Fréttablaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 42
Levi Soko, aðstoðarverkefnisstjóri fullorðinsfræðslu- og vatns- og hreinlætisverkefna ÞSSÍ á Nankumba-
skaga í Malaví, tók nýverið Welemu Masina,
höfðingjann af Nankumba, tali og ræddi við
hann um þróunarverkefni ÞSSÍ á svæðinu,
sér í lagi þátttöku hans og heimamanna í
verkefnunum. Masina er höfðingi Nankumba
en undir hann heyra 144 þorpshöfðingar auk
hópþorpahöfðingja. Íbúar svæðisins eru um
120 þúsund.”
– Hvernig kom það til að þú varðst höfðingi?
„Ég varð höfðingi við andlát frænda míns.
Ég erfði höfðingjatignina frá honum. Það er í
samræmi við hefðir okkar.“
– Hvað finnst þér um þau þróunarverkefni
sem ÞSSÍ styður hér á þínu umráðasvæði?
„Ég er afar þakklátur ÞSSÍ fyrir að greiða
veginn fyrir framþróun á mínum lendum.
ÞSSÍ hefur byggt skóla og eflt fiskveiðar á
vatninu. Svo eru það öll vatnsbólin, verndaðar
borholur og brunnar um allt svæðið þvert
og endilangt sem ÞSSÍ hefur byggt. Það
eru því engin vandamál tengd vatnsskorti
eða sjúkdómum vegna mengaðs vatns
lengur á mínu svæði. ÞSSÍ ýtir undir bættar
hreinlætisvenjur í þorpunum með fræðslu
og kynningu. Enginn hefur látist af völdum
kóleru á þessu ári hér. Ég er afar áhyggjufullur
þegar ég heyri orðróm um að ÞSSÍ sé á förum
frá svæðinu. Það er mín einlæg ósk að ÞSSÍ
haldi áfram að hjálpa okkur við uppbyggingu
og framþróun. Þá bæn bið ég daglega.”
– Hvaða hlutverki gegnir þú í þessum
þróunarverkefnum?
„Sem höfðingi hvet ég þorpshöfðingja
og hópþorpahöfðingja til þátttöku í
verkefnunum. Ég aðstoða líka við fræðslu
og kennslu í hinum ýmsu verkefnum þannig
að þorpshöfðingjar skilji mikilvægi þessara
verkefna fyrir samfélagið í heild. Ég þjóna
sem milliliður á milli ÞSSÍ og samfélaga í
Nankumba. ÞSSÍ býður mér ávallt á fundi
þar sem ég er upplýstur í smáatriðum um
framgang verkefna og hvernig hrinda skuli
nýjum verkefnum í framkvæmd. Ég kem þeim
skilaboðum svo áfram til fólksins – íbúanna á
mínu svæði. Þeir þorpshöfðingjar sem ekki eru
nægilega kraftmiklir – það er, ekki nægilega
viljugir til þátttöku í verkefnum – eru kallaðir
til mín og ég segi þeim til syndanna.“
– Hvernig segir þú þeim til syndanna?
„Í fyrstu kalla ég þá til mín til viðræðna.
Ég minni þá á þá staðreynd að hlutverk
þorpshöfðingja er að leiða þróunarverkefni
hver í sínu þorpi. Ef það dugar ekki til svipti
ég þá embætti tímabundið. Ég hef það vald.
Ef þeir sýna hins vegar í verki meiri áhuga og
vilja til þátttöku set ég þá aftur í embætti – sýni
þeir vilja til að verða góðir þorpshöfðingjar
sem vilja vinna í þágu fólksins.“
– Hvernig hefur hagur íbúa vænkast vegna
þróunarverkefnanna?
„Fólkið hér nýtur nú betri heilsu en nokkru
sinni fyrr vegna hreins og ómengaðs vatns
og betrumbættra hreinlætisvenja og aðstöðu.
Ólæsi er að þurrkast út vegna skólanna sem
hafa verið byggðir og börnin okkar njóta
nú menntunar. ÞSSÍ hefur byggt sjúkrahús
og heilsugæslustöðvar og fólk fær þar
aðhlynningu. Mannslífum er bjargað. Svo við
sjáum árangurinn afar greinilega. Það er þess
vegna sem ég vil ekki fyrir nokkra muni að
ÞSSÍ yfirgefi okkur.“
– Ef ÞSSÍ hverfur af vettvangi heldurðu að
verkefnin haldi áfram og að þeim verði áfram
vel stýrt?
„Ég tel að sum þessara verkefna muni halda
áfram. Til dæmis vatnsbólin. Það er í okkar
verkahring að viðhalda vatnsbólunum og
sjá til þess að þau gefi alltaf af sér hreint og
tært vatn. Það er óhjákvæmilegt að einhverjir
hlutir í vatnsdælum gefi sig og skipta þurfi
um þá. Þá þurfa varahlutir að vera til staðar
og peningar til að kaupa þá. Þess vegna eru
vatnsbólanefndir um hvern brunn og þeirra
hlutverk er meðal annars að sjá til þess að
sjóðir séu nægir til að kaupa varahluti og
þekking og kunnátta til að skipta um þá.“
– Veistu hvar Ísland er?
„Nei, ég veit ekki hvar Ísland er. Ég hef
aðeins heyrt um Ísland og hitt hvíta menn
frá Íslandi. Ég sé þá hér en ég veit ekki hvar
Ísland er. En ég veit þó að það er mjög kaldur
staður – svo er mér sagt. Það væri gott ef ÞSSÍ
gæfi mér færi á að sjá Ísland. Það yrði gaman.
Ég ætti að fljúga til Íslands og hitta fólkið þar
og þakka því – fyrir hönd alls fólksins míns
í Nankumba – fyrir það góða starf sem það
hefur innt af hendi á mínu landi.“
– Viltu segja eitthvað að lokum?
„Já. Í fyrsta lagi vil ég þakka ÞSSÍ fyrir öll
þessi góðu þróunarverkefni í mínu landi. Í
öðru lagi vil ég biðla til ÞSSÍ að halda áfram
að starfa hér. Ekki fara. Og í þriðja lagi vil ég
biðja ÞSSÍ um að gera mér kleift að heimsækja
Ísland. Mér þætti afar vænt um að fá að koma
og hitta Íslendinga og þakka þeim í eigin
persónu.“
– Kærar þakkir höfðingi og eigðu gott kvöld.
„Þakka þér fyrir að koma. Far vel sonur
sæll.“
- eftir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
sem fer með þróunarmál
Í miðri kreppunni eru Íslendingar eðlilega
uppteknir af þeim efnahagslegu hamförum
sem skelltu bankakerfinu og lögðu í einu
vetfangi fjötra skulda á þúsundir fjölskyldna.
Annars staðar í heiminum ganga þó á sama
tíma yfir hljóðlátar hamfarir örbirgðar sem á
degi hverjum leggja í valinn þúsundir barna.
Kastljós fjölmiðla leikur ekki um þá nöturlegu
staðreynd að hvern einasta dag deyja um 24
þúsund börn yngri en fimm ára af völdum
sjúkdóma og fátæktar víðs vegar um heiminn.
Á tveggja vikna fresti sviptir skortur og örbirgð
því fast að 350 þúsund lítil börn lífinu, eða
fleiri en alla íbúa Íslands.
Engin þjóð, ekki heldur þjóð í tímabundinni
kreppu, hefur siðferðilegan rétt til að halda að
sér höndum. Öllum ber skylda til að reyna af
fremsta megni að rétta þeim hjálparhönd, sem
ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér, og njóta
ekki einu sinni þess sjálfsagða réttar að fá að
byrja lífið sem þeim þó var gefið í vöggugjöf.
Þess vegna tekur Ísland þátt í alþjóðlegri
mannúðarhjálp og þróunarstarfi – jafnvel þó
að við glímum við efnahagskreppu.
Íslendingar hafa um 40 ára skeið verið
þátttakendur í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.
Í efnahagskreppunni verðum við vissulega að
sníða okkur stakk eftir vexti. Við erum ekki
jafn ríkulega aflögufær og á tímum góðærisins,
en það munar eigi að síður um þá aðstoð sem
íslenska þjóðin veitir til margvíslegra verkefna
víðs vegar um heiminn. Hver króna skilar
árangri í baráttunni gegn sjúkdómum og
bættri líðan þeirra, sem þjást af miklu meiri
skorti en Ísland samtímans hefur nokkru sinni
kynnst. Hnitmiðuð þróunarsamvinna er hluti
af einbeittri viðleitni okkar til að byggja upp
traust á Íslandi á nýjan leik og sýna í verki,
að við látum okkur varða um hag þeirra verst
settu í heiminum.
Hinar mannlegu hamfarir sem skekja líf
þúsunda á degi hverjum í formi fátæktar,
skorts á vatni og mat, lyfjum og umönnun
er hægt að fyrirbyggja. Við Íslendingar
leggjum fram okkar skerf með því að styðja
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og samtök
eins og Barnaheill. Við tökum þátt í að byggja
upp heilbrigðisþjónustu í Malaví og styðjum
sjálfsprottin samtök sem skjóta skjólshúsi
yfir foreldralaus börn í fátækustu ríkjum
heims. Íslendingar hafa líka lagt sérstaka rækt
við aðstoð á gleymdum svæðum, sem eru
utan við kastljós fjölmiðlanna, og fáar aðrar
hjálparstofnanir utan okkar koma til aðstoðar.
Fyrir nokkrum árum skrifaði hagfræðing-
urinn Paul Collier einstaka bók um þann mill-
jarð jarðarbúa sem er fastur í gildru örbirgðar og
fátæktar. Fólkið, sem dregur fram lífið á botni
samfélaganna – The Bottom Billion. Ríkin
sem Collier fjallaði um er mótuð af hamförum
styrjalda og ófriðar, þar sem auðvald misnotar
náttúruauðlindir og stjórnarfarið er í molum.
Fólkið í þessum ríkjum, sem oftar en ekki
dregur fram lífið á voninni einni, þarf á aðstoð
okkar að halda. Glíma þeirra við örbirgðina er
líka okkar glíma.
Í þessu riti er fjallað sérstaklega um þann
mikilvæga þátt þróunarstarfsins sem felst í
beinni aðstoð Íslands við önnur ríki. Sú tvíhliða
aðstoð er unnin af Þróunarsamvinnustofnun
Íslands, sem í tæpa þrjá áratugi hefur unnið
stórmerkilegt og þakklátt starf. Fyrstu
árin miðuðust einkum að liðsinni á sviði
sjávarútvegs og fiskveiða, en snerust síðar
að heilbrigðis-, mennta- og félagsmálum.
Undanfarið höfum við einnig með góðum
árangri miðlað sérþekkingu okkar og reynslu á
sviði jarðhita og stuðlað þannig að því að svipta
af viðkomandi þjóðum fjötrum orkufátæktar
sem oftar en ekki er helsti þröskuldur á sviði
framfara. Við sníðum okkur stakk eftir vexti og
vinnum hvert þróunarverkefni af gaumgæfni.
Í haust mun ég leggja fram á Alþingi tillögu
til þingsályktunar um fjögurra ára áætlun um
þátttöku Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.
Það er von mín að sú framtíðarsýn og markmið
sem þar munu birtast skapi traustan grundvöll
fyrir þau góðu verk sem lesa má um á þessum
síðum.
ÞRÓUNARMÁL
- upplýsingarit Þróunarsamvinnustofnunar Íslands
Réttum hjálpandi hönd
„Vil þakka Íslendingum í eigin persónu“
– rætt við Welemu Masina, höfðingjann af Nankumba
Welemu Masina, höfðinginn af Nankumba.
LJÓSMYND: STEFÁN JÓN HAFSTEIN.
Hver króna skilar árangri í baráttunni gegn
sjúkdómum og bættri líðan þeirra, sem þjást af
miklu meiri skorti en Ísland samtímans hefur
nokkru sinni kynnst, segir utanríkisráðherra.
LJÓSMYND: GUNNAR SALVARSSON.
12