Fréttablaðið - 01.05.2010, Page 40

Fréttablaðið - 01.05.2010, Page 40
40 1. maí 2010 LAUGARDAGUR N okkrum mánuðum áður en syst- urnar Ebba og Medora hittust í fyrsta sinn höfðu þær komist að tilvist hvor annarrar. Faðir þeirra, J.T. Rorick, var banda- rískur hermaður sem bjó á Íslandi í tvö til þrjú ár undir lok seinni heimsstyrjaldar- innar. Hann átti í ástarsambandi við unga íslenska konu, Fríðu Jónsdóttur, sem alla tíð var kölluð Dídí. Ávöxtur þess sambands var Ebba, sem fæddist í febrúar árið 1945, nokkr- um mánuðum eftir að J.T. fór frá Íslandi. Yndisleg fósturfjölskylda Alla ævi hafði Ebba Unnur vitað að hún ætti bandarískan föður. Hún vissi líka að hann hafði verið giftur í Bandaríkjunum og að hún ætti þar tveimur árum eldri hálfbróð- ur, sem faðir hennar hafði ekki enn hitt, þegar hann var búsettur á Íslandi. Hún vissi ekki mikið meira um föður sinn, enda barst hann örsjaldan í tal á uppvaxtarárum henn- ar. Ebba, sem ólst ekki upp hjá móður sinni vegna erfiðra aðstæðna hjá henni, minnist þess ekki að hafa saknað þess að vera í sam- bandi við blóðföður sinn. „Ég lenti hjá alveg yndislegum fósturforeldrum, fullorðnum hjónum sem voru óskaplega góð við mig. Ég hef stundum furðað mig á því sjálf af hverju ég var ekki forvitnari um blóðföður minn. Kannski var það bara vegna þess að ég var svo ánægð. Ég hafði einskis að sakna.“ Þegar Ebba var tólf ára gömul kom mamma hennar í heimsókn og hafði með- ferðis þrjú bréf sem J.T. hafði skrifað henni, eftir að hann fór frá Íslandi, og tvær myndir af honum. Þær töluðu aldrei aftur um hann sín á milli eftir það. Ekki hrifinn af Ameríkubarni Ebba er Jakobsdóttir en fósturfaðir henn- ar hét Ingibergur. Þetta fannst krökkunum í kringum hana skrýtið og þau voru forvit- in um hver væri þá eiginlega pabbi hennar. Þegar hún sagði þeim að hann hefði verið amerískur hermaður höfðu þau mestan áhuga á því að vita hvort hann væri ríkur. Að öðru leyti fann hún ekki fyrir fordómum vegna þess. Hins vegar vissi hún að það truflaði nýjan eiginmann blóðmóður hennar að faðir hennar væri frá Ameríku. „Hann var ekkert hrifinn af því að búa með Ameríkubarni. Það hefði verið alveg í lagi ef faðir minn hefði verið Norðmaður eða Rússi. En hann var samt alla tíð góður við mig. Og sjálf hafði ég það svo gott hjá fósturforeldrum mínum að ég vildi hvergi annars staðar vera.“ Leit hafin að fjölskyldunni Það var ekki fyrr en Ebba var komin hátt á sextugsaldur að hún fór að hugsa um að reyna að hafa uppi á fjölskyldu föður síns í Bandaríkjunum. „Bréfin og myndirnar af honum voru alltaf einhvern veginn að detta upp í hendurnar á mér. En ég var alls ekki viss um hvort mig langaði til að gera eitthvað í þessu, mér fannst það satt best að segja of mikil fyrirhöfn. En þegar þarna var komið sögu var þetta orðið þannig að það var allt- af einhver að pota í mig. Svo dóttir mín fer á stúfana. Og hún var ekki lengi að finna heimasíðu um Rorick-ættina.“ Þær mæðgur fóru þó ekki lengra með leitina í það skiptið. En svo var það nokkr- um mánuðum seinna að Ebba var stödd í eldhúsinu á Bifröst þar sem hún og eigin- maður hennar störfuðu í langan tíma. Þar var fræðimaðurinn Ian Watson að störf- um. Hann varð vitni að því þegar Ebba var að tala við útlending og hafði orð á því að hún talaði nokkuð góða ensku. „Það liggur kannski bara í blóðinu,“ svaraði Ebba þá. Þá var forvitni Ians vakin og Ebba komst að því að hans aða láhugamál er ættfræði. Hann óskaði eftir því að fá að grafast frekar fyrir um fjölskylduna. Ebba ýtti því á undan sér í nokkra mánuði en lét loks til leiðast. Hann var fljótur að finna upplýsingar um fjölskylduna. Þá fyrst fékk Ebba að vita að hún ætti ekki bara bróðurinn Jay í Annapol- is heldur líka yngri systur í Oregon sem héti Medora. Eftir nokkurra mánaða umhugsun gaf Ebba Ian heimild til að hafa samband við þau símleiðis. Bæði systkini hennar tóku símtölum Ians vel, voru steinhissa en fyrst og fremst forvitin um þessa týndu systur. Og í því símtali kom líka í ljós að hún átti líka yngri bróður, Mark. Leyfðu mér að kynna mig Fyrsta bréfið sem Ebba fékk frá þeim syst- kinum í Bandaríkjunum var frá eldri bróður hennar. Það hófst með þessum orðum: „Allow me to introduce myself.“ Í bréfinu rakti hann hversu undrandi þau systkinin hefðu verið þegar þeim barst símtalið, en þau væru bæði jafnframt forvitin og áhugasöm um að hitta hana. Hann lýsti föður þeirra, sem hann sagði hafa verið hlýjan mann sem elskaði að tala, hlæja og rökræða. Hann sagði henni frá því að faðir hennar hefði látist úr hjarta- áfalli 63 ára gamall, þegar hann var úti að skokka. Ebba telur að áfallið hafi verið meira fyrir Medoru, sem hafði verið einkadóttir föður síns og alla tíð dreymt um að eignast dótt- ur. Engu að síður tók hún Ebbu líka hlý- lega. Í ljós kom að Medora hafði verið búin að skipuleggja ferð til Norðurlandanna með eldri dóttur sinni þetta sama sumar. Því var fyrsti fundur þeirra strax skipulagður í sambandi við það. Margt er líkt með skyldum Þegar Medora svo kom hingað til lands um sumarið biðu hennar margar óvæntar uppákomur. Sú fyrsta var að hitta fyrir þessa hlýju systur sína á flugvellinum. Önnur var þegar hún hitti son Ebbu, Ingiberg. Sá er svo nauðalíkur afa sínum að það eitt að sjá hann sló hana alveg út af laginu. Fleiri líkindi eru með fjölskyldunum, bæði útlitsleg og karakt- ereinkenni. „Yngri dóttir Medoru er á kafi í þessum andlegu málum, eins og ég. Svo er dóttir mín svo nauðalík Medoru á margan hátt, bæði í sér og í útliti,“ segir Ebba, sem hefur einu sinni hitt Medoru aftur, þegar hún var í heimsókn hjá dóttur sinni í Kali- forníu. Yngri bróðurinn á hún ekki von á að hitta, enda er hann sjúklingur og hafi lítil samskipti við fjölskylduna. Hún vonast eftir að hitta eldri bróður sinn einn daginn. Ebba er ánægð með og þakklát yfir að við- brögð systkina hennar hafi verið svo jákvæð. Annars segist hún hafa verið við öllu búin. „Ég fer í gegnum lífið með það hugarfar að ég hefði ekki látið það á mig fá hefðu þau ekki viljað kynnast mér. Ég hefði bara skilið það og ekki látið það trufla mig. Ég hefði frekar hugsað: æ hvað þetta er leiðinlegt fyrir þau að missa af því að kynnast svona æðislegu fólki á Íslandi,“ segir hún og hlær. Lifði í ólíkum heimum J.T. Rorick dvaldi á Íslandi í tvö til þrjú ár. Samkvæmt bréfunum sem hann sendi móður Ebbu fór hann frá Íslandi til Englands og þaðan til Belgíu, Frakklands og Þýskalands. „Á bréfunum er greinilegt að það var mjög skemmtilegt hjá honum. Hann var að skrifa til móður minnar hvernig lífið væri þarna og hvernig stúlkurnar væru og þar fram eftir götunum. Medora systir mín fékk líka hálfgert áfall þegar hún sá bréfin, enda sá hún þarna glænýja hlið á ástkærum föður sínum.“ Þegar J.T. kom aftur til Bandaríkjanna, þegar stríðinu var lokið, hafði hann aldrei framar samband við Dídí ástkonu sína og dótturina á Íslandi. Ebba vissi því, sem fyrr segir, lítið um hann. Því voru næstu mánuð- ir áhugaverðir þegar Ebbu bárust frá systur sinni ítarlegar upplýsingar um föður þeirra og ættina. Hún komst að því að þegar hann kom aftur heim til Bandaríkjanna hafi hann upphaflega ætlað að læra óperusöng, en hann hafi hins vegar orðið sögukennari og starfað sem slíkur allt sitt líf. Alltaf í langlínusambandi Það yfirnáttúrulega hefur haft sitt að segja með að leiða Ebbu og fjölskyldu hennar í Bandaríkjunum saman. Sjálf lýsir hún því þannig að hún sé í meira langlínusambandi en margur. „Það stóð meðal annars alltaf maður í svefnherberginu mínu, hár og grannur í svörtum frakka. Svo var ég í nuddi í Borgar- nesi hjá konu sem heitir Ebba og hún segir: „Heyrðu, það stendur hérna hár og grannur maður í svörtum frakka.“ Þá var mér allri lokið. Fyrst hann er farinn að elta mig í nudd hlýtur hann að eiga eitthvað brýnt erindi við mig, hugsaði ég. Þegar ég svo sá myndirnar frá fjölskyldunni sá ég að þetta var afabróð- ir minn í föðurætt. Þau hafa bara verið alveg ákveðin í því að koma þessum tengslum á!“ Ebba segist alla tíð hafa haft það á tilfinn- ingunni að hún hafi verið getin í ást. Hún hafi nú fengið sannfæringu fyrir því. „Mér fannst það bara bráðfyndið þegar ég sá þau saman í eldhúsinu á Bifröst. Þau eru mjög ánægð saman í dag. Ég held að aðstæður hans hafi bara verið þannig á þessum tíma hann gat ekki verið með móður minni.“ Hittust í fyrsta sinn um sextugt „Á Íslandi heilsast ættingjar með knúsi!“ Þannig tók Ebba Unnur Jakobsdóttir á móti systur sinni, Medoru, með opnum faðmi þegar þær hittust fyrst í Leifsstöð sumarið 2008. Þá voru þær 60 og 63 ára. Nokkrum mánuðum áður hafði hvorug hugmynd um tilvist hinnar. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir tók hús á Ebbu sem sagði henni söguna af ástarsambandi hermannsins J.T. Roricks og hinnar íslensku Dídíar og ákvörðuninni um að leita róta sinna á fullorðinsaldri, með hvatningu frá handanheimum. NAUÐALÍK FEÐGIN Ebba Unnur Jakobsdóttir ber sterkan svip af föður sínum, sem hún hitti aldrei í lifandi lífi. Það gerir sonur hennar einnig, sem er lifandi eftir- mynd afa síns. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MEÐ MYNDINA AF PABBA Medora, yngri systir Ebbu, kom til Íslands sumarið 2008 ásamt dóttur sinni. Þá hittust þær systur í fyrsta sinn. MYND/ÚR EINKASAFNI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.