Fréttablaðið - 01.05.2010, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 1. maí 2010 31
Vondar eru tillögur Samgöngu-ráðherra og ríkisstjórnarinnar
um niðurskurð á framkvæmdum
til vegabóta á Vestfjörðum og mál-
flutningur hans gæti verið betri.
Átakshópurinn ÁFRAM VEST-
UR hefur unnið að því undanfarna
mánuði að auka samstöðu Vestfirð-
inga í samgöngumálum og stilla
saman áherslur fólks á norðanverð-
um og sunnanverðum Vestfjörð-
um. Það hefur tekist framar öllum
vonum. Vestfirðingar eru nær ein-
huga um nauðsyn þess að Vest-
fjarðavegur 60 frá Bjarkarlundi að
Þingeyri verði góður heilsár upp-
byggður vegur með bundnu slitlagi.
Hvergi annars staðar á landinu
býr fólk við jafn slæmar aðstæð-
ur. Það eru hagsmunir Vestfirð-
inga að allur þessi vegarkafli verði
sem fyrst endurbættur. Góðan veg
þarf milli byggðarlaga til þess að
efla byggðina á Vestfjörðum og
ekki síður þarf góðan veg áfram
suður eftir Barðastrandarsýslunni.
Það er ekki annaðhvort eða og það
er ekki fyrst einn kafli á leiðinni
og annað ekki á meðan. Það er eins
og gildandi samgönguáætlun mælir
fyrir um í raun, leiðin Bjarkalund-
ur – Þingeyri, og fé veitt til vega-
gerðar vestan Bjarkalundar og til
Dýrafjarðarganga.
Hvergi á landinu er meiri nið-
urskurður á fyrirhuguðum fram-
kvæmdum en einmitt á þessum
versta vegarkafla Íslands. Ekkert
nýtt fjármagn er til framkvæmda í
veginn um Barðastrandarsýsluna.
Það fé sem Alþingi hefur á fyrri
árum veitt til verkefnisins hefur
aðeins að litlum hluta verið varið til
framkvæmda. Skorið er af því sem
eftir stendur og engir viðbótarpen-
ingar. Árin 2011 og 2012 á að fram-
kvæma fyrir sömu peninga og árin
2007-2010. Það myndi ganga hægt að
vinna Héðinsfjarðargöngin ef fjár-
mögnunin væri svona. En þetta er
Vestfirðingum boðið upp á, illa dul-
búinn 100% niðurskurð.
Hvergi á landinu hafa íbúarn-
ir mátt þola jafnmikið sleifarlag,
ráðaleysi og viljaleysi stjórnvalda
eins og birst hefur í Barðastranda-
sýslunni. Á átta árum hefur aðeins
tekist að leggja um 55 km af nýjum
veg. Enn stefnir í frekari tafir á
hverjum nýjum vegarkafla sem
taka á fyrir. Engin trygging er því
miður fyrir því að unnið verði nokk-
uð á næstu tveimur árum. Þetta
er meira og minna sjónhverfing
til þess að kasta ryki í augu Vest-
firðinga. Ríkisstjórnin sýnir Vest-
firðingum algert skeytingarleysi
og virðingarleysi en hún gefst upp
fyrir sérvisku, eintrjáningshætti
og öfgasinnuðum umhverfisvernd-
arsjónarmiðum. Það mun taka 3-4
áratugi að ljúka vegagerðinni frá
Bjarkalundi að Þingeyri með þessi
áframhaldi.
Ofan í ráðaleysi sitt í Barðastrand-
arsýslu bætir ráðherrann því við að
slá Dýrafjarðargöngin algerlega út
af borðinu. Lagt er til að þurrka út
gildandi fjárveitingar til Dýrafjarð-
arganga og eftir það verður fram-
kvæmdin hvergi til í nokkurri sam-
þykktri samgönguáætlun. Þetta er
líka 100% niðurskurður.
Í vandræðum sínum grípur sam-
gönguráðherra til þess að kenna
Vestfirðingum sjálfum um þetta.
Hann segir að þeir hafi sjálfir valið
að henda Dýrafjarðargöngum út.
Því hefur þegar verið mótmælt af
talsmanni Fjórðungssambandi Vest-
firðinga. Þeir ætla ekki að láta bjóða
sér svona málflutning. Hvers vegna
ætti að skipta upp óloknu verkefni á
Vestfjörðum eins og Bjarkalundur
– Þingeyri í ótal aðskilin verkefni
þegar önnur stór og mikilvæg verk-
efni eru tekin sem heild svo sem
Hófaskarðsleið í Þingeyjarsýslu
og Suðurstrandarvegur, en engu
að síður boðin út í mörgum áföng-
um? Meðan verkið sækist seint á
Vestfjörðum verður meira til skipt-
anna fyrir verkefni annars staðar
á landinu. Mál er að Vestfirðingar
hætti að láta fara svona með sig.
Ráðherrann segir að Dýrafjarðar-
göngum sé aðeins frestað. Það væri
betra ef satt væri. En þetta eru útúr-
snúningar. Ráðherrann veit jafnvel
og ég að hann getur engu um það
svarað hvort Dýrafjarðargöngin
verða inn á næstu samgöngutillögu
sem lögð verður fram á Alþingi ein-
hvern tímann í framtíðinni. Hann
veit hvað ríkisstjórnin ætlar sér og
ætti að upplýsa það. Hann veit líka
eins vel og ég að Dýrafjarðargöngin
eru tekin út núna vegna þess að það
er ekki nægilegur pólitískur vilji
innan ríkisstjórnarflokkanna fyrir
framkvæmdinni. Það eru of margir
draugar á ferli jafnvel um hábjart-
an dag sem Vestfirðingar þurfa að
kveða niður.
Framkvæmdir við Dýrafjarð-
argöng eiga að hefjast á þessu ári
og þeim á að ljúka 2012. Svo vill til
að framkvæmdir við Norðfjarðar-
göng eiga líka að hefjast á þessu
ári og þeim á líka að ljúka 2012.
Svo vill til að bæði verkefnin eru
til þess að stækka atvinnusvæði
og bæta samgöngur. Svo vill til að
Norðfjarðargöng á áfram að fara í
þótt þeim seinki líklega um eitt ár.
En Dýrafjarðargöng á að slá út af
borðinu. Vestfirðingar skilja fyrr en
skellur í tönnum. Í þessu máli dugar
það eitt að knýja ríkisstjórnina til
þess að ryðja úr vegi öllum hindr-
unum fyrir tafarlausri vegagerð á
leiðinni Bjarkalundur – Þingeyri og
Dýrafjarðargöngin aftur inn á sam-
gönguáætlunina á sama stað og þau
voru.
100% niðurskurður á stórum framkvæmdum
Samgöngur
Kristinn H.
Gunnarsson
fyrrverandi
alþingismaður
Hvergi á landinu hafa íbúarnir mátt
þola jafnmikið sleifarlag, ráðaleysi
og viljaleysi stjórnvalda eins og birst
hefur í Barðastrandarsýslunni. Á átta
árum hefur aðeins tekist að leggja um
55 km af nýjum veg.
Ársfundur 2010
Ársfundur sjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 20. maí,
kl. 16:30. Verður hann auglýstur nánar síðar.
Yfirlit um afkomu 2009
Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · Fax 510 7401 · s l@sl . is · www.sl . is
Efnahagsreikningur (í flús. kr.)
Yfirlit um breytingar á hreinni eign til grei›slu lífeyris
Lífeyrisskuldbindingar skv. ni›urstö›u tryggingafræ›ings
Kennitölur
Ávöxtun séreignardeildar 2009
Sjó›félagar
19.112.061
43.821.329
2.473.021
419.237
1.524.097
18.189
67.367.934
-138.771
67.229.163
2.966.326
-994.887
7.607.673
-61.904
-80.583
9.436.625
57.792.538
67.229.163
-1.372.000
-1,9%
-4.391.000
-3,8%
12,7%
3,8%
2,8%
3,3%
7.425
6.181
0,13%
73,8%
26,2%
15.709.032
38.183.476
2.343.348
436.342
1.235.103
19.267
57.926.568
-134.030
57.792.538
2.785.709
-753.462
278.178
-56.648
-78.339
2.175.438
55.617.100
57.792.538
658.000
1,1%
-1.792.000
-1,7%
0,3%
-13,8%
3,5%
3,7%
7.028
5.113
0,14%
75,5%
24,5%
Ver›bréf me› breytilegum tekjum
Ver›bréf me› föstum tekjum
Ve›lán
Bankainnistæ›ur
Kröfur
A›rar eignir og rekstrarfjármunir
Skuldir
I›gjöld
Lífeyrir
Fjárfestingartekjur
Fjárfestingargjöld
Rekstrarkostna›ur
Hækkun á hreinni eign á tímabilinu
Hrein eign frá fyrra ári
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar
Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum
Eignir umfram heildarskuldbindingar
Í hlutfalli af heildarskuldbindingum
Tekið er tillit til falls bankanna og afleiðingum þess m.a. með niðurfærslu eigna.
Nafnávöxtun
Hrein raunávöxtun
Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal
Hrein raunávöxtun 10 ára meðaltal
Fjöldi virkra sjóðfélaga
Fjöldi lífeyrisþega
Rekstrarkostnaður í % af eignum
Eignir í íslenskum krónum
Eignir í erlendum gjaldmiðlum
Nafnávöxtun Söfnunarleiðar I sem er innlánsreikningur var 15,7% eða 6,8% raunávöxtun. Nafnávöxtun
Söfnunarleiðar II sem inniheldur ýmis verðbréf nam 13,8% eða 4,7% raunávöxtun. Í uppgjöri er færð út
sannanleg töp ásamt því að eignir eru færðar niður til að mæta mögulegum töpum framtíðar.
Heildareignir séreignardeildar eru 491,1 milljón króna í árslok 2009 og vaxa um 14%.
Sjóðurinn er ætlaður öllum launþegum og sjálfstætt starfandi mönnum sem eiga ekki kjarasamnings-
bundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Hann getur því verið góður kostur fyrir ýmsa aðila sem þurfa að
velja sér lífeyrissjóð. Sjóðurinn byggir á samtryggingu og séreign.
31.12.2009 31.12.2008
Í stjórn sjó›sins eru
Hrafn Magnússon formaður, Arnar Sigurmundsson, Friðbert Traustason,
Gunnar Gunnarsson, Þorbjörn Guðmundsson, Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir.
Framkvæmdastjóri er
Sigurbjörn Sigurbjörnsson
Traustur sjóður,
trygg framtíð