Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 110

Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 110
78 1. maí 2010 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. viðlag, 6. kraðak, 8. kæla, 9. blund- ur, 11. íþróttafélag, 12. eggjarauða, 14. rót, 16. í röð, 17. tæki, 18. ennþá, 20. tveir, 21. velta. LÓÐRÉTT 1. bumba, 3. golf áhald, 4. inúíti, 5. spor, 7. fíkinn, 10. sönghús, 13. gild- ing, 15. rof, 16. húðpoki, 19. nudd. LAUSN LÁRÉTT: 2. stef, 6. ös, 8. ísa, 9. mók, 11. kr, 12. blómi, 14. grams, 16. hi, 17. tól, 18. enn, 20. ii, 21. snúa. LÓÐRÉTT: 1. vömb, 3. tí, 4. eskimói, 5. far, 7. sólginn, 10. kór, 13. mat, 15. slit, 16. hes, 19. nú. PERSÓNAN Júlí Heiðar Halldórsson Aldur: 19 ára. Starf: Danskennari, kenni hip hop hjá DanceCenter í Reykjavík. Fjölskylda: Á mömmu og pabba og tvö systkini. Búseta: Ég bý í Þorlákshöfn og hjá frænku minni í bænum. Stjörnumerki: Hrútur. Júlí Heiðar hefur vakið umtal og deilur fyrir popptexta sína. Þóroddur Stefánsson, oftast kennd- ur við Bónusvídeó-keðjuna, hefur keypt Austurbæjarbíó sem stendur við Snorrabraut. Iðnaðarmenn vinna nú hörðum höndum að því að koma húsinu í gott stand en þetta forn- fræga kvikmyndahús og tónleika- staður hefur verið nánast gleymdur og grafinn í miðborg Reykjavíkur. Þóroddur segir það hálfgerðan skan- dal hversu mikið húsnæðið hefur fengið að grotna niður. Þóroddur keypti húsnæðið fyrir nokkrum mánuðum en Arionbanki átti það. „Ég ætla að gera það allt upp og koma glæsileika þess í upp- runalegt horf. Ég hef alltaf haft gaman af svona fallegum húsum og það er í raun hryllilegt að sjá hvern- ig komið hefur verið fram við það,“ segir Þóroddur sem ætlar þó ekk- ert að stressa sig á þessu og tekur fram að hann ætli að gera þetta allt í rólegheitunum. „Þetta verður opnað einhvern tímann í haust, það er svona hugmyndin.“ Þóroddur hefur sett stefnuna á að koma á fót flottu viðburðahúsi þar sem tónlistarmenn og aðrir lista- menn geta sýnt sköpun sína. Þá er hugmyndin sú að reisa veitinga- stað á annarri hæð hússins en þar var áður hinn frægi veitingastaður Silfurtunglið. Þóroddur segir leif- arnar af veitingastaðnum vera þar enn þá. Þóroddur hefur lítið látið fyrir sér fara undanfarin ár. Hann er einn hluthafa í viðburðafyrirtæk- inu 3sagas sem Árni Þór Vigfússon og Kristján Ra Kristjánsson reka í Svíþjóð. Þóroddur tekur þó fram að þeir tveir komi hvergi nálægt þessu verkefni. Austurbæjarbíó hefur lengi leik- ið stórt hlutverk í menningarlífi höfuðborgarinnar frá því að það var vígt árið 1947. Tónlistarfélag Reykjavíkur var þarna fyrst og Sinfóníuhljómsveit Íslands þreytti frumraun sína á sviði Austurbæjar- bíós fyrir allmörgum áratugum. Þá hefur fjöldi leikrita verið sett upp í húsnæðinu af bæði sjálfstæðum leikhópum og Leikfélagi Reykja- víkur og ekki má gleyma frægri tónleikaröð Svavars Gests, Ellýj- ar Vilhjálms og Ragnars Bjarna- sonar í Silfurtunglinu. Margir af eldri kynslóðinni muna eflaust eftir kvikmyndasýningum um söngelska kúrekann Roy Rogers sem Friðrik Þór Friðriksson gerði ódauðleg skil í kvikmyndinni Bíódögum. Á seinni árum rak Samfilm Bíó- borgina í húsnæðinu en undanfarin ár hefur starfsemin verið nokkuð skrykkjótt, síðast hýsti Austurbæj- arbíó Hús unga fólksins sem Rauði Krossinn, Samfélagið Frumkvæði, Hitt húsið og Félag framhaldsskóla stóðu að. freyrgigja@frettabladid.is ÞÓRODDUR STEFÁNSSON: HRYLLILEGT HVERNIG FARIÐ VAR MEÐ HÚSIÐ Austurbæjarbíó lifnar við Það ríkir gleði á heimili hjónanna Manuelu Óskar Harðardóttur og Grétars Rafns Steinssonar í Bolton eftir að þeim fæddist dóttir í vik- unni. Litla stelpan var 13 merkur og 49 sentímetrar og hefur fengið nafnið Elma Rós. Manuela segir frá því á bloggsíðu sinni að Elmu-nafnið komi frá Elmari afa hennar og stóri bróðir nýjasta fjölskyldumeðlimsins hafi valið millinafnið Rós. Tilkynna átti um sigurvegara hljómsveitakeppninnar Þorska- stríðið í beinni útsendingu á Rás 2 í gær. Ekkert varð af því þar sem dómnefndin, sem er meðal annars skipuð útvarpsmanninum Ólafi Páli Gunnarssyni, þurfti lengri tíma til að ákveða sig en reiknað hafði verið með. Úrslitin verða þess í stað tilkynnt miðvikudaginn 5. maí og fá því Óli Palli og félag- ar fimm aukadaga til að liggja undir feldi áður en þeir kveða upp úrskurð sinn. Jónsi úr Sigur Rós fagnaði 35 ára afmælisdegi sínum á óvenjulegan hátt fyrir viku. Í uppklappi eftir tónleika hans í Kansas í Banda- ríkjunum á fimmtudagskvöldið eftir að klukkan hafði slegið tólf á miðnætti fékk kærastinn hans Alex Somers áhorfendur til að syngja afmælissönginn. Undirspilið var í blásaraútgáfu og hafði verið tekið upp nákvæmlega ári fyrr meðan á gerð plötu Jónsa, Go, stóð. Eftir tónleikana var áhugasömum áhorfendum síðan boðið baksviðs þar sem þeir fögnuðu afmælinu með Jónsa. Þar var afmælis- söngurinn aftur sunginn auk þess sem eitt tónleikapar mætti með súkkulaðiköku handa átrúnaðargoðinu. - hdm, fb FRÉTTIR AF FÓLKI Hljómsveitin Hjaltalín fær mjög góða dóma fyrir aðra plötu sína, Terminal, í bresku tónlistartíma- ritunum Mojo og Uncut. Mojo gefur plötunni fjór- ar stjörnur af fimm mögulegum en Uncut gefur henni þrjár stjörnur af fimm. „Fyrsta lagið Suitcase Man blandar tónlist spagettívestranna saman við West Side Story þar sem gróf rödd Högna Egilssonar fær að njóta sín,“ segir í dómi Mojo, þar sem tónlist Hjaltalín er lýst sem diskó-sálarpoppi. „Þegar líður á plötuna deilir Högni söngnum meira með Sigríði Thorlaci- us og þá kemur í ljós að hið frábæra leikræna-sál- arpopp er ekki bara eftiröpun á New York-stemn- ingu áttunda áratugarins.“ Í dómi Uncut er Högna líkt við söngvara bresku sveitarinnar Elbow og Sigríði líkt við Shirley Bassey. „Þessi sjö manna hálfgerða sinfóníusveit reiðir sig mikið á strengi, básúnur og timpani- trommur. Samt sem áður eru þarna einnig áhrif úr sálar- og diskótónlist. Lögin, sem eru stór í umgjörð, hljóma eins og fínni útgáfan af Elbow og líkindi Högna við Guy Garvey staðfesta þann samanburð.“ Terminal kemur út í Evrópu 24. maí og eru þessir góðu dómar því fyrirtaks kynning á plötunni og gott veganesti. Fyrr á árinu hlaut hún Íslensku tónlistarverðlaunin sem besta poppplatan, auk þess sem hún varð efst í kjöri tón- listarspekinga Fréttablaðsins yfir bestu plötur síðasta árs. Hjaltalín leikur á tvennum tónleikum með Sin- fóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói í júní. - fb Bretar hrifnir af Hjaltalín HJALTALÍN Hljómsveitin Hjaltalín fær góða dóma í Bretlandi fyrir plötu sína Terminal. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hönnuðurinn Linda Björg Árnadótt- ir hefur gert fatalínu sem hún lýsir frekar sem heimafatnaði heldur en tísku. Linda hefur um tíma hann- að undir heitinu Scintilla og sam- anstendur nýja fatalínan meðal ann- ars af hlýrabolum, kjólum, leggings og háum sokkum úr hundrað pró- sent silki og fæst hún í tískuversl- uninni Kron Kron. „Ég er bæði fata- og textílhönn- uður og er með merki sem kallast Scintilla og er heimilistextíll. Nýja línan passar vel inn í það auk þess sem þetta var góð leið fyrir mig til að gera línu sem væri ekki árstíða- tengd eins og flest annað í tísku- heiminum. Með þessu þarf ég ekki að koma með tvær nýjar línur árlega heldur get ég bætt við þessa hægt og rólega,“ útskýrir Linda Björg. Hún segir flíkurnar vera klassískar og því geti fólk notað þær ár eftir ár án þess að þær fari úr tísku. Eins og er fást flíkur aðeins í svörtu og hvítu en að sögn Lindu Bjargar mun brátt bætast í litaflóruna. „Ég er mjög ánægð með þær vörur sem komnar eru. Nú ætla ég að fara að bæta við og stækka línuna auk þess sem ég er að vinna í því að koma vörunum í sölu á fleiri stöðum bæði hér heima og erlendis.“ Hægt er að skoða vörur Scintilla á heimasíðu fyrirtækisins www.scint- illalimited.com. - sm Linda Björg hannar heimafatnað HANNAR HEIMAFÖT Linda Björg Árnadóttir, hönnuður og fagstjóri fatahönnunar- deildar LHÍ, hefur hannað nýja fatalínu. AUSTURBÆJARBÍÓ OPNAR Á NÝ Hið fornfræga Austurbæjar- bíó verður opnað að nýju í haust. Þóroddur Stefánsson, sem hefur keypt húsið, hyggst koma því í upprunalegt horf en reikna má með fjölbreyttri starfsemi þar. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM Vika bókarinnar, ávísunin gildir til 3.maí úrval nýrra kilja á 1.995,- fullt verð 2.490,- Lækjargata 2a 101 R. sími 511-5001 opið 9 - 22 alla daga. opið 1. maí
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.