Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 10

Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 10
 1. maí 2010 LAUGARDAGUR IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ 24 þúsund kr. inneign fylgir þessum síma. Alvöru GSM símar á frábæru tilboði á ring.is. E N N E M M / S ÍA / N M 4 15 8 5 LG Viewty Eftirstöðvum dreift á 12 mánuði.* 2.000 kr. inneign á mán. í 12 mán. fylgir. Staðgreiðsluverð: 29.900 kr. Útborgun 0 kr. Athugið að inneign í símatilboðum virkjar ekki vinaafslátt Ring. *Greiðsludreifingargjald 250 kr. á mánuði. KAUPA UKI 2x bíó 2x Dom ino's 2x Ser rano FRÉTTASKÝRING Eru dagar Browns taldir? Þótt kappræður flokksleið- toganna þriggja í Bretlandi á fimmtudag, þær síðustu af þrem- ur, hafi kannski þótt heldur til- þrifalitlar þá hefur það ekkert dregið úr spennunni fyrir þing- kosningarnar, sem haldnar verða næsta fimmtudag. Rúmlega níu milljónir manna fylgdust með kappræðunum í beinni útsendingu, en skoðana- kannanir benda til þess að David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokks- ins, hafi staðið sig best og mælist nú með 34-35 prósenta fylgi. Nick Clegg, leiðtoga Frjáls- lyndra demókrata, virðist hins vegar hafa fatast flugið eftir óvænta velgengni síðustu vikna, því flokkur hans mælist nú með 27-28 prósenta fylgi, sem er örlítið minna en 28-29 prósenta fylgi Verkamannaflokks Gordon Browns forsætisráðherra. Flokkarnir þrír hafa nú ein- ungis fáeina daga til þess að bæta stöðu sína, en samkvæmt skoð- anakönnunum er vel mögulegt að enginn þeirra fái hreinan meiri- hluta á þingi. Slílkt væri óvenju- legt, því 36 ár eru síðan síðast var mynduð minnihlutastjórn í Bretlandi og samsteypustjórnir eru þar svo gott sem óþekktar. Þá kæmist Nick Clegg í lykil- stöðu, en hann hefur ekki vilj- að taka af skarið um hvort hann kjósi heldur að starfa með íhalds- mönnum eða Verkamannaflokkn- um. Hann hefur þó gefið í skyn að hann geti vart hugsað sér að starfa með Verkamannaflokkn- um nema Brown hætti í pólitík. Í kappræðunum þremur hafa leiðtogarnir helst deilt um efna- hagsmál og málefni innflytj- enda. Efnahagsvandi Breta er gríð- arlegur, með fjárlagahalla sem nemur 30 þúsund milljörðum króna. Hver sem hreppir for- sætisráðherrastólinn að lokn- um kosningum þarf að efna til niðurskurðar sem á eftir að bitna illa á almenningi. Allir flokkarnir þrír hafa verið tregir til að útlista niður- skurðaráform sín, enda nokkuð víst að ákveðin svör um þau efni myndu kosta viðkomandi flokk kjósendur. Innf lytjendamál in hafa þó ekki verið síður hitamál í aðdraganda kosninganna. Sex milljónir útlendinga hafa flust til landsins síðan Verkamanna- flokkurinn tók við völdum árið 1997. Margir Bretar kenna þeim um aukið atvinnuleysi, lág laun og útgjaldabólgið almannatrygg- ingakerfi. Flokksleiðtogarnir þrír hafa óspart komið inn á þessi mál í sjónvarpskappræðunum. Camer- on vill setja hömlur á innflutning fólks, Brown vill strangara eft- irlit með aðfluttu fólki, en Clegg hefur lagt til að ólöglegir inn- flytjendur fái sakaruppgjöf ef þeir gefa sig fram við yfirvöld. Einmitt þetta hitamál virð- ist hafa gert endanlega út af við möguleika Browns í kosningun- um þegar alþjóð fékk nú í vik- unni að heyra hann úthúða aldr- aðri konu sem vildi fá svör frá honum. gudsteinn@frettabladid.is Cameron kominn með nauma forystu David Cameron og Íhaldsflokkur hans virðast aftur komnir með forystu í bresku kosningabaráttunni. Flest stefnir þó í að enginn flokkur fái meirihluta og þá kemst Nick Clegg í lykilstöðu. Kosið verður á fimmtudaginn. ÞRÍR Á SVIÐI Engin afgerandi niðurstaða fékkst út úr síðustu sjónvarpskappræðunum, en möguleikar Browns virðast þó minnstir. NORDICPHOTOS/AFP
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.