Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 49
Sérfræðingur – Customer Service
Customer Service sér um samskipti við erlenda viðskiptavini vegna vörusölu, í því felst móttaka, afgreiðsla og
eftirfylgni pantana ásamt samskiptum við viðskiptavini, söluskrifstofur Medis erlendis og framleiðslueiningar Actavis.
Deildin ber jafnframt ábyrgð á reikningagerð vegna vörusölu og kostnaðareftirliti.
Starfið felur í sér samskipti við erlenda viðskiptavini vegna vörusölu, þ.e. móttaka og afgreiðsla pantana, ásamt
tilheyrandi eftirfylgni og stuðningi við viðskiptavini Medis og framleiðslueiningar Actavis.
Við leitum að háskólamenntuðum einstaklingi með góða ensku- og frönskukunnáttu, bæði í töluðu og rituðu máli.
Gerð er krafa um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð. Góð tölvukunnátta og samskiptahæfni er einnig mikilvæg.
Medis er eitt af dótturfyrirtækjum Actavis Group og annast sölu á lyfjum og lyfjahugviti
fyrir samstæðuna til annarra lyfjafyrirtækja sem selja lyf undir eigin vörumerkjum.
Viltu vera
í okkar liði?
Nánari upplýsingar um störfin veita Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is
og Ragnheiður Dögg Ísaksdóttir, risaksdottir@actavis.com
Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 9. maí nk.
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu
hágæðasamheitalyfja. Fyrirtækið er með starfsemi í 40 löndum. Actavis
hf. og Medis eru dótturfyrirtæki samstæðunnar á Íslandi og eru staðsett í
Hafnarfirði. Hjá Actavis á Íslandi starfa um 600 starfsmenn á ýmsum sviðum.
Verkefnastjóri – Global Products Master Data Manager
Starfið tilheyrir Portfolio Management innan Actavis Group. Portfolio Management
stýrir vali á nýjum lyfjum til þróunar, ásamt vali á þeim lyfjum sem Actavis mun selja
viðskiptavinum á hverjum markaði fyrir sig, auk þess að fylgjast með áhugaverðum
tækifærum sem myndast á lyfjamarkaði á hverjum tíma.
Starfið felur í sér að skilgreina og innleiða samræmdar nafngiftir fyrir heiti, lyfjaform
og styrkleika allra lyfja samstæðunnar í upplýsingakerfum Actavis. Verkefnastjórinn
heldur utan um skipulagningu og viðhald á þessum grunngögnum samstæðunnar.
Mikið samstarf er við þróunarsvið Actavis, starfsmenn gagnavöruhúss (Data
Warehouse) samstæðunnar og upplýsingatæknisvið fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf í lyfjafræði eða sambærilega menntun.
Starfsreynsla af lyfjamarkaðinum og reynsla af notkun ERP tölvukerfa er kostur.
Viðkomandi þarf að vera skipulagður, nákvæmur og útsjónarsamur. Góð
enskukunnátta er nauðsynleg, bæði í töluðu og rituðu máli og hæfni í mannlegum
samskiptum er einnig mjög mikilvæg.
Vélamaður í lyfjapökkun
Pökkunardeild er hluti af framleiðslusviði Actavis hf. Í deildinni fer fram pökkun
á töflum og hylkjum í þynnur, karton og glös. Framleiðslulínur pökkunardeildar
innihalda flókinn vélbúnað og starfsemin kallar á að breytingar og stillingar á vélum
taki sem stystan tíma.
Starfið felur í sér stillingar og breytingar á flóknum vélbúnaði og uppsetningu á
vélum fyrir mismunandi keyrslur. Starfsfólk í pökkunardeild fer í gegnum mikla
þjálfun og við leitum að einstaklingi sem getur tileinkað sér nákvæm og sérhæfð
vinnubrögð ásamt því að geta unnið hratt undir álagi. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Við leitum að einstaklingi með iðnmenntun, svo sem vél- eða bifvélavirkjun, eða
sambærilega menntun og viðkomandi þarf að hafa reynslu af viðgerðum á vélum
og búnaði. Snyrtimennska og jákvætt viðhorf eru skilyrði.
Starfsmaður í tæknideild
Tæknideild er hluti af starfsemi Actavis hf. og sér um viðhald og eftirlit með
tækjabúnaði í verksmiðju og rannsóknarstofu fyrirtækisins, sem staðsett er í
Hafnarfirði.
Starfið felur í sér fyrirbyggjandi viðhald, viðgerðir, eftirlit og breytingar á tækjabúnaði
framleiðslu og rannsóknarsviðs ásamt skiptingum á milli vörutegunda og uppstart
á pökkunarlínum. Einnig felst í starfinu þátttaka í uppsetningu á fyrirbyggjandi
viðhaldi, nýjum tækjabúnaði og þátttaka í gildingarvinnu og kvörðunum á
tækjabúnaði Actavis. Unnið er eftir skriflegum leiðbeiningum og öll viðhaldsvinna
er skráð í þjónustuskýrslur/viðhaldsforrit. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum
vöktum, auk bakvakta.
Tæknimaður þarf að hafa mikla reynslu af viðgerðum á vélbúnaði, stýringum og
rafbúnaði. Við leitum að einstaklingi með vélfræðimenntun eða sambærilega
menntun. Nákvæmni, snyrtimennska og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvæg.
Enskukunnátta og góð tölvuþekking nauðsynleg.
Hugbúnaðarsérfræðingur
Upplýsingatæknideild Actavis hf. sér um þróun tölvu – og upplýsingatæknimála
Actavis á Íslandi, ber ábyrgð á rekstri tölvukerfa og tölvubúnaðar Actavis á Íslandi,
sér um notendaþjónustu og tölvukennslu, aðgangsstjórnun og umsjón með
afhendingu tölvubúnaðar og fjarskiptabúnaðar til starfsmanna o.fl.
Starfið felur meðal annars í sér þjónustu og viðhald á upplýsingakerfum Actavis á
Íslandi, samskipti við ráðgjafa og þjónustufyrirtæki Actavis, ásamt því að aðstoða
starfsmenn við daglega vinnu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Við leitum að kerfis- eða tölvunarfræðingi, en einnig kemur einstaklingur með
sambærilega menntun til greina. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af greiningu
og þróun upplýsingakerfa (fjármála- og birgðakerfa), kerfisgreiningu og forritun.
Þekking á gagnagrunnum eins og SQL og Oracle er kostur. Einnig er mikilvægt að
viðkomandi búi yfir ríkri þjónustulund.
Actavis býður upp á…
snyrtilegan og öruggan vinnustað
fjölskylduvænt starfsumhverfi
góðan starfsanda
gott mötuneyti
fræðslu og þjálfun
iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni sem
sinna heilsuvernd starfsmanna
árlegan styrk til íþróttaiðkunar auk
fræðslustyrks
öflugt starfsmannafélag
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441