna, þess-
ar breytingar voru styrktar með
járni í steypunni. Þoldi brúin þá
bílaumferðina og var hún í notkun
til ársins 1951.
Við endurgerðina var brúin
færð í upprunalegt útlit frá 1907
og var tekið mið af myndum frá
Geir Zoëga. Handriðið var til
dæmis smíðað eftir þeim. Breikk-
unin og vængirnir voru teknir af
og hleðslur lagaðar.
Endurgerðin var samvinnuverk-
efni Hvalfjarðarsveitar, Fornleifa-
verndar ríkisins og Vegagerðar-
innar. Fleiri myndir má sjá á vef
Vegagerðarinnar www.vegagerd-
in.is. - sg
Bláskeggsárbrú opnuð
Brúin er líkt og í upphafi eingöngu
ætluð gangandi fólki og ríðandi.
MYND/VEGAGERÐIN
Matar- og næturgestir á Brim nes-
hóteli í Ólafsfirði í Fjallabyggð geta
skráð sig í veglega ljósmyndasam-
keppni í sumar. Skilmálar eru þeir
að myndin sem skilað er inn sé
tekin af lifandi fugli, á Tröllaskag-
anum, í Hrísey eða Grímsey, frá 15.
apríl til 31. ágúst. Vegleg verðlaun
verða í boði en hæst ber milljón
króna peningaverðlaun sem besta
myndin hlýtur. Þátttakendur geta
skilað myndinni inn í síðasta lagi
5. september. Skráningargjald er
4.000 krónur og af því renna 1.000
krónur til Fuglaverndar. Nokkr-
ar myndir verða valdar í úrslit og
fá þeir ljósmyndarar Tröllafugla-
verðlaunin, sem á VESTNORDEN-
ferðakynningunni á Akureyri í
september. Þar verður aðalsigur-
vegarinn tilkynntur. - jma
Milljón í reiðufé
fyrir fuglamynd
Samtök kristinna bifhjóla-
manna á Íslandi ætla að ferð-
ast um landið vítt og breitt í
sumar og eru Vestfirðirnir í allri
sinni dýrð fyrstir á dagskrá.
Þeir kalla sig Trúboðana, samtök
kristinna bifhjólamanna á Íslandi,
sem boða fagnaðarerindi Guðs og
eru nú í óðaönn að leggja loka-
drög á dagskrá sumarsins. Vest-
firðir eru á meðal viðkomustaða
en hópurinn hyggst þar fara eftir
Arnkötludalsheiði sem var opnuð
í haust.
„Menn eru mjög spenntir að
prófa eitthvað nýtt og á Vestfjörð-
um leynast að auki ýmsar nátt-
úruperlur,“ segir Jón Þór Eyjólfs-
son, varaformaður Trúboðanna og
getur þess að frá stofnun árið 2006
hafi samtökin ferðast mikið inn-
anlands. Á síðasta ári hafi hring-
urinn til að mynda verið farinn á
ellefu dögum og í ár muni leikur-
inn berast vítt og breitt um land-
ið. „Við ætlum sem sagt að byrja
á Vestfjörðunum í ár en svo stend-
ur til að heimsækja Snæfellsnes og
sömuleiðis Akureyri. Það er alltaf
gaman að koma norður.“
Utan þess að njóta íslenskrar
náttúrufegurðar og góðs félags-
skapar ætlar hópurinn að leggja
nokkrum málefnum lið og taka
þátt í starfsemi ýmissa safnaða
á landinu í sumar. „Við ferðumst
ekki bara til skemmtunar held-
ur höfum við víða lagt okkar af
mörkum í kristilegum anda, til
að mynda annast gæslu á Kotmóti
hvítasunnumanna í Kirkjulækj-
arkoti í Fljótshlíð yfir verslunar-
mannahelgina,“ nefnir Jón Þór.
Hann segir trúna og áhugamál-
ið eiga ágæta samleið. Yfir vetur-
inn hittist hópurinn reglulega til
að biðja og þegar sumarið nálgist
séu mótorhjólin dregin fram. Næst
sé keyrsla sem Sniglarnir standa
fyrir um helgina áður en haldið
verður út á land. „Þetta verður frá-
bært ferðasumar.“ - rve
Trúboðar á ferð um landið
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/G
VA
„Við ætlum að heimsækja Vestfirði í
sumar og menn eru mjög spenntir fyrir
ferðinni, enda mótorhjólatíðin rétt
gengin í garð,“ segir Jón Þór Eyjólfsson,
varaformaður Trúboðanna, bifhjóla-
samtaka kristinna manna á Íslandi.
FRÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Brúin er fyrir ofan Hvalstöðina og Þyril. MYND/VEGAGERÐINKemur út laugardaginn 1. maí
Sérblaðið
Matur
Auglýsendur vinsamlegast hafi ð samband:
Benedikt
• benediktj@365.is
• sími 512 5411
Bjarni Þór
• bjarni thor@365.is
• sími 512 5471
Hlynur Þór
• hlynurs@365.is
• sími 512 5439