Fréttablaðið - 01.05.2010, Síða 59
LAUGARDAGUR 1. maí 2010 11
KYNNINGARFUNDUR UM LEIÐARLJÓS
SVÆÐISSKIPULAGS SUÐURNESJA
Sveitarfélögin á Suðurnesjum, Reykjanesbær,
Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið
Garður og Sveitarfélagið Vogar, skipulagsnefnd
Keflavíkurflugvallar og Varnarmálastofnun
Íslands vinna að nýju svæðisskipulagi Suðurnesja.
Fyrsti áfangi verksins var að skilgreina sameiginlega
hagsmuni, þau viðfangsefni sem svæðisskipulagið
þarf að fjalla um og þau leiðarljós og markmið sem
skipulagsvinnan skal fylgja.
Til að kynna fyrsta áfanga verkefnisins boðar
samvinnunefndin til opins kynningarfundar um:
Leiðarljós, markmið og áherslur fyrir vinnu
við Svæðisskipulag Suðurnesja
Niðurfellingu Svæðisskipulags: Reykjanesbær,
Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Keflavíkur-
flugvöllur 1995-2015
Fundurinn verður haldinn mánudaginn 3. maí
kl. 17:30 til 18:30 í fyrirlestrarsal íþróttaakademí-
unnar við Krossmóa 58 í Reykjanesbæ.
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja
Til sölu
úr þrotabúi
Pönnu Pizza ehf.
Til sölu er ýmis konar lausafé tengt rekstri pizza veitinga-
staða s.s. pizzaofnar, borð, stólar, borðbúnaður, kælar,
kassakerfi og ýmis önnur áhöld og tæki til veitingareksturs.
Búnaðurinn verður til sýnis sem hér segir:
Á Hilton Reykjavík Nordica (áður Pizza Hut), þriðju-
daginn 4. maí n.k. kl. 12.00-14.00
Á Sprengisandi (áður Pizza Hut), þriðjudaginn 4. maí
n.k. kl. 15.00-17.00
Tilboðum skal skilað til Helga Jóhannessonar hrl,
skiptastjóra, LEX ehf., Borgartúni 26, Reykjavík,
helgi@lex.is, fyrir kl. 12.00, fi mmtudaginn 6. maí n.k.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Lúðvígsson s. 893 1030
Dönskukennari óskast
Menntaskólinn Hraðbraut óskar að ráða dönsku-
kennara næsta vetur. Um er að ræða 65% starf.
Áhugasamir sendi upplýsingar um menntun og
fyrri störf á netfangið ohj@hradbraut.is.
Auglýsing um skipulag í Kópavogi.
Kópavogsbær
Skíðasvæðið í Bláfjöllum. Deiliskipulag.
Í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breyttu
deiliskipulagi skíðasvæðisins í Bláfjöllum í Kópavogi. Í tillögunni felst m.a. að:
• komið verður fyrir snjóframleiðslukerfi fyrir helstu skíðabrekkur svæðisins og stuttan gönguhring,
• gert er ráð fyrir breytingum á staðsetningu skíðalyfta,
• gert er ráð fyrir nýjum byggingarreitum fyrir skála, þjónustubyggingar sem og önnur mannvirki á skíðasvæðinu auk þess sem núverandi
byggingarreitir breytast
• gert er ráð fyrir aukinni landmótun og rafl ýsingu á svæðinu m.a. í tenglum við skíðagöngu
Tillagan er sett fram á uppdráttum, greinargerð og skilmálum; Skíðasvæðið í Bláfjöllum. Deiliskipulagsbreyting - Tillaga, dags. 12. mars 2010.
Jafnframt fylgir tillögunni: Bláfjöll. Umhverfi sskýrsla. Deiliskipulagsbreyting - Tillaga dags. mars 2010. Nánar vísast til kynningargagna.
Tillagan ásamt umhverfi sskýrslu verður til sýnis á Skipulags- og umhverfi ssviði Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til
fi mmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00 frá 4. maí 2010 til 8. júní 2010. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is.
Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skrifl ega Skipulags- og umhverfi ssviði Kópavogs eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 22. júní 2010.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Skipulags- og umhverfi ssvið
Fundur
Útboð
Skipulag
Aðeins reyklausir einstaklingar koma til greina í starfið.
Vegna ört stækkandi hóps viðskiptavina Vöku
óskum við eftir starfsmanni við þjónustu á
dekkjaverkstæði.
Hæfniskröfur:
· Vanur vinnu á dekkjaverkstæði.
· Gott viðmót og áhugi að bæta sig í starfi.
· Stundvísi og snyrtimennska.
· Góð mannleg samskipti.
· Öguð vinnubrögð.
Áhugasamir geta sótt um starfið með því að senda umsókn
á starf@vakahf.is
VAKA er eitt fjölhæfasta bílaþjónustufyrirtæki landsins og
er í örum vexti. Félagið rekur öflugt dekkjaverkstæði,
viðgerðaverkstæði, bílapartasölu, dráttarbílaþjónustu og
úrvinnslu bíla auk þess að vera með uppboð á vegum
sýslumanna. VAKA er nýflutt í glæsilega aðstöðu að
Skútuvogi 8 þar sem öll starfsemi félagsins fer fram.
Starfsmaður á
dekkjaverkstæði
Starf á ferðaskrifstofu
Við leitum að starfsmanni á skrifstofu okkar í fullt starf.
Starfssvið: Í bókunardeild við skipulagningu
göngu- og náttúruskoðunarferða, móttöku hópa og
einstaklinga (bílaleiga), aðallega frá þýskumælandi
löndum, auk ýmissa tilfallandi verkefna.
Umsækjendur þurfa að hafa mjög góða
þýskukunnáttu, í rituðu og töluðu máli auk góðrar
enskukunnáttu, geti unnið sjálfstætt og hafi þekkingu
og áhuga á Íslandsferðum og útivist.
Menntun í ferðamálum
og/eða reynsla er ótvíræður kostur.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Vinsamlega sendið skriflega umsókn ásamt
ferilsskrá til Ferðaskrifstofu Harðar Erlingssonar með
tölvupósti á anna@naturreisen.is eða bréfleiðis á
Tjarnargötu 4, 101 Reykjavík fyrir 10.5.2010.
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…