Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 102
70 1. maí 2010 LAUGARDAGUR
KÖRFUBOLTI Ingi Þór Steinþórsson átti frábært fyrsta ár í Hólm-
inum og undir hans stjórn urðu Snæfellingar tvöfaldir meistar-
ar og náðu Íslandsbikarnum loksins í Hólminn eftir áralanga
baráttu liðsins meðal þeirra bestu.
Snæfellsliðið setti með því met með því að vera fyrsta liðið
sem verður meistari eftir að hafa endað neðar en fimmta sæti í
deildinni. Snæfell endaði í 6. sæti og var því aldrei með heima-
vallarrétt í allri úrslitakeppninni. Gamla metið var sett fyrir
áratug þegar KR-ingar enduðu í 5. sæti en fóru alla leið og
unnu titilinn.
Svo skemmtilega vill til að Ingi Þór Steinþórsson var líka
á sínu fyrsta ári með KR-liðið þegar liðið setti metið fyrir
tíu árum síðan. Þegar betur er gáð er margt líkt með þess-
um tveimur frumraunum Inga með sín lið nema að það má
segja að þetta hafi verið ný og endurbætt útgáfa því að
þessu sinni vann hann báða stóru titlana í stað þess að
vinna gull og silfur fyrir tíu árum síðan.
„Hefur einhver komið með svona sprengju inn í
félag?” spurði fyrirliðinn Hlynur Bæringsson blaða-
mann eftir leikinn og það verður erfitt að finna aðra
eins byrjun og hjá manninum sem KR-ingar vildu
ekki fá í brúna fyrir ári.
Hvort sem þetta er tilviljun eða hrein uppskrift
að árangri þá hefur Ingi Þór þrætt sömu leiðina að
árangri á þessum tveimur árum. Hér fyrir neðan má
sjá hversu margt þessi tvö meistaralið Inga Þórs eiga
sameiginlegt. ooj@frettabladid.is
Titill á fyrsta ári með lið
2000 Íslandsmeistari með KR
2010 Íslands- og bikarmeistari með Snæfelli
Tekur við af spilandi þjálfara sem
hélt áfram að spila
2000 Tók við af Keith Vassell
2010 Tók við af Hlyni Bæringssyni og Sigurði Þorvaldssyni
Tók við liði sem hafði síðast verið
sópað út úr lokaúrslitum
2000 KR tapaði 0-3 á móti Njarðvík í úrslitunum 1998
2010 Snæfell tapaði 0-3 á móti Keflavík í úrslitum 2008
Tók við liði sem var búið að bíða lengi
eftir þeim stóra
2000 KR hafði ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn í tíu ár
2010 Snæfell hafði aldrei unnið Íslandsmeistaratitilinn
Kemst í bikarúrslitaleik á móti Grindavík
2000 Tapaði 55-59 á móti Grindavík
2010 Vann 92-81 sigur á Grindavík
Var ekki með heimavallarrétt í 8 liða
úrslitum
2000 Endaði í 5. sæti í deildinni
2010 Endaði í 6. sæti í deildinni
Vann fyrirtækjameistarana 2-0
í 8 liða úrslitum
2000 Vann 2-0 sigur á Tindastóli
2010 Vann 2-0 sigur á
Grindavík
Vann deildar-
meistarana í
oddaleik í undan-
úrslitum
2000 Vann 78-55 sigur
á Njarðvík í Ljónagryfjunni
2010 Vann 93-83 sigur á
KR í DHL-höllinni
Tapaði fyrsta leikn-
um í lokaúrslitum
2000 Tapaði 64-67 í Grinda-
vík
2010 Tapaði 78-97 í Keflavík
Varð Íslandsmeistari
2000 Vann titilinn í fjórða leik í
DHL-höllinni
2010 Vann titilinn í fimmta leik í
Keflavík
INGI ÞÓR 2.0
Það er ótrúlega margt líkt með titlinum hans á fyrsta ár-
inu með KR 2000 og á fyrsta ári hans með Snæfell.
KÖRFUBOLTI Hlynur Bæringsson,
fyrirliði Snæfells, átti frábært
úrslitaeinvígi með liðinu en hann
var með 21,0 stig, 13,2 fráköst og
3,2 stoðsendingar að meðaltali í
leikjum fimm á móti Keflavík.
Hlynur komst með þessu í
fámennan hóp en hann er aðeins
þriðji fyrirliðinn í sögu lokaúr-
slitanna sem nær að skora yfir 20
stig að meðaltali í leik í úrslita-
einvíginu.
Hinir tveir í hóp með Hlyn
eru Valur Ingimundarson (með
Njarðvík 1985 og 1986) og Brent-
on Birmingham (með Njarðvík
2001). Valur skoraði 27 stig að
meðaltali þegar Njarðvík vann
2-0 sigur á Haukum 1986 og 26,7
stig að meðaltali árið eftir þegar
Njarðvík vann 2-1 sigur á Hauk-
um 1985. Brenton Birmingham
skoraði 23,3 stig að meðaltali
þegar Njarðvík vann 3-1 sigur á
Tindastóli fyrir níu árum. -óój
Hlynur Bæringsson:
Í hóp með Val
og Brenton
HLYNUR BÆRINGSSON Frábær í lokaúr-
slitunum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Snæfellingurinn
Pálmi Freyr Sigurgeirsson varð í
fyrrakvöld Íslandsmeistari annað
árið í röð og í þriðja sinn á fjórum
árum. Pálmi varð aðeins annar
leikmaðurinn sem nær að vera
Íslandsmeistari tvö ár í röð hvor
með sínu liði. Pálmi vann titilinn
með KR 2007 og 2009.
Pálmi jafnaði þar með afrek
Axels Nikulássonar sem varð
Íslandsmeistari með Keflavík
1989 og svo með KR árið eftir.
Páll Fannar Helgason hjá Snæ-
felli var líka í æfingahóp KR í
úrslitakeppninni í fyrra en tók
ekki þátt í úrslitakeppninni. - óój
Pálmi Freyr Sigurgeirsson:
Jafnaði afrek
Axels frá 1990
PÁLMI FREYR SIGURGEIRSSON Fagnar
titlinum með Inga Þór. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Dorma sængurverin
komin aftur!
Verð aðeins 3.900,-
• Svart
• Hvítt
• Krem
• Brúnt
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is
OPIÐ
Virka daga frá kl. 10-18
Laugardag frá kl. 11-16
Sunnudag frá kl. 13-17
Opið í dag frá kl. 11-16
Chiro 600 heilsurúm
Stærð cm. Tilboð kr.
90x200 90.900,-
100x200 95.900,-
120x200 98.000,-
140x200 119.900,-
160x200 149.900,-
180x200 159.900,-