Fréttablaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 86
54 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af …
Tveir færeyskir kórar sækja
Ísland heim þessa dagana.
Þetta eru kórarnir Glymur
og Dropinn. Glymur verður
með ókeypis tónleika í dag
í Norræna húsinu kl. 18. Á
dagskránni eru bæði gamlir
og nýir færeyskir söngvar.
Dropinn verður með tónleika í
Norræna húsinu á morgun kl.
15 og verður dagskráin með
rokkívafi.
Líkt og mörg fyrri ár hefur vorsýning listnema
við Listaháskólann og forvera hans vakið
mikinn áhuga almennings. Þúsundir gesta hafa
lagt leið sína á sýninguna í aðalstöðvum Lista-
safns Reykjavíkur frá því að hún var opnuð fyrir
viku. Gefst ekki annað tækifæri betra en að
finna hjartsláttinn í ungu listafólki sem á þessu
vori er að feta sig út á listbrautina. Þar má
sjá verk útskriftarnemenda í myndlistardeild
og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla
Íslands. Í ár sýna 79 nemendur verk sín – 47 í
hönnunar-og arkitekúrdeild og 32 í myndlist-
ardeild.
Um helgina verður opið í Hafnarhúsi og á
sunnudag kl. 15 ætla sýningarstjórar, Daníel
Karl Björnsson og Jóhann Sigurðsson, að leiða
gesti um sýninguna og spjalla um það sem
fyrir augu ber.
Góð aðsókn að nemendasýningu
MYNDLIST Eitt verka á sýningunni í Listasafni Reykja-
víkur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ath á morgun kl. 16.
Vortónleikar Kammerkórs Mosfellsbæjar
með titlinum „Ástaróður“ verða á torginu
í Kjarnanum í Mosfellsbæ á morgun kl.
16. Á efnisskránni verður lögð áhersla á
ástarsöngva frá ýmsum löndum og tíma-
bilum með fjölbreyttri tónlist allt frá
endurreisn fram til dagsins í dag. Flutt
verða meðal annars verk eftir Bítlana,
Leonard Cohen, Gunnar Reyni Sveins-
son, F. Pilkington og A. Vivaldi. Stjórn-
andi kórsins er Símon H. Ívarsson og
meðleikari er Arnhildur Valgarðsdóttir.
Í ár eru 125 ár liðin frá fæðingu
Jónasar Jónssonar frá Hriflu, en
hann fæddist 1. maí 1885. Jónas
er líklega þekktastur fyrir stjórn-
málastörf sín en hann var einn af
stofnendum Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins og einn helsti
leiðtogi Samvinnuhreyfingarinnar.
Hann var einnig ritstjóri Skinfaxa,
en í grein í því 1913 segir Jónas:
„Við megum ekki gleyma því að í
landinu hefur myndast hópur fjár-
glæframanna, sem aðallega gera
sér að atvinnu að stofna til félaga,
sprengja þau og hirða molana. Þeir
menn eru lausir við flestar siðleg-
ar hömlur. Fjárgræðgin knýr þá
áfram; hegningarhúsið er hið eina
sem þeir forðast. Þessvegna beita
þeir kænsku sinni til að svíkja
lögum samkvæmt; þvílíkir ræn-
ingjar eru mestu skaðræðismenn
samtíðarinnar.“
Jónas frá Hriflu skrifaði ein-
hverja langlífustu kennslubók
Íslands, Íslandssaga handa börn-
um, sem kennd var í barnaskólum
landsins í sjö áratugi, en hún kom
fyrst út 1915. Bókina má líta á sem
minnisvarða þeirrar kynslóðar sem
bar uppi sjálfstæðisbaráttu Íslend-
inga og hún er kjörgripur Þjóðar-
bókhlöðunnar í maímánuði.
Fégræðgin knýr þá …
MENNING Í dag eru 125 ár liðin frá fæð-
ingu Jónasar Jónssonar frá Hriflu.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ
Í hartnær þrjár vikur hefur
myndlistarkonan Hekla
Dögg Jónsdóttir haldið til
í galleríi Kling og Bang á
Hverfisgötu og opnað nýja
kima reglulega í sýningar-
rýminu.
Í dag heldur hún uppteknum hætti
og opnar fjórða og fimmta þátt
sýningar sinnar, „Opnanir“, og öll
verk sýningarinnar verða til sölu
þessa síðustu sýningarhelgi.
Í dag kl. 17 gefst áhorfendum
kostur á að sjá sýninguna „Opn-
anir“ fullkláraða. Sýningin hefur
þróast og vaxið yfir sýningartíma-
bilið með nýjum verkum í hverri
viku. Haldin hefur verið opnun um
hverja helgi frá 10. apríl. Í fyrsta
þætti sýningarinnar var skúlptúr
settur upp, eins konar millivegg-
ir, innsetning sem skipti galleríinu
upp í fjögur sjálfstæð rými. Síðan
þá hefur Hekla Dögg haft opnun
á sýningu í sérhverju rými fyrir
sig.
Í einu rýminu hafa Hekla Dögg
og Kolbeinn Hugi Höskuldsson
unnið saman innsetningu með
vídeóverki og ljósaskúlptúrum
sem bregðast við tónlist. Í öðru
rými, sem opnað var um síðustu
helgi, er skúlptúr, stór origami-
köngull, en í honum þenur Hekla
mörk stærðfræðiformúlu origami
og þungi pappírsins togast á við
verkfræði brotanna í pappírnum.
Kling & Bang gallerí er opið
fimmtudaga til sunnudaga frá
kl.14 til 18. - pbb
HEKLA DÖGG OPNAR SIG
MYNDLIST Innsetning á sýningu Heklu Daggar í Kling og Bang.
MYND: HEKLA DÖGG/KLING OG BANG
*
Ei
nu
ng
is
e
r
gr
ei
tt
u
p
p
ha
fg
ja
ld
6
k
r.
a
f
hv
er
ju
s
ím
ta
li.
M
án
.v
er
ð
1.
76
5
kr
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
41
0
3
8
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
1
0
3
7