Fréttablaðið - 01.05.2010, Page 28

Fréttablaðið - 01.05.2010, Page 28
28 1. maí 2010 LAUGARDAGUR Í Fréttablaðinu á þriðjudag skrifar Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, um kosninga- stefnuskrá síns flokks fyrir borg- arstjórnarkosningarnar. Þar er tekið fram að hornsteinn jafnaðar- stefnunnar sé baráttan fyrir fullri atvinnu. Satt best að segja vissi ég ekki af þessum hornsteini jafnaðar- manna fyrr en núna þar sem horn- steinn jafnaðarstefnunnar fram að þessu hefur verið jöfnun lífskjara. Hins vegar er krafan um atvinnu fyrir alla, einn af hornsteinum framsóknarstefnunnar og hefur sá flokkur stundum fengið á bauk- inn frá jafnaðarmönnum fyrir of róttæka atvinnustefnu. Ef stjórnmálasaga síðustu 50 ára er skoðuð með tilliti til atvinnuleys- is þá kemur í ljós að íslenska þjóð- in hefur aldrei búið við atvinnu- leysi nema þegar jafnaðarmenn eru í ríkisstjórn. Fyrst í Viðreisn- arstjórninni á sjötta áratugnum, síðan í Viðeyjarstjórninni á tíunda áratugnum og svo núna undir for- ystu Samfylkingarinnar. Í tveimur af þessum þremur tilvikum hafa jafnaðarmenn hrökklast frá völdum vegna samdráttar og atvinnuleysis og sennilega verður það líka raunin nú. Í ljósi sögunnar og þess sem við er að glíma er holur hljómur í því þegar varaformaður Samfylkingar- innar vill taka ábyrgð atvinnuleys- is frá ríkisstjórninni og yfirfæra á borgarstjórn Reykjavíkur þar sem hann er oddviti stærsta minnihluta- flokksins. Ríkisstjórnin sem Dagur B Eggertsson, varaformaður Sam- fylkingarinnar, tók þátt í að mynda virðist ekki með nokkru móti ná að móta tillögur sem örva atvinnu- lífið og því er þetta atvinnulífstal þeirra fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar í hæsta máta ótrúverðugt. Því miður. Úr því að Samfylkingin vill fara í samanburð milli ríkisins og Reykjavíkurborgar um aðgerð- ir gegn atvinnuleysi, þá er því fyrst til að svara að Reykjavíkurborg og Orkuveita hafa verið í framkvæmd- um fyrir u.þ.b. 30 milljarða á ári á árunum 2009 og 2010. Ríkið hefur framkvæmt á sama tíma fyrir u.þ.b. 10 milljarða á ári, þrátt fyrir að vera margfalt stærra hagkerfi. Það er því nokkuð bratt að hætta sér útá þann ís að kalla atvinnu- stefnu borgarinnar afskiptaleysis- stefnu þegar tölurnar sýna að borg- in veitir margfalt meiri fjármunum til framkvæmda, en ríkisstjórnin sem Dagur sjálfur tók þátt í mynda. Samfylkingin verður líka að svara því fyrir sig hvort skattahækkanir ríkisstjórnarinnar glæði atvinnu- lífið og vinni gegn atvinnuleysi? Reykjavíkurborg hefur ekki hækk- að skatta eftir að erfiðleikarnir dundu yfir. Atvinnumálin hafa verið rauði þráðurinn í starfi borgarstjórn- ar á seinni hluta kjörtímabilsins. Við höfum unnið eftir þverpólit- ískri aðgerðaráætlun sem hefur skilað okkur öllum góðum árangri. Samfylkingin á vissulega sinn þátt í þessari góðu samvinnu og því kemur það á óvart að oddviti þeirra geri lítið úr árangri þverpólitískrar vinnu og boði fagnaðarerindið sjálf- um sér og flokki sínum til dýrðar, eins og borgarstjórn hafi ekkert gert í málinu fram að þessu. Um hugmyndir Dags og félaga um sérstakan hagvöxt í Reykjavík óháð hagvexti í landinu er einhver fífldjarfasta tilraun sem um getur til að yfirfæra eigið aðgerðarleysi yfir á aðra. Ekki síst í ljósi þess að Samfylkingin ber ábyrgð á hag- stjórn landsins um þessar mundir. Atvinnustefna jafnaðarmanna Atvinnumál Óskar Bergsson formaður borgarráðs Ef stjórnmálasaga síðustu 50 ára er skoðuð með tilliti til atvinnuleysis þá kemur í ljós að íslenska þjóðin hefur aldrei búið við atvinnuleysi nema þegar jafnaðar- menn eru í ríkisstjórn. Á höfuðborgarsvæðinu er búsett-ir um 470 einstaklingar sem eru lögblindir (minna en 10% sjón). Fjölmennastir í þessum hópi eru eldri borgarar. Í þessum hópi eru einstaklingar á virkum vinnualdri sem hafa fulla starfsorku og vilja vera virkir í samfélaginu. Algeng orsök þess að blindum og sjón- skertum einstaklingum tekst ekki að vera samfélagslega virkir, er einangrun sem hlýst af því að geta ekki keyrt bifreið eða notað strætis- vagna og komist þannig leiðar sinn- ar á sjálfstæðan máta. Af þeim 470 lögblindu einstakl- ingum sem búsettir eru á höfuð- borgarsvæðinu eiga 411 kost á akstursþjónustu með leigubíl- um, samkvæmt samningum milli Blindrafélagsins, Hreyfils og við- komandi sveitarfélags, sem sér- staklega eru sniðnir að þörfum blindra og sjónskertra einstakl- inga. Af þeim 59 sem ekki eiga kost á þess konar akstursþjónustu, er 51 búsettur í Kópavogi, eða tæp 90%. Þessi akstursþjónusta hefur gef- ist einstaklega vel og reynst mjög hagkvæm. Nú er það svo að Ferðaþjónusta fatlaðra, sem er valkostur sem Kópavogsbær býður blindum og sjónskertum, er mjög takmarkandi þjónustuúrræði sem engan veginn svarar þörfum allra einstaklinga sem vilja vera virkir í samfélaginu. Þjónustustig Ferðaþjónustu fatlaðra er einfaldlega ekki ásættanlegt í mörgum tilvikum, þó að í öðrum sé það vissulega fullnægjandi. Þarfir einstaklinganna eru mismunandi og ekki er með neinu móti hægt að alhæfa að allir, sem þurfa á akst- urs- og ferðaþjónustu að halda, hafi sömu þjónustuþörf. Mikilvægast er að þjónustan sé skipulögð og veitt út frá þörfum þeirra sem eiga að nýta sér þjónust- una en ekki þeirra sem veita hana. Í lögum nr 52 frá 1992 um mál- efni fatlaðra er fjallað um ferða- þjónustu við fatlaða segir m.a.: „35. gr. Sveitarfélög skulu gefa fötluðum kost á ferðaþjónustu. Markmið ferðaþjónustu fatlaðra er að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda. Sveitarfélög setja reglur um rekstur ferðaþjónustu fatlaðra … “ Í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra, sem íslenska ríkisstjórnin hefur skrifað undir, er fjallað um ferðaþjónustu við fatl- aða. Þar segir: „20. gr. Ferlimál einstaklinga. Aðildarríkin skulu gera árangurs- ríkar ráðstafanir til þess að tryggja að einstaklingum sé gert kleift að fara allra sinna ferða og tryggja sjálfstæði fatlaðra í þeim efnum, eftir því sem frekast er unnt, m.a. með því: a) að greiða fyrir því að fatlaðir geti farið allra sinna ferða með þeim hætti sem, og þegar, þeim hentar og gegn viðráðanlegu gjaldi, … “ Með undirskrift ríkisstjórnar Íslands á Sáttmála Sameinuðu þjóð- anna um réttindi fatlaðs fólks er komin fram stefnumörkun stjórn- valda í málefnum fatlaðra. Sé tekið mið af lögblindum ein- staklingum í Kópavogi, sem ég þekki persónulega til, þá get ég sagt með fullri vissu, að sú ferða- þjónusta sem stendur þeim til boða, er ekki að mæta þörfum þeirra og gera þeim kleift að stunda atvinnu eða nám og njóta tómstunda, eins og kveðið er á um í 35. grein laga um málefni fatlaðra, svo ekki sé nú minnst á ákvæði 20. greinar í Sátt- mála Sameinuðu þjóðanna um mál- efni fatlaðra. Fyrir vikið eru lög- blindir Kópavogsbúar mun verr settir á flest allan hátt en lögblind- ir einstaklingar sem búa í Reykja- vík, og svo hefur verið lengi. Með þessu opna bréfi, óska ég eftir því við forystumenn stjórn- málaflokkanna í Kópavogi, að þeir svari því hvort þeir séu tilbúnir til að tryggja, að blindum og sjón- skertum Kópavogsbúum, verði tryggð þjónusta sem mætir þörf- um þeirra og er í samræmi lög, gildandi sáttmála, nútímakröfur og sambærileg þeirri þjónustu sem aðrir blindir og sjónskertir íbúar höfuðborgarsvæðisins njóta. Ekki gott að búa í Kópavogi fyrir blinda fyrir “efin” í lífinu Hvað ef... áhæ tta slys VAðgengi fatlaðra Kristinn Halldór Einarssonformaður Blindrafélagsins Fyrir vikið eru lögblindir Kópavogs- búar mun verr settir á flest allan hátt en lögblindir einstaklingar sem búa í Reykjavík, og svo hefur verið lengi. Í kjölfar rannsóknarskýrslu Alþingis hefur mikið verið rætt um mikilvægi þess að efla hlut gagnrýninnar hugsunar og siðfræði í skólum landsins og samfélaginu almennt. Svo sannarlega er kominn tími til og sætir það furðu hversu yfirvöld menntamála hafa sofið á verðinum alla tíð. Ekki eru þetta þó nýjar uppgötvanir fyrir alla. Frá árinu 1989 hefur Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi lagt megináherslu á kennslu siðfræði og gagnrýninnar hugsunar á und- irbúningsnámskeiðum sínum fyrir borgaralega fermingu, en alls hafa tæplega 1500 ungmenni sótt nám- skeið Siðmenntar. Siðmennt hefur margoft bent yfirvöldum menntamála á mikil- vægi gagnrýninnar hugsunar og siðfræði í skólastarfi en því miður iðulega talað fyrir daufum eyrum ráðamanna. Einnig hefur félag- ið margoft komið með ábending- ar um það sem betur má fara og lýtur beinlínis að mannréttindum. Fyrir rúmu ári síðan sendi félag- ið erindi til menntamálaráðherra þar sem ráðherrann er hvattur til þess að grípa til aðgerða til að rétta hlut þeirra fjölskyldna sem beitt- ar eru ranglæti í skólum landsins vegna trúar- eða lífsskoðana sinna. Skólastjórnendur virðast mega gera nánast hvað sem er í skólum lands- ins án þess að nokkur gagnrýnin hugsun komi þar nærri og án þess að yfirvöld menntamála hafi á því nokkra skoðun. Eflaust kallast þetta í ráðuneytinu frelsi eða sjálfstæði skóla, en er í raun ekkert annað en skeytingarleysi gagnvart því sem erlendis hefur verið talið til mann- réttindamála. Þetta er sambærileg vitleysa og viðgekkst á milli stjórn- valda og fjármálaheimsins þar sem frelsi þýddi í raun ekkert annað en skeytingarleysi. Staðfesting á slíku skeytingar- leysi af hálfu ráðuneytisins um starfsemi skólanna barst síðan félaginu sem svar við erindinu sem áður er greint frá, en þar segir m.a. að dregist hafi að svara erindinu vegna anna. Mannréttindamálin frestast vegna anna í heilt ár! Og svo er talað um skort á siðferðilegri ábyrgð á Íslandi. Hverjar eru fyrirmyndirnar ef ekki stjórnvöld á hverjum tíma? Ég lýsi eftir pólitískri ábyrgð, siðferðilegum heilindum gagn- vart þeim sem í hlut eiga og rík- ari áhuga á mannréttindamál- um í ráðuneyti menntamála í stað skeytingarleysis. Siðfræðikennsla í rúm 20 ár Siðfræði Jóhann Björnsson kennari og stjórnarmaður í Siðmennt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.