Fréttablaðið - 01.05.2010, Page 34

Fréttablaðið - 01.05.2010, Page 34
34 1. maí 2010 LAUGARDAGUR hefðum lokast inni í Keflavík hefðum við ekki bara tapað gríðarlegum fjár- hæðum heldur hefðum við í raun spil- að okkur út úr samkeppninni í fluginu yfir Atlantshafið. Ímynd landsins í augum útlendinga sem vilja sækja það heim var líka undir. Menn þora ekki að koma ef landið er lokað í viku. Við mátum semsagt nauðsynlegt að halda þessu gangandi þótt það kostaði okkur mikla peninga.“ Við hverja veigamikla ákvörðun var öllum hliðum mála velt upp nema einni. Aldrei var gefinn afsláttur af öryggis- málum. „Við fórum í einu og öllu eftir því sem Flugstoðir og EUROCONTROL (Evrópska flugstjórnarstofnunin) gáfu út um opin og lokuð svæði. Það kom til dæmis aldrei til greina að fljúga inn á svæði sem ekki voru lokuð en þó ekki talin fullkomlega örugg. Slík flug voru á ábyrgð flugrekenda en við fórum allt- af eftir fyrirmælum flugyfirvalda á Íslandi og í Evrópu.“ Sótt fram Röskunin vegna eldgossins hefur þegar kostað Icelandair háar fjárhæð- ir en enn er óljóst hver heildaráhrifin verða á félagið og efnahag þjóðarinnar. „Við héldum á tímabili að sumarið væri farið en erum bjartsýn í dag,“ segir Birkir. Fyrir gos var bókunarstaðan 20 prósentum betri en á sama tíma í fyrra en það hægði verulega á bókun- unum eftir að gosið hófst. Birki er ekki aðeins umhugað um afkomu félagsins heldur þjóðarbúsins alls. „Gjaldeyris- tekjurnar í fyrra námu 155 milljörðum. Miðað við auknar bókanir gerðu menn sér vonir um að þær næðu 180 millj- örðum í ár. Nú óttast ferðaþjónustan tíu til tuttugu prósenta samdrátt sem þýðir að gjaldeyristekjurnar kunna að verða 130 milljarðar. Missirinn fyrir þjóðarbúið er því 50 milljarðar þannig að nokkur hundruð milljónir eru bara dropi í hafið,“ segir Birkir og vísar þar til markaðsherferðar þeirr- ar sem stjórnvöld og ferðaþjónustan hafa ákveðið að ráðast í í Bandaríkj- unum og Evrópu til að vekja athygli og áhuga ferðamanna á Íslandi. Hrós- ar hann Katrínu Júlíusdóttur iðnaðar- ráðherra, ráðherra ferðamála, fyrir framgöngu hennar í málinu. Máttur auglýsinganna Birkir efast ekki um gagnsemi slíkrar herferðar og er fullviss um að hún skili miklu. „Fullt af fólki er hrætt við þetta og vill ekki koma til landsins en það er líka fullt af fólki sem finnst þetta spennandi og vill koma og sjá hvað er að gerast. Sjá nýtt landslag. Svo er auðvitað fullt af fólki líka sem hefur ekki séð neikvæðu fréttirnar og hægt er að ná til með náttúrulífsmyndum og öðru.“ Neikvæðu fréttirnar! Það hefur verið talsvert af þeim. Margir erlendir fjölmiðlar hafa dregið upp dökka mynd af landinu eftir að gosið hófst og látið í veðri vaka að Ísland sé hættulegur staður. „Þá ímynd þarf að leiðrétta og það er gert með öflugri herferð,“ segir Birkir. Icelandair býr að mikilli þekkingu á markaðsmálum í útlöndum. Fyrirtækið ver milljarði króna árlega í auglýsingar og markaðsstarf í útlöndum og þekkir virkni þeirra á eigin skinni. „Við próf- uðum á tveimur tímabilum í fyrra að hætta að auglýsa í nokkrar vikur. Þrátt fyrir veika krónu og að það væri hag- stætt að koma til Íslands hægði mjög á bókunum. Það þarf því að keyra öfl- ugar herferðir erlendis til að ná ferða- mönnum hingað.“ Óánægja skiljanleg Farþegar hafa vitaskuld fundið óþyrm- ilega fyrir töfum og snarbreyttum flugáætlunum. Eins og gengur hafa viðbrögð þeirra verið misjöfn. Birk- ir kveðst skilja alla óánægju enda flugraskanir aldrei skemmtilegar. „En viðmótið hefur í raun verið ótrúlega gott. Auðvitað er kvartað en reyndar höfum við fengið fleiri þakkarbréf en kvörtunarbréf. Fólk virðist sýna þessu skilning af því að það er eldgos sem ræður för og að við erum að reyna allt sem við getum til að halda uppi flug- samgöngum og koma fólki á áfanga- stað. Ýmsir hnökrar hafa komið upp, töskur týnst og annað en það er sem betur fer bara lítill hluti af heildinni.“ Gríðarlegt álag hefur fylgt, símtölum í þjónustuver fjölgaði úr þúsund í þrjú þúsund á dag, heimsóknir á vef Ice- landair tvöfölduðust og annað í þeim dúr. Aðrir sátu með hendur í skauti Í flugheiminum, og raunar á ýmsum erlendum fjölmiðlum, hefur fram- ganga Icelandair í eldgosinu vakið athygli. Á meðan félagið greip til sinna ráða settust önnur flugfélög niður og biðu þar til rofaði til. Birk- ir segist hafa svarað fyrirspurnum margra fagtímarita og almennra fjöl- miðla um aðgerðir Icelandair. „Ekkert annað félag reyndi að færa sig til og halda uppi flugi þótt þau vissu að lok- anir væru yfirvofandi.“ Hann hrósar starfsfólki félagsins í hástert og segir sitt mat að enginn standi því snúning þegar á reyni. Þótt Icelandair sé í hópi stærstu fyrirtækja landsins og hafi umtals- verð erlend umsvif er það smátt félag á mælikvarða flugfélaga. Mörg stóru félaganna bera sig aumlega vegna áhrifa eldgossins á starfsemi þeirra og sjá fram á gríðarlegt tap. Hafa þau sum hver óskað eftir ríkisframlög- um og boðað fargjaldahækkanir til að mæta tapinu. Birkir segir hvorugt á dagskrá Icelandair, þar á bæ hafi verið ákveðið að blása til sóknar í samstarfi við stjórnvöld og ferðaþjónustuna með áðurnefndri markaðsherferð. Það kom til dæmis aldrei til greina að fljúga inn á svæði sem ekki voru lokuð en þó ekki talin fullkomlega örugg. Slík flug voru á ábyrgð flug- rekenda en við fórum alltaf eftir fyrirmæl- um flug- yfirvalda á Íslandi og í Evrópu. V ið hittumst að morgni fimmtudagsins, daginn sem flugið í Evrópu var komið í samt lag á ný eftir tveggja vikna alls- herjar óreiðu. Það eru fáir í höfuðstöðvunum, Birkir hvatti sitt fólk til að sofa út eftir tveggja vikna brjálæði. „Hér fundaði „crisis committee,“ fjórum til sex sinnum á dag,“ segir Birkir og bendir á fundarherbergi á göngu okkar eftir rangölunum. Á þeim fundum helstu stjórnenda og lykilstarfsmanna voru stóru ákvarð- anirnar teknar. Byggt var á upplýs- ingum um öskudreifingu, veðurspám, flugáætlunum, þörfum og öðru því sem máli skipti. Sveigjanleiki er helsti styrkurinn „Fyrst eftir að gosið hófst gátum við flogið frá Keflavík til Bandaríkjanna en Evrópa var að mestu lokuð. Þránd- heimur opnaðist um tíma og þangað flugum við fimm flug einn daginn og svo opnaðist fyrir flug til Glasgow og þangað fórum við þrisvar sama dag og náðum að flytja marga sem voru strand á Íslandi og í Evrópu. Viku síðar var svo í kortunum að Keflavík myndi lokast og þá var ákveðið að flytja mið- stöð millilandaflugsins til Glasgow. Sú ákvörðun var tekin daginn áður og nýju leiðarkerfi stillt upp í Glasgow á tólf tímum.“ Birkir segir þá aðgerð hafa verið umfangsmikla og kostnaðarsama. Og í raun sé ótrúlegt hve vel tókst til. „Við fluttum 150 starfsmenn til Glasgow og Akureyrar, það þurfti að setja upp innritunarborð, senda áhafnir til fleiri borga, hlaðmenn, afgreiðslufólk, flug- virkja, varahlutalager og fleira. Þetta var unnið hratt en tókst mjög vel.“ Ástæðuna fyrir því hve vel þetta gekk segir Birkir liggja í því sem hann telur helsta styrkleika Icelandair – sveigjanleika. „Við höfum markvisst búið félagið undir að geta brugðist hratt og vel við. Við höfum minnk- að yfirbygginguna, treystum á sér- fræðiþekkingu starfsfólks og felum því undir ýmsum kringumstæðum að taka ákvarðanir.“ Áætlunin í stöðugri endurskoðun Á meðan eldgosið hafði áhrif á flugum- ferð þurfti Icelandair að gefa út nýja flugáætlun oftar en 80 sinnum. Stund- um voru breytingarnar veigalitlar en í öðrum tilvikum þurfti að stokka hana algjörlega upp vegna lokana eða opn- ana flugsvæða. Heilt yfir tókst að halda uppi um 70 prósentum af farþegaflug- inu sem verður að telja býsna góðan árangur við þessar erfiðu aðstæður. Svo til óþekkt er að flugfélag flytji miðstöð flugs síns í einu vetfangi á milli landa á friðartímum, líkt og Icelandair gerði í síðustu viku. Flug- sögufróðir segja eina þekkta dæmið vera þegar Middle East Airlines flutti tengistöð sína frá Beirút í Líbanon til Damaskus á Sýrlandi eftir að Ísraels- menn höfðu eyðilagt Beirútflugvöll í sprengjuárás sumarið 2006. Ímynd landsins í húfi Birkir segir að gríðarlegir hagsmunir hafi verið í húfi þegar ákveðið var að flytja tímabundið til Glasgow. „Ef við Lögðu allt undir nema öryggið BIRKIR HÓLM GUÐNASON Tvö ár eru í dag frá því að Birkir tók við starfi framkvæmdastjóra Icelandair. Áður starfaði hann fyrir félagið í Danmörku, Þýskalandi og Banda- ríkjunum. Í stuttri framkvæmdastjóratíð sinni hefur Birkir þurft að takast á við bankahrun, verkföll og umfangsmestu flugraskanir sögunnar á friðartímum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Birkir áætlar að eldgosið hafi kostað flugfélagið Icelandair á milli 500 og 700 milljónir króna þegar tillit er tekið til kostnaðar og tekjutaps. „Mér sýnist að þetta séu um 50 milljónir á dag. Flutningurinn til Glasgow kostaði til dæmis 10-15 milljónir á dag. Á móti kemur að við sleppum við ákveðinn kostnað.“ Icelandair er eitt tólf dótturfélaga Icelandair Group. Móðurfélagið reiknar með 100 milljónum töpuðum á dag. Undir það falla Icelandair hótel, Flugfélag Íslands, Icelandair Cargo og fleiri félög í ferða- og flugþjónustu. „Svo á alveg eftir að koma í ljós hvert heildartekjutapið verður,“ segir Birkir. Algjör óvissa ríki um bókanir sumarsins. 125 milljónir í herferð Icelandair mun leggja 125 milljónir króna í markaðsherferð stjórnvalda og ferðaþjón- ustunnar í útlöndum. Bætist sú fjárhæð við þann milljarð króna sem fyrirtækið ver til markaðsstarfs erlendis. Birkir kveðst sannfærður um að þeir peningar skili sér til baka, fyrirtækinu og samfélaginu til hagsbóta. Reykjavíkurborg leggur til 100 milljónir. Ríkið leggur svo til krónu á móti krónu, allt upp að 350 milljónum króna. 500 milljónir tapaðar og framtíðin óljós Gríðarlegir hagsmunir voru í húfi þegar Iceland- air stóð frammi fyrir að hætta að fljúga eða flytja miðstöð flugsins tímabundið til Skotlands. Í samtali við Björn Þór Sigbjörnsson lýsir Birkir Hólm Guðnason fram- kvæmdastjóri áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á starfsemi Icelandair og hvernig brugðist var við ástandinu sem gat teflt ímynd Íslands og afkomu flugfélagsins í hættu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.