Fréttablaðið - 28.04.2010, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 28.04.2010, Blaðsíða 28
 28. APRÍL 2010 MIÐVIKUDAGUR8 ● fréttablaðið ● framhaldsnám Nýtti í Énaxin fjölskyldunni: Nú er hægt að fá startpakka! Um er að ræða 90 ml. glas með mixtúru sem tekin er fyrst og svo 30 töflur teknar inn á eftir. 5 vikna skammtur sem sannfærir þig um kraft og áhrif Énaxin Ertu á breytingaskeiði? Chello er svarið fyrir konur sem þjást af svita- og hitakófi Fæst í apótekum og heilsubúðum Þegar þú hefur prófað Énaxin á eigin skinni, munt þú sann- færast: Þú færð aukna orku og kemst yfir meira í daglegu lífi. Énaxin er náttúruleg og auðveld leið til að bregðast við þreytu og orkuleysi. Hvert er leyndarmálið? Leyndarmálið á bak við hinn náttúrulega orkukúr Dana er inni- hald jurta, sem hafa ólík áhrif á orkuframleiðslu líkamans. Ráðist er gegn þreytu og orkuleysi frá nokkrum hliðum. Énaxin má nota bæði þegar þú hefur þörf fyrir auka orku hér og nú og þegar þú hefur þörf fyrir að hlaða „battaríin“ til lengri tíma litið. 15 ml af Énaxin veita þér aukna orku frá fyrsta degi. Haldir þú áfram að taka Énaxin upplifir þú aukið þol og úthald. Ánægðir neytendur Hin jákvæðu áhrif Énaxin hafa verið staðfest af neytenda- rannsókn sem sýnir, að Énaxin eykur orku fólks svo um munar. 86% upplifðu hvernig þreytan hvarf og hversdagsleikinn varð gæddur nýrri orku og þrótti til að takast á við lífið. Alls 83% fannst Énaxin virka fljótt. Auk þess fékk Énaxin sérstakan plús í kladdann frá þeim sem svöruðu könnuninni. Flestum þeirra, eða 91%, fannst fljótandi Énaxin nefnilega gott á bragðið. Heilsuvara ársins í Danmörku Það eru ekki bara neytendur Énaxin, sem eru yfir sig hrifnir af áhrifum vörunnar. Endursölu- aðilar Énaxin geta einnig staðfest jákvæð áhrif notkunar þess. Þetta var ein ástæða fyrir því að Énaxin var valin heilsuvara ársins í Danmörku. Hröð virkni Énaxin hentar bæði ungum og gömlum, sem þurfa fljótt á aukinni orku að halda. Og hana fær fólk svo sannarlega, því Énaxin virkar strax frá fyrsta degi. Nýr og flottur startpakki Énaxin kemur í mörgum mis- munandi útgáfum. Byrjaðu á 16 daga kúr með fljótandi Énaxin eða prófaðu nýja startpakkann sem inniheldur bæði fljótandi Énaxin og töflur sem þú tekur í 5 vikur, og finndu sjálf(ur) hin góðu áhrif. Eftir það geturðu haldið áfram með töflurnar til að halda þreytunni í burtu. Énaxin töflurnar innihalda einnig öll helstu vítamín og steinefni. Ný orkulind fyrir þreytta Íslendinga Flestir þekkja væntanlega hvernig það er að vera stöðugt þreyttur á röngum tíma. Gastu lokið því sem þú ætlaðir þér? Flest okkar eiga það sameigin- legt að það er svo margt sem okkur langar að gera og hafa orku til. Ef til vill langar okkur að leika við börnin, fara út að hlaupa eða einfaldlega halda okkur vakandi á kvöldin, án þess að sofna á sófanum og eyða tímanum. Oft er fólk komið í vítahring sem nauðsynlegt er að rjúfa, svo við getum aftur upplifað daglegt líf fullt af orku til að njóta þess góða sem lífið hefur upp á að bjóða. Komdu þér á réttan kjöl Fyrir þá sem þurfa að koma sér á réttan kjöl og halda þreytunni frá, er Énaxin rétta valið. Varan er fljótvirkandi og þú munt finna breytingu strax frá fyrsta degi. Þegar þú hefur prófað Énaxin muntu sannfærast og þess vegna velja flestir að halda notkun þess áfram. Hver vill ekki vera frískur og orkumikill í stað þess að vera þreyttur og útkeyrður? Ert þú þreytt(ur) í tíma og ótíma? HVAÐ GETUR ÉNAXIN GERT FYRIR ÞIG? Margir eiga erfitt með sinna öllum þeim krefjandi verkefnum sem takast þarf á við í daglegu lífi, þegar starfið, makinn og börnin krefjast athygli. Hvort sem þú finnur fyrir þreytu dagsdaglega, eða stendur frammi fyrir sérstökum áskorunum, t.d. miklu vinnuálagi, hreyfingu og líkamlegu álagi, ert nýbúin(n) að eignast barn eða ert í prófum, getur þú fengið aukna orku með Énaxin. Énaxin er fullt af umfram orku Énaxin mixtúran inniheldur fjölbreyttar jurtir. Mikilvægustu virku jurtirnar eru Schisandra og Rosenrod (rhodiola). Jurtirnar hjálpa líkamanum að framleiða orku fyrir allar daglegar athafnir. Énaxin töflurnar innihalda tvær mikil- vægustu jurtir mixtúrunnar ásamt helstu vítamínum og steinefnum. Hröð virkni Prófaðu fljótandi Énaxin og finndu strax frá fyrsta degi, hvernig þér finnst þú vera „á toppnum“. Eftir 16 daga kúr hefur orkustig þitt aukist. Prófaðu nýja 5 vikna startpakkann og haltu svo áfram að taka Énaxin töflur, sem viðhalda áhrifunum. Byrjaðu í dag – finndu virknina á morgun Það er engin afsökun fyrir því lengur að vera þreytt(ur). Byrjaðu að nota Énaxin í dag og þú munt öðlast virkara líf með nýrri orku og auknum þrótti frá og með morgundeginum. „Ég nota Énaxin á hverjum degi, því þá hef ég orku fyrir öll daglegu verkefnin sem ég þarf að sinna, fjölskylduna og vikulega hreyfingu – og svo er það líka svo bragðgott.“ Gitte Lykke Caspers, 45 ára Þjónusturáðgjafi „Eftir vinnu vildi ég helst bara henda mér á sófann. Ég ákvað þá að prófa Énaxin. Það var frábært, mér fannst ég miklu frískari strax frá fyrsta degi!“ Betina Grewal, 33 ára aðstoðarmarkaðsstjóri „Ég fann mun strax frá fyrsta degi þegar ég byrjaði að taka Énaxin og nú hef ég tekið mína orkubombu á hverjum degi í meira en 2 ár.“ Klaus Nielsen, 47 ára framkvæmdastjóri Mikið framboð er af alls kyns framhaldsnámi á Íslandi og ung- menni oft ringluð hvernig nám og hvaða skóli henti þeim best. Þá eru nemendur líka oft ólíkir hvað varð- ar þroska, áhugamál og námsgetu og hafa ólíkar þarfir. Þar geta foreldrar komið sterk- ir inn sem aðstoðarmanneskjur í vali á námi og hjálpað börnunum að kynna sér námsframboð fram- haldsskóla. Þá stendur nemendum grunnskóla það yfirleitt til boða að leita beint til framhaldsskólanna og fá ráðgjöf og upplýsingar hjá þeim. Ný lög um framhaldsskóla voru sett árið 2008 og með þeim var yfirvöld- u m sk ylt að tryggja öllum þeim 16 og 17 ára nemendum skólavist sem þess óska. - jma Foreldrar að- stoði við valið Námsframboð er gott á Íslandi og mikil- vægt að skoða hvað er í boði áður en gengið er frá umsókn. Nemendur á framhaldsskólastigi á Íslandi sem ekki njóta lána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna eiga rétt á námsstyrkjum til jöfn- unar á námskostnaði, að því til- skildu að þeir uppfylli ákveðin skilyrði. Eitt skilyrði er að nem- endur sæki skóla fjarri lögheim- ili sínu og fjölskyldu sinni. Þeir sem dvelja fjarri heimili sínu eða fjölskyldu eiga rétt á dvalarstyrk og þeir sem sækja nám fjarri lög- heimili eða fjölskyldu eiga rétt á styrk vegna skólaaksturs. Umsókn um námsstyrki send- ist til Lánasjóðs íslenskra náms- manna, en á vefsíðu hans eru um- sóknareyðublöð, samanber http:// www.lin.is/jofnunarstyrkur/um_ jofnunarstyrk.html. Þess má geta að umsóknarfrestur um styrki er til 15. október. Frestur hjá þeim sem eingöngu sækja um vorönn/ sumarönn er til 15. febrúar. Allar nánari upplýsingar á www.lin.is. Réttur til að fá námsstyrki Lánasjóður íslenskra námsmanna er til húsa að Borgartúni 21 í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ● ÞROSKANDI Félagslífið í framhaldsskól- um á sinn stóra þátt í að gera veruna þar eftir- minnilega hjá mörgum nemendum. Það hefur margþætt gildi því auk þess að auka al- mennt fjör í skólunum eflir það sjálfs- traust og sköpunarhæfileika nemenda. Allir skólar hafa leiklist á dagskrá og keppni milli skól- anna, svo sem Gettu betur, Morfís og Söngkeppni framhaldsskólanna eru líka viðburðir sem margir taka þátt í og flestir fylgjast með af áhuga. Nú í vetur vann Borgarholtsskóli þá síðastnefndu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.