Fréttablaðið - 01.05.2010, Qupperneq 84
52 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Stjórnmálaskoðanir mínar eru ekkert leyndarmál og hafa aldrei verið. En ef
ég léti það út úr mér að það eyðilegði sam-
band mitt við konuna mína að margir Sjall-
ar væru líka vel kvæntir yrði ég vonandi
álitinn eitthvað skrýtinn. Enda væru skoð-
anir mínar þá hættar að vera skoðanir og
orðnar að svo inngróinni gremju að stapp-
aði nærri geðrænu vandamáli – fóbíu. En
hvernig er brugðist við þegar því er lýst
yfir að hjónavígsla samkynhneigðra vegi
að hjónabandi gagnkynhneigðra? Þá er það
af einhverjum ástæðum meðhöndlað eins
og gilt innlegg í vitræna umræðu, en ekki
það sem það augljóslega er – fóbía.
Í vikunni varð sá sorglegi atburður
að prestur sagði hjónavígslu samkyn-
hneigðra eyðileggja hjónabandið í viðtali.
Þetta studdi hann þó ekki öðrum rökum
en þeim að aðrar kirkjur hafi ekki stigið
þetta skref. Það er rangt. Kenninganefnd
sænsku þjóðkirkjunnar hefur komist
að þeirri niðurstöðu að viðurkenna
beri að fullu hjónaband einstakl-
inga af sama kyni.
HJÓNABAND er borgara-
leg stofnun sem að kristnum
skilningi er helguð við kirkju-
lega athöfn. Það er því verald-
legra yfirvalda að skilgreina
hjónaband, ekki kirkjulegra.
Kirkjan getur aftur á móti kosið að vígja
það samkvæmt sínum skilningi – ekki
Hagstofunnar. En kirkjan verður þá að
geta rökstutt skilning sinn.
KRISTINN hjónabandsskilningur byggir
ekki á frjósemi. Gagnkvæmni kynjanna,
sem tákn óþarfrar frjósemi, getur því ekki
heldur verið grunnur hennar. Það er m.ö.o.
ekki kynlíf eða kynferði hjónanna sem
helgar hjónabandið heldur heitorð þeirra
og ásetningur. Kristið hjónaband er, svo
vitnað sé í biskup, sáttmáli um „ævar-
andi tryggð, ást og virðingu“. Hjónin heita
hvort öðru „ævitryggðum, að eiga saman
gleði lífsins og sorg, önn og yndi daganna“.
„Ást þeirra tveggja sem leggja líf sitt í
hvors annars [sic] hendur í skilyrðislausri
tryggð og kærleika, er ætlað að endur-
spegla kærleika Krists.“ Ást hjóna er því
eins og neisti af kærleika Guðs. Ekkert af
þessu útilokar samkynhneigða frá hjóna-
bandi. Það er því eitthvað annað.
NIÐURSTAÐA prestastefnu í fyrradag
var, að mínu mati, stéttinni til lítils sóma.
En fátt er svo með öllu illt að ekki boði
nokkuð gott. Aðeins þarf að skoða kenni-
tölur fylkinganna til að sjá hvorri Guð
mun gefa sigur – með tímanum.
STOFNUN, sem vill vera kirkja Krists á
jörð, mismunar nefnilega engum. Engum.
Kjarklaus eins og klerkur
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða á eina af
rómuðustu sýningum Vesturports
Takmarkaður sýningafjöldi
Miðasala er hafin!
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Skordýr sem eru adrenalínfíklar...
Þú ert fal-
legur maður
Pondus!
Ehm,
takk fyrir
það!
Ertu
kvæntur?
Hamingju-
samlega?
Það er
ég.
Algjörlega.
Þetta segja
þeir allir!
Eigum við
ekki...
við tvö?
Fröken,
þú gerir
bara hvað
sem er!
Það er hár-
rétt hjá þér!
Heim til
mín?
Djís-
es!
Er þetta
ekki
gaman?
Allt í góðu
Pierce?
Ég á bara
svolítið erfitt
með að koma
mér í gang á
morgnana.
Klukkan er
16.30. Ókei,
mjög
erfitt.
Allt gott.
Hannes!
Þú ert í
stuttbux-
um!
Já?
Og?
Skilurðu
ekki
hvað það
þýðir? Hvað ertu að tala
um?
Þetta er eins og fyrsti
túlípaninn, fyrsti fífillinn
eða fyrsta
lóan!
Ég er búinn
að sjá
fyrsta lúða
vorsins!
Ég sagði
mömmu
að fjólublár
væri ekki
minn litur!