Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 76
44 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
E
ins og flestir tæknifíklar ættu nú
orðið að vita kom iPad-spjaldtölv-
an frá Apple á markað í Banda-
ríkjunum á laugardag fyrir
páska. Gríðarleg eftirvænting
hafði skapast í kringum tölvuna,
eða allt frá því Steve Jobs, gúrúskipstjórinn
hjá Apple, svipti hulunni af henni í lok jan-
úar. Spennan er skiljanleg. Þarna er örugglega
á ferðinni einhver þægilegasta afþreyingar-
græja sem hægt er að hugsa sér.
Stóri bróðir iPod Touch
Það er ekki að ófyrirsynju að líkja má iPad-
inum við stóra bróður iPod Touch. Báðar tölv-
urnar keyra á iPhone-stýrikerfinu, eru með
sambærilegt magn af óútskiptanlegu skyndi-
minni og hafa yfir næsta sama hugbúnaði að
ráða.
Stærðin er nánast það eina sem iPad-tölvan
hefur fram yfir litla bróðurinn. Og í henni er
nú líka galdurinn fólginn. Skjástærðin – tölv-
an er fátt annað en hann – gerir það að verk-
um að hún fer vel í kjöltu. Í ofanálag skilar
hraði Apple-örgjörvans og fín hljómgæði því
að bæði netráp, myndræn upplifun og lestur
bæði bóka og tímarita er þægilegri með stóra
bróður en þeim litla.
Gallalaus er tölvan hins vegar ekki enda
hægt að keyra mörg forrit í einu (e. mult-
itask) að því undanskildu að hægt sé að hlusta
á tónlist með bóklestrinum. Þá vantar nauð-
synlega myndavél á græjuna svo hægt verði
að ræða við ættingja og vini líkt og á fartölv-
um. Reikna má með því að flestir vankantar
verði sniðnir af í framtíðinni auk þess sem
uppfærsla á iPhones-stýrikerfinu býður upp
á keyrslu margra forrita.
Tölva fyrir fimm ára
Tölvan sem hér er prófuð er með 16 GB
skyndiminni með nokkur uppsett forrit og
leiki auk nokkurra bóka og tímarita sem
höfðu verið keypt.
Lítið mál var að tengja tölvuna við staðar-
net heimilisins (WiFi), aðeins þurfti að fara í
stillingar og velja hvaða neti skyldi tengjast.
Mesta málið var í raun að stimpla inn kóða
beinisins (e. routers) enda lyklaborð iPads-
ins ekkert til að hrópa húrra fyrir. Þetta tók
engu að síður innan við mínútu.
iPad-tölvan á það sammerkt með litla bróð-
urnum iPod Touch að vera með snertiskjá.
Skjárinn er góður og undantekningartilfelli
að hann virkaði ekki sem skyldi. Þá sjald-
an að slíkt gerðist var hann orðinn fitugur
og var einfalt má að strjúka yfir hann með
hreinni og þurri tusku (eða góðri peysuermi
líkt og stundum kom fyrir).
Þessi einfalda notkun gerir það að verk-
um að börn eru fljót að tileinka sér tæknina.
Sonur minn fimm ára áttaði sig fljótt á því
að hann þurfti að fletta örsjaldan yfir skjá-
inn til að opna teiknimyndablað frá Marvel.
Nokkrar flettingar til viðbótar dugðu til að
finna bílaleikinn Real Racing HD, alveg
hreint brilljant leik í frábærum gæðum sem
litlir guttar geta skemmt sér yfir með feðr-
um sínum. Þegar sá tveggja ára uppgötvaði
Latabæ á YouTube með hjálp föðurins varð
fyrst fjandinn laus.
Bíó í kjöltunni
Tölvan sem hér var prófuð var með aðgang
að iTunes-netversluninni. Með iPad-tölv-
unni opnast möguleikarnir í raun og sann
enda fátt skemmtilegra en sitja uppi í sófa
og vafra um tónlistardeildina. Þá er sömu-
leiðis nauðsynlegt að kíkja við í gríðarstórri
sjónvarps- og kvikmyndadeildinni. Þetta er
beinlínis ævintýraheimur þeirra sem áður
hafa staðið við dyrnar en ekki haft aðgangs-
kort. Hér skal ekki farið yfir þann mýgrút
af tónlist og myndum sem bæði er hægt að
kaupa og leigja. Sýnishorn þeirra mynda
sem í boði eru skila sér í frábærum gæðum
á sama tíma og horft er og fullu niðurhali náð
áður en myndin er á enda. Þvílíkur er kraftur
nettengingarinnar, sem tölvur heimilisins
hafa aldrei náð að fanga. Eini teljandi hikst-
inn var í netútgáfum íslensku dagblaðanna á
PDF-formi. Sem dæmi tók það lengstan tíma
að ná í helgarútgáfu Fréttablaðsins. Það tók
innan við mínútu, sem telst til eilífðar miðað
við aðra vinnslu á iPad-tölvunni.
Ekkert ríkissjónvarp
Netráp var einkennilegt í fyrstu með iPad-
tölvunni. Það skrifaðist öðru fremur á skort
á flash-tækni, sem Apple styður ekki. Það
kom þó ekki að sök. Þeir sem hyggjast horfa
á sjónvarpsfréttir RÚV og Stöðvar 2 verða
sömuleiðis að bíta í það súra epli að miðl-
arnir styðjast við margmiðlunarspilarann
frá Microsoft (Windows Media Player) og
því hvorki hægt að horfa né hlusta á fréttir
RÚV og Stöðvar 2 því iPad-inn styður ekki
við tæknina. Erlendir fjölmiðlar hafa nýtt
aðra möguleika til netútsendinga, svo sem
frá Vimeo, og kemur hún vel út í góðu og
hraðvirku umhverfi iPad-sins.
Rándýrar bækur
Frá því lestölvan Kindle kom úr smiðju
Amazon-netverslunarinnar fyrir þremur
árum hafa dómsdagsspámenn lýst nokkr-
um sinnum yfir dauða bókarinnar í hefð-
bundnu formi. Þeir hafa heldur gefið í með
tilkomu iPad-tölvunnar. Ekki er útilokað að
dómsdagsspámenn muni hafa rétt fyrir sér.
Þrátt fyrir mýgrút af lesefni á Netinu hef
ég aldrei enst heilan kafla í tölvu – ef frá er
talið sýnishorn síðustu bókar rithöfundarins
Dan Brown á rafrænu formi, sem birtur var á
erlendri netsíðu í tilefni af útgáfu bókarinnar
fyrir síðustu jól. Frekar var rennt í lesturinn
af forvitni en áhuga. Þreytan yfir leiðitömu
efni og þungi fartölvunnar í kjöltunni sagði
fljótt til sín.
Öðru máli gegnir um lestur á iPad-tölv-
una. Einn af áföstum hnöppum hennar
sendir mann beint inn í bókasafn tölvunnar
og þaðan er einfalt að skreppa í bókaversl-
unina iBooks.
Verslunin sem slík er ágæt en mjög amerík-
anseruð enn um sinn með tilvísanir á metsölu-
lista The New York Times. Væntanlega batn-
ar úrvalið í hlutfalli við landnám tölvunnar
á komandi árum. Þetta kom þó ekki að sök
enda mögulegt að leita eftir bókum í leitarvél
iBooks og þar fyrst kom raunverulegt úrval í
ljós. Bókakaupin sjálf er sáraeinföld.
Þrátt fyrir að tölvan hafi verið með nokkr-
um bókum leiddist mér valið og var ég ólmur
í lestur bóka á mínu áhugasviði. Verð rafrænu
bókanna voru eintóm vonbrigði. Nýlegar
bækur eru í kringum þrettán dollara stykkið,
kringum sautján hundruð krónur, sem er litlu
ódýrara en kilja út úr búð. Þá virðast þær í
fyrstu dýrari en hljóðbækur, sem verður að
teljast einkennilegt.
Kosturinn við iBooks er engu að síður sá að
netverjum gefst kostur á að ná í sýnishorn af
bókum sem þar er að finna, alla jafna allt frá
kápu fram að öðrum, stundum þriðja kafla.
Lestur bóka á iPad-tölvuna var undarleg-
ur í fyrstu fyrir óvanan. Hann venst fljótt
og þegar birtuskilyrði höfðu verið stillt var
tilfinningin fyrir því að lesa brot úr þrek-
virkinu Ulysses eftir James Joyce af tölvu-
skjá fremur en í kilju horfin út í veður og
vind. Gott ef söknuður gerir ekki vart við
sig í hvert sinn sem ég fletti tímariti þessa
dagana. Það er svo miklu þægilegra með
iPad-inum.
Heitasta sófatæki í heimi
Fáar ef nokkrar tölvur hafa fengið jafn mikla athygli og iPad-tölvan frá Apple sem kom á mark-
að í byrjun mánaðar. Tölvuframleiðendur eru á fullu þessa dagana og búa sig undir harða sam-
keppni um handhægar og léttar tölvur sem fara vel í hendi. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson naut
þess að liggja uppi í sófa heila helgi með gripinn.
Örgjörvi: 1-GHz Apple 4-örgjörvi
Stýrikerfi: iPhone OS 3.2
Skjár: LED-baklýsing.
Upplausn: 1024 x 768. Mest 720p.
Minni: Harður diskur er ekki í iPad-tölvunni.
Í stað þess er innbyggt skyndiminni frá 16
GB til 64 GB.
Nettenging: Wi-Fi / 3G kemur síðar
Grafíkkort: PowerVR SGX
Aukatengi: Hljóðtengi
Verð: 499 til 599 dalir
Stærð: 24,3 x 19,0 cm
Þykkt: 1,3 cm
Þyngd: 0,68 kg
Endingartími rafhlöðu: 10 tímar hið
minnsta. Dugar lengur.
TÆKNILEGAR
UPPLÝSINGAR
Heimsbyggðin fær að kynnast iPad-tölvunni
í enda maí. Til stóð að markaðssókn hæfist
nú um mánaðamótin en mikil eftirspurn
eftir græjunni á heimamarkaði olli því að
skarð var sett í áætlanir. Fyrstu löndin sem
fyrirhugað er að iPad-inn nemi eru Ástralía,
Kanada, Japan og stærstu lönd Evrópusam-
bandsins.
Mikil eftirspurn eftir iPad-tölvunni í Banda-
ríkjunum kann að fresta áætlunum um sölu
tölvunnar hér á landi en líkt og áður hefur
komið fram má í fyrsta lagi búast við að
hún komi hingað fyrir jólin. Málið strandar
á skorti á íslenskum stöfum á lyklaborðinu.
Sá skortur skiptir litlu máli, miðað við fyrstu
prófun enda býður innbyggða lyklaborðið
ekki upp á mikla ritvinnslu yfirhöfuð.
APPLE FRESTAR
LANDNÁMI
GÓÐUR GRIPUR Ipad er ein þægilegasta afþreyingagræja sem hægt er að hugsa sér að mati Jóns Aðalsteins en lyklaborðið býður ekki upp á mikla möguleika og
þung vinnsla gengur illa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
IPAD Í HNOTSKURN
Frábær tölva til lesturs bóka og tímarita af
skjá og fyrir minni verk, svo sem netráp,
tölvupóstaskrif, uppfærslu á Facebook-stöðu
og annað lítilræði. Þá dugar rafhlaðan lengur
en í tíu tíma. Aðeins um klukkustund tekur
að hlaða tölvuna að nýju. Mikil vinnsla
gengur illa. Innbyggt lyklaborðið býður
heldur ekki upp á mikla möguleika og því
nauðsynlegt að hafa utanáliggjandi lyklaborð
við hendina. Þá skortir samkeyrslu nokkurra
forrita í einu auk myndavélar líkt og er í
flestum fartölvum. Reikna má með að næsta
kynslóð tölvunnar búi yfir mörgu af því sem
nú vantar.