Fréttablaðið - 01.05.2010, Qupperneq 45
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Líklega er það draumur hvers mat-
reiðslumanns að sigra hina frægu
Bocuse d‘Or-keppni sem nefnd
er eftir frægum frönskum mat-
reiðslumanni, Paul Bocuse.
Þráinn Vigfússon, matreiðslu-
maður á Grillinu á Hótel Sögu, fær
tækifæri til að spreyta sig í keppn-
inni en hann mun taka þátt í for-
keppni í Sviss hinn 8. júlí.
„Forkeppni er haldin í þremur
álfum en í Evrópu keppa tuttugu
lönd,“ segir Þráinn sem fer til
Sviss ásamt aðstoðarmanni sínum
Bjarna Siguróla Jakobssyni og
tveimur hjálparhellum, þeim Atla
Þór Erlendssyni og Tómasi Inga
Jórunnarsyni.
Keppnin snýst um að búa til
tvo rétti, annars vegar kjötfat úr
kálfakjöti frá Sviss og hins vegar
fiskfat úr lúðu frá Noregi. Fjórtán
dómarar skera síðan úr um hverjir
taka þátt í aðalkeppninni.
Síðustu vikur í lífi Þráins hafa
snúist að miklu leyti um æfingar
enda æfir liðið sex sinnum í viku.
Hann hóf helgina á því á föstu-
daginn að elda réttina fyrir blaða-
menn. „Þemað í kjötréttinum er
birki en merkilegt nokk er þemað
í fiskréttinum hraun,“ segir Þrá-
inn en sú ákvörðun tengist ekki
gosinu í Eyjafjallajökli enda var
hún tekin í desember. „En þetta er
skemmtileg tilviljun,“ segir Þrá-
inn sem mun nota reyk og gos auk
þess sem ætilegt hraun verður á
fiskinum.
Í gærkvöldi var haldinn stuttur
fundur um framhaldið og í dag er
ætlunin að halda stutta undirbún-
ingsæfingu. Í kvöld ætlar Þráinn
hins vegar að kúpla sig frá öllu
saman og skella sér í Borgarfjörð-
inn í afmæli ömmu sinnar sem
haldið verður í sumarbústað.
En er hann þá ekki látinn elda?
„Nei, ég hef sloppið ótrúlega vel
við það. Mamma er matreiðslu-
maður líka þannig að konurnar
hafa séð um þetta,“ segir hann
glettinn.
solveig@frettabladid.is
Hugar að birki og hrauni
Þráinn Vigfússon, matreiðslumaður á Grillinu, undirbýr sig fyrir Bocuse d‘Or-keppnina. Hann byrjaði
helgina á því að elda fyrir blaðamenn en ætlar svo að hvíla hugann í sumarbústað í Borgarfirði.
ÚtileGukOrtið 2010 er komið út. Það veitir tveim-
ur fullorðnum og allt að fjórum börnum nær ótakmarkað-
an aðgang að yfir 39 tjaldsvæðum á landinu. Kortið kostar
13.900 krónur en fjölmörg stéttar- og verkalýðsfélög bjóða
það á sérkjörum til félagsmanna. www.utilegukortid.is
Fr
ét
ta
b
la
ð
ið
/V
a
ll
i
Þráinn og aðstoðar-
menn hans æfa sex
sinnum í viku til að
fullkomna réttina sem
þeir munu elda fyrir
dómarana í bocuse
d‘Or. Hann mun vinna
með íslenskt birki,
hraun og reyk.
Mercedes Benz Sprinter
518 CDi
Nýr bíll, 19 farþega.
Mjög vel útbúinn
Verð eur 65,000
Upplýsingar í síma:
8940278
Til sölu og afgreiðslu fyrir sumarið
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 7. maí n.k.
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
leyndarmál jökla og fegurð
landslags á myndakvöldi FÍ
Næsta myndakvöld Ferðafélags Íslands er í dag miðvikudaginn 17. febrúar
í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6 og hefst kl. 20.00 að vanda.
Myndakvöldið er að þessu sinni í umsjá hjónanna Helga Björnssonar jökla-
fræðings sem sýnir ljósmyndir af íslenskum jöklum og fjallar um hið sýnilega
og ósýnilega landslag sem jöklarnir búa yfi r. Bók Helga, Jöklar á Íslandi sem
kom út fyrir síðustu jól hefur hvarvetna vakið aðdáun enda um stórvirki að
ræða. Jöklar á Íslandi fékk hin íslensku bókmenntaverðlaun í fl okki fræðirita.
Eftir hlé heldur Þóra Ellen Þórhallsdóttir líffræðingur fyrirlestur um fegurð
landslags en Þóra hefur gert tilraunir til þess að meta fegurð landslags með
vísindalegum aðferðum og eru niðurstöðurnar allfróðlegar.
Aðgangseyrir kr. 600. Innifalið kaffi og meðlæti
MOrGNAr Á FJÖlluM
Mánudaginn 3. maí hefjast hinar árlegu
morgungöngur Ferðafélags Íslands.
Vi tu ekki a ga á fjöll með glöðu fólki dag hvern klukkan
sex að morgni og mæta svo spilandi frískur til vinnu?
Brottför er kl. 06.00 frá Ferðafélagi Íslands í Mörkinni 6. Þar getur fólk sameinast í
bíla eða komið beint að upphafsstað göngu.
Í ár verður gengið á eftirtalin fjöll:
Mánudag 3. maí: Helgafell við Hafnarfjörð.
Þriðjudag 4. maí: Reykjaborg í Mosfellsveit.
Miðvikudag 5. maí: Mosfell í Mosfellsdal.
Fimmtudag 6, maí: Vífi lfell
Föstudag 7. maí: Úlf rsfell
Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir hafa umsjón
með morgungöngunum.
Þátttaka er ókeypis og öllum heimil. Göngumenn skulu vera klæddir eftir veðri.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Borgardekk