Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 10
1. maí 2010 LAUGARDAGUR
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
24 þúsund kr.
inneign fylgir
þessum síma.
Alvöru GSM símar
á frábæru tilboði á ring.is.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
15
8
5
LG Viewty
Eftirstöðvum dreift
á 12 mánuði.*
2.000 kr. inneign á
mán. í 12 mán. fylgir.
Staðgreiðsluverð: 29.900 kr.
Útborgun
0 kr.
Athugið að inneign í símatilboðum virkjar ekki vinaafslátt Ring.
*Greiðsludreifingargjald
250 kr. á mánuði.
KAUPA
UKI
2x bíó
2x Dom
ino's
2x Ser
rano
FRÉTTASKÝRING
Eru dagar Browns taldir?
Þótt kappræður flokksleið-
toganna þriggja í Bretlandi á
fimmtudag, þær síðustu af þrem-
ur, hafi kannski þótt heldur til-
þrifalitlar þá hefur það ekkert
dregið úr spennunni fyrir þing-
kosningarnar, sem haldnar verða
næsta fimmtudag.
Rúmlega níu milljónir manna
fylgdust með kappræðunum í
beinni útsendingu, en skoðana-
kannanir benda til þess að David
Cameron, leiðtogi Íhaldsflokks-
ins, hafi staðið sig best og mælist
nú með 34-35 prósenta fylgi.
Nick Clegg, leiðtoga Frjáls-
lyndra demókrata, virðist hins
vegar hafa fatast flugið eftir
óvænta velgengni síðustu vikna,
því flokkur hans mælist nú með
27-28 prósenta fylgi, sem er
örlítið minna en 28-29 prósenta
fylgi Verkamannaflokks Gordon
Browns forsætisráðherra.
Flokkarnir þrír hafa nú ein-
ungis fáeina daga til þess að bæta
stöðu sína, en samkvæmt skoð-
anakönnunum er vel mögulegt að
enginn þeirra fái hreinan meiri-
hluta á þingi. Slílkt væri óvenju-
legt, því 36 ár eru síðan síðast
var mynduð minnihlutastjórn í
Bretlandi og samsteypustjórnir
eru þar svo gott sem óþekktar.
Þá kæmist Nick Clegg í lykil-
stöðu, en hann hefur ekki vilj-
að taka af skarið um hvort hann
kjósi heldur að starfa með íhalds-
mönnum eða Verkamannaflokkn-
um. Hann hefur þó gefið í skyn
að hann geti vart hugsað sér að
starfa með Verkamannaflokkn-
um nema Brown hætti í pólitík.
Í kappræðunum þremur hafa
leiðtogarnir helst deilt um efna-
hagsmál og málefni innflytj-
enda.
Efnahagsvandi Breta er gríð-
arlegur, með fjárlagahalla sem
nemur 30 þúsund milljörðum
króna. Hver sem hreppir for-
sætisráðherrastólinn að lokn-
um kosningum þarf að efna til
niðurskurðar sem á eftir að bitna
illa á almenningi.
Allir flokkarnir þrír hafa
verið tregir til að útlista niður-
skurðaráform sín, enda nokkuð
víst að ákveðin svör um þau efni
myndu kosta viðkomandi flokk
kjósendur.
Innf lytjendamál in hafa
þó ekki verið síður hitamál í
aðdraganda kosninganna. Sex
milljónir útlendinga hafa flust
til landsins síðan Verkamanna-
flokkurinn tók við völdum árið
1997. Margir Bretar kenna þeim
um aukið atvinnuleysi, lág laun
og útgjaldabólgið almannatrygg-
ingakerfi.
Flokksleiðtogarnir þrír hafa
óspart komið inn á þessi mál í
sjónvarpskappræðunum. Camer-
on vill setja hömlur á innflutning
fólks, Brown vill strangara eft-
irlit með aðfluttu fólki, en Clegg
hefur lagt til að ólöglegir inn-
flytjendur fái sakaruppgjöf ef
þeir gefa sig fram við yfirvöld.
Einmitt þetta hitamál virð-
ist hafa gert endanlega út af við
möguleika Browns í kosningun-
um þegar alþjóð fékk nú í vik-
unni að heyra hann úthúða aldr-
aðri konu sem vildi fá svör frá
honum. gudsteinn@frettabladid.is
Cameron kominn
með nauma forystu
David Cameron og Íhaldsflokkur hans virðast aftur komnir með forystu í
bresku kosningabaráttunni. Flest stefnir þó í að enginn flokkur fái meirihluta
og þá kemst Nick Clegg í lykilstöðu. Kosið verður á fimmtudaginn.
ÞRÍR Á SVIÐI Engin afgerandi niðurstaða fékkst út úr síðustu sjónvarpskappræðunum, en möguleikar Browns virðast þó minnstir.
NORDICPHOTOS/AFP