Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 48
BARNALEIÐSÖGN verður í Þjóðminjasafninu á morg-
un klukkan 14. Leiðsögnin er ætluð börnum á aldrinum 5
til 8 ára og tekur um 45 mínútur. www.natmus.is
„Mig langaði til að leika mér
frjálst með formið, losa það við
alla graf ík og sjá hvernig það stæði
eitt og nakið með sjálfu sér eins
og fagur skúlptúr,“ segir María
Manda umbúðahönnuður, sem um
þessar mundir sýnir umbúðir með
nýju sniði í Handverki og hönnun,
Aðalstræti 10, en slík sýning hefur
aldrei birst Íslendingum áður en
er hvalreki þeim sem hafa áhuga á
hönnun.
María Manda lærði upphaflega
fata- og búningahönnun í Banda-
ríkjunum og starfaði áratylft í sínu
fagi áður en hún söðlaði um og fór
yfir í umbúðahönnun.
„Mýmargar þeirra framleiðslu-
umbúða sem landsmönnum eru
kunnugar úr matvöruverslunum
eru mitt verk; ekki síst form þeirra,
en aðrir hafa einnig séð um grafík-
ina. Stundum verður maður pínulít-
ið sár þegar langur tími hefur farið
í hönnun umbúðaforms en áhorf-
andinn sér ekkert nema grafíkina
utan á, burtséð frá fegurð formsins.
Einmitt þess vegna langaði mig til
að leggja áherslu á umbúðahönn-
un sem form, án þess að vera með
sérstaka vöru í huga,“ segir María
Manda sem hugsaði lengi um hvaða
leið hún ætti að fara á þessari fyrstu
sýningu sinni, þar sem umbúða-
hönnun er í meira lagi víðtæk.
„Ég hugsaði lengi um réttu nálg-
unina, því ég hefði auðveldlega
getað sýnt umbúðir með áprentaðri
grafík og farið ótal aðrar leiðir, en
er fyrir vikið komin með hugmynd-
ir að fjölmörgum sýningum til við-
bótar,“ segir María Manda hlátur-
mild.
„Formhönnun umbúða er veru-
lega sérhæfð, unnin á sérstöku
umbúðaforriti þar sem önnur hugs-
un tíðkast en í grafískri hönnun. Í
reikninginn þarf að taka hvernig
pakka á vörunni, hvernig vara fer í
umbúðirnar, framsetningu í versl-
unum, flutning, stöflun og fleira.
Möguleikarnir eru óþrjótandi og
í raun hægt að útfæra hvaða hug-
mynd sem er, og æ fleiri að vakna
til vitundar um hve umbúðir skipta
miklu máli, því vara getur dáið ef
umbúðirnar eru ekki fallegar en
líka selst í gríð og erg ef hún vekur
athygli og hrífur.“
Sýning Maríu Möndu er opin
virka daga frá klukkan 9 til 18 og
um helgar frá 12 til 17.
Sjá nánar á www.mmhonnun.is
thordis@frettabladid.is
Deyja án formfegurðar
Umbúðir eru allt í kringum okkur; öllu er pakkað inn. Formfagrar, látlausar eða ágengar, en nánast alltaf
forvitnilegar um leynt eða ljóst innihald sitt. Umbúðir Maríu Möndu standa vaktina naktar og sér.
María Manda er umbúðahönnuður sem sýnir nú ægifagrar umbúðir sínar sem stríp-
aðar eru grafík eða öðrum upplýsingum til neytandans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ferna séð í nýju ljósi. Lögð var mikil vinna í hverjar umbúðir.
Umbúðir Maríu Möndu eru margar hverjar listrænar og fagrar.
Kjóll
6.990 kr.
l í svörtu líka
Smáralind
Full búð af nýjum vörum í
Peysuskyrta
4.990 kr.
Pils
3.990 kr.
Kjóll
7.990 kr.
l í svörtu líka
Kjóll
7.990 kr.
Peysa glans
5.990 kr.
Opið frá 11-18.00 í Smáralind