Fréttablaðið - 01.05.2010, Qupperneq 88
56 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 01. maí 2010
➜ Tónleikar
16.00 Kvennakór Léttsveitar Reykja-
víkur flytur bjartsýnis- og baráttusöngva
í Menningarhúsinu á Dalvík við Goða-
braut 2.
17.00 Ísafoldarkvartettinn heldur
tónleika í Salnum við Hamraborg í
Kópavogi. Á efnisskránni verða strengja-
kvartettar eftir J. Haydn, M. Ravel og J.
Brahms.
17.00 og 20.00
Söngdeild Tónlistar-
skóla FÍH flytur verkið
Lifun eftir Trúbrot á
tvennum tónleikum
í Hátíðarsal FÍH við
Rauðagerði 27.
18.00 Færeyski kórinn Glymur heldur
tónleika í Norræna húsinu við Sturlu-
götu. Á efnisskránni verða bæði gamlir
og nýir færeyskir söngvar. Enginn
aðgangseyrir.
22.00 Jeff Who?, Biggi Bix, OJBA RASTA
og Kakali koma fram á tónleikum á
Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu.
➜ Sýningar
Ferðasýningin Íslandsperl-
ur í Perlunni stendur
yfir nú um helgina. Að
sýningunni standa mark-
aðstofur landshlutanna í
ferðaþjónustu, Ferðaþjón-
usta bænda, Opinn landbúnaður og
Beint frá býli. Opið laugardag og sunnu-
dag kl. 10-17.
➜ Opið hús
Opið hús verður að Korpúlfsstöðum kl.
13-17 þar listamenn taka á móti gestum
og gangandi. Þar verður einnig opnuð
vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík
þar sem verk nemenda 6-12 ára
verða sýnd. Allir velkomnir.
➜ Leikrit
19.00 Leikhópurinn
Börn Loka sýnir verkið
Glerlaufin eftir Philip Ridley
í Norðurpólnum við Sefgarða
á Seltjarnarnesi. Nánari upplýsingar á
www.midi.is.
20.00 Nemendaleikhúsið sýnir leikritið
Stræti eftir Jim Cartwright. Sýningar fara
fram í Smiðjunni við Sölvhólsgötu. Nánari
upplýsingar á www.lhi.is og www.midi.is.
➜ Kvikmyndahátíð
Ítölsk kvikmyndahátíð undir yfirskriftinni
„Sögur af innflytjendum” stendur yfir
í Norræna húsinu við Sturlugötu til 3.
maí. Enginn aðgangseyrir og allir vel-
komnir. Enskur texti. Nánari upplýsingar
á www.nordice.is.
20.00 Sýnd verður kvikmynd Giorgio
Diritti Il vento fa il suo giro (2005).
Sunnudagur 02. maí 2010
➜ Tónleikar
13.15 Gissur Páll Gissurarson tenór
og Nathalía Druzin Halldórsdóttir
messósópran halda tónleika í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi (Gerðuberg
3-5) ásamt píanóleikaranum Nínu Mar-
gréti Grímsdóttur. Á efnisskránni verða
aríur, ljóð og rússnesk sönglög eftir
meðal annars Tsjaíkovskí, Rachmaninoff
og Verdi. Enginn aðgangseyrir.
14.00 Söngfélag Skaftfellinga heldur
tónleika í Seltjarnarneskirkju við Kirkju-
braut. Flutt verða íslensk og erlend
sönglög undir stjórn Friðriks Vignis
Stefánssonar.
15.00 Færeyski kórinn Dropinn verð-
ur með tónleika í Norræna húsinu
við Sturlugötu. Dagskráin verður með
rokkívafi.
17.00 Vortónleikar Kórs Átthagafélags
Strandamanna verða haldnir í
Seljakirkju við Hagasel. Einnig
koma fram á tónleikunum Sam-
kór Mýramanna.
➜ Kvikmyndahátíð
Ítölsk kvikmyndahátíð í Norræna
húsinu við Sturlugötu. Nánari upplýsing-
ar á www.nordice.is.
20.00 Sýnd verður kvikmynd Gianni
Amelio, Lamerica (1994).
➜ Leiðsögn
14.00 Boðið verður upp á leiðsögn um
sýninguna Ástríðulist sem nú stendur
yfir í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
(Gerðuberg 3-5). Sýningin samanstend-
ur af verkum tæplega 30 lærðra og leik-
inna listamanna og koma víða að.
14.00 Jóna Þorvaldsdóttir verður
með leiðsögn um ljósmyndasýninguna
Skynjanir sem nú stendur yfir í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu
(6. hæð). Opið virka daga kl. 12-19 og
um helgar kl. 13-17.
14.00 Í Þjóðminjasafninu við Suður-
götu verður boðið upp á leiðsögn um
safnið sem ætluð er börnum á aldrin-
um 5-8 ára.
15.00 Daníel Karl Björnsson og
Jóhann Sigurðsson verða með leiðsögn
um sýningu nemenda Listaháskóla
Íslands sem nú stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur við Tryggvagötu.
Útrás íslenskra skálda er stað-
reynd. Forlög þeirra hér á landi
eru iðin við að láta vita af fram-
gangi sinna manna á erlendum
markaði. Þannig kom barnabók-
in Dvergasteinn eftir Aðalstein
Ásberg Sigurðsson út á finnsku
fyrr í mánuðinum hjá Bokförlaget
Idun í þýðingu Päivi Kumpulain-
en með nýjum myndskreyting-
um eftir finnska teiknarann Timo
Koljonen.
Dvergasteinn er þriðja bók Aðal-
steins sem kemur út í Finnlandi,
en áður hefur forlagið Idun gefið
út bækur hans Brúin yfir Dimmu
og Ljósin í Dimmuborg. Á finnsku
hefur Dvergasteinn hlotið aðeins
lengra nafn en á íslensku eða Halt-
ia joka kadotti hohtokivensä sem
þýðir Dvergurinn sem glataði gljá-
steini. Bókaforlagið Idun gefur út
þýddar barnabækur á finnsku og
sænsku.
Aðalsteinn Ásberg kom fram á
norrænum dögum í bænum Kuopio
í síðustu viku og kynnti þá meðal
annars Dvergastein, auk þess að
heimsækja skóla og leikskóla þar
sem hann flutti ljóð og söngva,
en þar var þýðandinn Marjakaisa
Matthíasson honum til fullting-
is, en hún hefur auk Dimmu-bók-
anna þýtt bæði ljóð og söngtexta
eftir hann.
Skáldsaga Hallgríms Helgason-
ar, 10 ráð til að hætta að drepa fólk
og byrja að vaska upp, er nýkom-
in út í Þýskalandi og hefur feng-
ið góðar viðtökur. Þarlendir gagn-
rýnendur keppast við að lofa hana í
hástert og fékk bókin til að mynda
fimm stjörnur í tímaritinu Stern
og í stórblaðinu Frankfurter All-
gemeine er hún sögð „fyndnasta og
þéttasta bók Hallgríms Helgason-
ar til þessa“. Fyrsta upplag bókar-
innar seldist upp á tveimur vikum
og annað upplag er senn á þrotum,
en salan tók mikinn kipp eftir að
Christine Westermann, áhrifamik-
ill þýskur gagnrýnandi, mælti með
bókinni í þætti sínum á WDR 2, og
sagði: „Mann langar til að hringja
í vin sinn á þriðju hverri blaðsíðu
til að lesa upp fyrir hann kafla svo
hann geti hlegið með manni.“
Tvö leikhús á þýska málsvæðinu
hafa þegar falast eftir því að sviðs-
setja söguna og er staðfest að leik-
sýning byggð á bókinni verði frum-
sýnd í Borgarleikhúsinu í Salzburg
haustið 2011.
Bókin hefur einnig komið út í
Danmörku og Hollandi og í vik-
unni kom hún út í Rússlandi. Þá er
hún væntanleg í Póllandi í maí og í
Noregi, Tékklandi og á Ítalíu síðar
á árinu.
Þá voru fregnir nýlega af vel-
gengni Stefáns Mána á erlendri
grund en skáldsaga hans, Svart-
ur á leik, kemur út í Frakklandi
innan tíðar hjá forleggjaranum
Gallimard sem einnig hefur gefið
út Skipið eftir sama höfund. Skip-
ið hefur fengið frábærar viðtökur
og glæsilega dóma en til stendur
að prenta annað upplag af henni
innan skamms.
Stefán Máni er afar kátur með
viðbrögðin en hann er nýkominn
heim af bókmenntahátíð í Frakk-
landi og hefur þegar fengið óskir
um að mæta á fleiri slíkar í næsta
mánuði. - pbb
Íslensk skáldverk í útlöndum
BÓKMENNTIR Verk eftir Hallgrím Helgason, Aðalstein Ásberg og Stefán Mána eru að
koma út í þýðingum á meginlandi Evrópu þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Landsýn
Norræna húsið
Nordens Hus – Pohjolan Talo – Nordic House
Dagana 1. og 2. maí
Færeyskur kórsöngur
Tveir færeyskir kórar verða með tónleika í Norræna
húsinu um helgina. Þann 1. maí kl. 18:00 verður kórinn
Glymur með tónleika, á dagskránni eru gamlir og
nýir færeyskir söngvar. Þann 2. maí kl. 15:00 verður
kórinn Dropinn með tónleika og er þeirra dagskrá með
rokkívafi . Frítt er inn á báða tónleikana.
Dagana 29. apríl – 3. maí kl. 20:00
Ítölsk kvikmyndahátíð 2010
Myndirnar sem sýndar verða fjalla um átök á milli
menningarheima og hvað gerist þegar sögupersónur
komast í kynni við annað fólk og aðra menningu sem
er ólík þeirra eigin. Allar myndirnar eru sýndar með
enskum texta. Frítt er inn á allar myndirnar.
Opið virka daga frá 12-16:30, helgar frá 10– 16:30
Tilraunalandið
Meðal tilrauna og tækja sem gestir kynnast eru
Sápukúluborðið, Kúlubekkurinn, Brunnurinn skjálfandi,
Ölduvaggan, risahúsgögn, loftpúðaborð, strimla
spegill, hvirfi lfl öskur og orkuhjól.
Í Tilraunalandinu verða líka magnaðar sýnitilraunir eins
og Eldorgelið og Teiknirólan Róló Pendúla.