Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 96
64 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
Amy Scobee, rithöfundur og fyrrum meðlimur
Vísindakirkjunnar, sagði nýlega að leikarinn
Tom Cruise fylgdist grannt með hverju skrefi
eiginkonu sinnar, leikkonunnar Katie Holmes.
„Tom er umkringdur fólki frá Vísindakirkjunni
og það fólk stýrir lífi hans og Katie.
Þessir aðilar fylgjast með öllu sem Katie
gerir og láta svo Tom vita. Þannig kemst hann
að því hvort hún er að reykja, borði rétt og daðri
við mótleikara sína. Hún er mjög reið yfir þessu
því hún hefur misst samband við vini sína og er
þess í stað umkringd meðlimum Vísindakirkj-
unnar,“ sagði Amy. Auk þess segir hún dóttur
þeirra hjóna fá að leika lausum hala og hlýði
engum. „Tom trúir því að Suri sé gömul sál í litl-
um líkama. Fóstrurnar mega ekki siða hana til
því hún á að fá að tjá sig að vild.“
Fylgist með Katie
UNDIR EFTIRLITI
Katie Holmes er
undir ströngu eftirliti
meðlima í Vísinda-
kirkjunni.
NORDICPHOTOS/GETTY
„Þetta er rétt, Dagur er ekki leng-
ur hluti af þessu verkefni,“ segir
Jóhann Ævar Grímsson handrits-
höfundur. Fréttablaðið greindi
frá því fyrir nokkru að Dagur
Kári hygðist leikstýra nýrri sjón-
varpsþáttaröð undir vinnuheitinu
Betlehem.
Jóhann Ævar skrifaði hand-
ritið og þetta vakti eðli-
lega nokkra athygli
þar sem Dagur er
einn fremsti leik-
stjóri landsins. En
af því verður ekki
og segir Jóhann að
ekki sé vitað hvort
og hvenær
farið verði
af stað í
tökur. „Við
sjáum
bara til,
handrit-
ið er alla-
vega til-
búið og þetta getur gerst og getur
ekki gerst. Þetta fer allt eftir fjár-
mögnun og tíma,“ segir Jóhann.
Næst á dagskrá hjá Degi Kára
er að semja tónlistina við kvik-
myndina Brim eftir Árna Ólaf
Ásgeirsson en þar fer leikhópur-
inn Vesturport með aðalhlutverkin.
Kvikmyndin er byggð á samnefndu
leikriti Jóns Atla Jónassonar en
reiknað er með að
myndin verði frum-
sýnd í haust. Eins og
Fréttablaðið greindi
frá er Dagur fastur
í New York og gerði
sér vonir um að kom-
ast heim í gær. Hins
vegar var öllu
flugi frestað
og því kemst
leikstjórinn
ekki heim
frá stór-
borginni.
- fgg
Dagur hættur við að
leikstýra Betlehem
Leikkonan Halle Berry og hinn
kanadíski Gabriel Aubry hafa
ákveðið að halda hvort sína leið
eftir fimm ára samband. Parið
á saman eina dóttur og hafa þau
ákveðið að deila forræðinu yfir
henni. „Gabriel fannst samband-
ið ekki vera að ganga. Þegar þau
byrjuðu fyrst saman fann hann
ekki fyrir aldursmuninum, honum
fannst hún fallegasta kona sem
hann hafði á ævinni hitt og var
ástfanginn. En með tímanum fann
hann betur og betur fyrir aldurs-
mun þeirra,“ var haft eftir heim-
ildarmanni. Parið skilur í góðu og
á þegar að hafa deilt öllum eignum
sínum bróðurlega á milli sín.
Berry á lausu
HÆTT SAMAN Halle Berry og Gabriel
Aubry hafa slitið sambandi sínu.
Hljómsveitin Seabear
er nýlögð af stað í stóra
tónleika ferð um Evrópu
til að kynna plötu sína We
Built A Fire. Trommuleik-
ari sveitarinnar, Kjartan
Bragi Bjarnason, er þó ekki
með í för því hann var að
eignast sitt fyrsta barn.
„Ég er nýbúinn að eignast barn
þannig að ég fer ekki langt, ekki
alveg á næstunni,“ segir Kjart-
an Bragi, sem eignaðist son fyrir
mánuði. „Það var bara fenginn
annar drengur til að hlaupa í
skarðið,“ segir hann og á þar við
Arnar Inga Viðarsson, trommara
Dynamo Fog og Retron. „Hann
rúllar þessu upp þannig að ég
þarf ekki að hafa neinar áhyggjur
af þessu.“
Kjartan, sem er líka meðlimur
Kimono, hefur áður misst af tón-
leikaferðum erlendis með Seabe-
ar. Síðast var það í fyrra þegar
sveitin hitaði upp fyrir múm á
fimm vikna tónleikaferðalagi. Þá
var það vinnan sem hélt honum
heima við en hann er verslunar-
stjóri hjá Steinari Waage í Smára-
lind og hefur í nógu að snúast í því
starfi.
Seabear hefur verið á tónleika-
ferð síðan í febrúar. Fyrst fór
sveitin til Þýskalands og síðan
til Bandaríkjanna í tæpar þrjár
vikur. Tónleikaferðin núna stend-
ur einnig yfir í þrjár vikur þar
sem ferðast verður meðal annars
til Svíþjóðar, Þýskalands, Bret-
lands og Hollands. „Það kemur túr
eftir þennan túr. Ég sé ekkert eftir
því að vera ekki að fara í þennan
túr. Maður er alveg að fatta það
núna,“ segir Kjartan, sem fylgist
engu að síður með hvernig geng-
ur með aðstoð Sigurðar Magnús-
ar Finnssonar, slagverksleikara í
Singapore Sling sem skipuleggur
tónleikaferðir Seabear.
Til stendur að hljómsveitin fari
fleiri tónleikaferðir í haust um
Evrópu og Bandaríkin og stefn-
ir Kjartan á að vera með í þeim.
„Ég reikna með því en ég á eftir
að tala við vinnuveitendurna,“
segir hann og kímir.
Útgáfutónleikar Seabear vegna
nýju plötunnar verða síðan haldn-
ir 9. júlí í Iðnó og geta íslenskir
aðdáendur sveitarinnar því tekið
daginn frá. freyr@frettabladid.is
Trommarinn varð eftir heima
SEABEAR Hljómsveitin Seabear er á tónleikaferðalagi um Evrópu um þessar mundir. Kjartan er lengst til hægri á myndinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
EKKI LENGUR MEÐ Dagur Kári
er ekki lengur með í sjón-
varpsþáttaröðinni Betlehem.
Jóhann Ævar Grímsson segir
ekki vitað hvenær þáttaröðin
fari af stað.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
42714 01152
Stærðir: 39 - 47
24294 51052
Stærðir: 39 - 46
50784 53859
Stærðir: 41 - 46
Urban Light Trace Glide
40984 54997
Stærðir: 39 - 47
48664 00101
Stærðir: 39 - 47
51504 01001
Stærðir: 41 - 47
Pacer Jersey Neobasic
ECCO HERRASKÓR
fyrir allan aldur
KRINGLAN
SÍMI 553 80 50
16.995 17.995 15.995
15.995 16.995 17.995
FRELSI TIL FERÐA
– námskeið við fl ughræðslu
Kvíðameðferðarstöðin býður nú upp
á námskeið við fl ughræðslu í samstarfi
við Flugfélag Íslands. Á námskeiðinu
verða kenndar leiðir hugrænnar a erlis-
meðferðar l að draga úr fl ughræðslu með
það að marki að fólk eigi hægar um vik
með að ferðast. Stjórnendur námskeiðsins
eru Gunnar Guðjónsson fl ugstjóri, dr.
Eiríkur Örn Arnarson og sálfræðingar
Kvíðameðferðarstöðvarinnar.
Námskeiðið hefst mánudaginn 10. maí 2010 og stendur
yfi r í 4 vikur, 1x í viku í 3 klst í senn. Skráning fer fram
hjá Kvíðameðferðarstöðinni í síma 534-0110/822-0043
eða á kms@kms.is, nánari upplýsingar á www.kms.is en
skráningu lýkur fi mmtudaginn 6. maí n.k.