Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 48
Mest lesið DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI ÓDÝRT FYRIR ALLA! Fórnarlamb öskunnar Blúshátíðin Norden Blues Festival var haldin í Rangárvallasýslu um hvítasunnuhelgina og tókst hún með stakri prýði. Öskufall úr Eyjafjallajökli sem gekk yfir svæðið á laugardeginum hafði þó sín áhrif, fyrst á stóra grillveislu sem var haldin fyrir tónlistarmennina og síðan á tónleika systkinanna KK og Ellenar. Þau stigu á svið á tvenn- um kirkjutónleikum á sunnudegin- um en Ellen gat því miður lítið látið að sér kveða. Fíngerð askan fór illa í rödd söngkonunnar, fjölmörgum aðdáend- um hennar til sárra vonbrigða, og lofaði hún að bæta þeim þetta upp síðar. KK hélt þó sínu striki og kláraði tónleik- ana eins og honum einum er lagið. ÓDÝRT FYRIR ALLA! COCA COLA - 33 CL 69 www.europris.is Miklar væntingar Orkuveita Reykjavíkur (OR) og fulltrúar sjö fyrirtækja á sviði jarð- hitanýtingar undirrituðu viljayfir- lýsingu um samstarf á erlendum vettvangi í gær. Fyrirtækin vinna með japanska stórfyrirtækinu Mitsubishi Heavy Industries. Í þann mund sem fulltrúar fyrirtækjanna munduðu penna til að skrifa undir viljayfirlýsinguna hringdi farsími Guðlaugs G. Sverrissonar, stjórnarformanns OR. Hringitóninn segir sitt um vænt- ingar forstjórans til samningsins. Hann er hvorki meira né minna en eitíssmell- urinn Big in Japan af breiðskífunni Forever Young frá 1984 með þýsku rafhljóm- sveitinni Alphaville. - fb, jab 1 Ljóshærður stubbur kýldi mann 2 Facebook-forstjóri játar mistök 3 Ákærðir fyrir stórfelldan bókaþjófnað 4 Klippti á naflastrenginn og fingurgóminn með 5 Hornið kom út um munninn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.