Fréttablaðið - 01.05.2010, Síða 65
LAUGARDAGUR 1. maí 2010 5
List án landamæra stendur yfir
þessa dagana. Um helgina er
tvennt á dagskrá.
Hugarafl stendur fyrir svokölluðu
Geðveiku kaffihúsi í dag í Hinu
húsinu frá 13 til 17. Boðið verður
upp á valdeflandi bakkelsi, söng og
klikkað kaffi. Á handverksmark-
aðnum má sjá og kaupa handverk,
meðal annars frá Ásgarði, Bjarkar-
ási, Gylfaflöt og Iðjubergi.
Á morgun klukkan 16 verður
opnuð hönnunarsýning í Norræna
húsinu. Sýnd eru verkefni eftir
nemendur á Myndlista- og hönnun-
arsviði Myndlistaskólans í Reykja-
vík í samstarfi við Lyngás.
Nemendur heimsóttu Lyngás,
kynntust starfinu þar og aðstæð-
um. Áhugaverðir fletir voru kann-
aðir meðal annars út frá hönnun
á húsgögnum, stoðtækjum, leik-
föngum, fatnaði og myndverkum.
Á sýningunni gefur að líta verk
eftir fjóra nemendur, en þeir eru
Eva Arnfríður Aradóttir, Hjörtur
M. Skúlason, Sigríður Þóra Óðins-
dóttir og Ragna S. Bjarnason.
Geðveikt kaffihús
Geðveikt kaffihús verður í Hinu húsinu í dag frá 13 til 17.
„Þetta er fyrsta árið sem vormark-
aður er haldinn hér,“ segir Berg-
þóra Einarsdóttir, starfsmaður
hjá Skógræktarfélagi Reykjavík-
ur, um markaðinn á Elliðavatni.
„Náttúran er að lifna af vetrar-
dvalanum við vatnið og mark-
aðurinn tekur mið af því,“ segir
hún. „Hér eru landnámshænur
vappandi um eins og sýningar-
dömur og egg úr þeim til sölu.
Trérennismiðir eru með sölusýn-
ingu og Jón Guðmundsson garð-
yrkjumaður, sem er frumkvöðull í
ræktun ávaxtatrjáa, er með fyrir-
lestur um þau. Svo verður fræðsla
um fuglana sem eru nýkomnir og
fiskifræðingar upplýsa fólk um
lífríkið í vatninu.“
Eins og að líkum lætur er eldi-
viður úr skóginum og trjáplöntur
í úrvali til sölu á Elliðavatni og til-
boð er á veiðivörum. Einnig fæst
þar lífrænt ræktað grænmeti frá
Sólheimum. „Við erum líka með
nýbakað kerfilsbrauð,“ segir
Bergþóra og verður að útskýra
það nánar. „Kerfillinn er bæði
bragðgóður og bætir meltinguna.
Við notum hann líka í jurtateið
sem við bjóðum upp á úti á hlaði
og úr náttúrulegum kryddum.“
Bergþóra á von á leikflokki frá
Sólheimum og ef hestaflensan
setur ekki því meira strik í reikn-
inginn gefst ungum gestum kostur
á að skreppa þar á hestbak. „Þetta
er það helsta sem við stöndum
fyrir hér á Elliðavatni í tilefni af
komu vorsins,“ segir hún og getur
þess að markaðurinn er opinn frá
tíu til fimm. gun@frettabladid.is
Vori fagnað á Elliðavatni
Á Elliðavatni efnir Skógræktarfélag Reykjavíkur til markaðar nú tvær fyrstu helgarnar í maí. Margt
áhugavert er þar til fróðleiks, eignar og hressingar, renndir trémunir til sölu og te úr grösum jarðar.
„Náttúran er að lifna af vetrardvalanum og markaðurinn tekur mið af því,“ segir Bergþóra á Elliðavatni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jóna Þorvaldsdóttir gefur gestum innsýn
í töfraheim sígildra ljósmyndunaraðferða
í síðasta sinn í dag frá 14 til 16. Sýningu
hennar, Skynjanir, í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur lýkur 9. maí.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is