Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 26. maí 2010 11 manns vinna hjá nokkrum stórum sjávarútvegsfyrirtækjum í sveitar- félaginu. Engin stór einstök ágreinings- mál eru uppi í Fjarðabyggð. Líkt og áður var rakið eru menn sam- mála um margt. Áherslur eru líka svipaðar í mörgum málaflokkum. Af samtölum við heimamenn að dæma er líklegt að margir ætli að ráðstafa atkvæði sínu út á fram- bjóðendur fremur en málefni. „Við erum félagshyggju- framboð og okkar helstu áherslur liggja í að verja grunnþjón- ustuna,“ segir Elvar Jónsson, oddviti Fjarða- listans. Hann segir ljóst að það kosti peninga að verja grunnþjón- ustuna og að ekki sé til of mikið af þeim. Skuldastaðan sé líka erfið. „Hins vegar eru tekjurnar miklar, hér eru öflug fyrirtæki á sviði sjávarútvegs og stóriðju og það þarf að standa með þeim.“ Elvar segir Fjarðalistann leggjast algjörlega gegn fyrningarleiðinni, hún muni hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir sveitarfélagið. Fjárhagsstöð- una segir Elvar hafa verið í mjög góðu jafnvægi fyrir hrun. Fram- kvæmdir hafi verið fjármagnaðar með lánum sem allt leit út fyrir að yrði þægilegt að greiða af en við hrunið hafi þau snarhækkað. Elvar kveðst ekki sjá fram á að Fjarðabyggð taki þátt í sameiningu sveitarfélaga á næstu árum og jafnvel áratugum. „Hér hafa orðið margar sameiningar undanfarin kjörtímabil og það er langt í frá að þeim sé lokið. Enn er mikill rígur milli svæða og margir ósáttir við ýmislegt. Ég held að það þurfi kynslóðaskipti svo allt verði slétt og fellt.“ Átak í samgöngumálum er á forgangslista Fjarðalistans. Þar er horft til ríkisins sem að sögn Elvars þarf að taka sér tak og einhenda sér í mikilvægar framkvæmdir á borð við Norðfjarðargöng. Ætlum að verja grunnþjónustuna N B I h f. ( L a n d s b a n k in n ), k t . 4 7 1 0 0 8 - 0 2 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 4 17 6 0 Einkabankinn í símann þinn á l.is EINKABANKINN | landsbankinn.is | 410 4000 Nú getur þú sinnt bankaviðskiptum í símanum þínum, hvar og hvenær sem er. Það er einfalt að skoða yfirlit yfir stöðu reikninga og kreditkorta, framkvæma millifærslur, kaupa inneign fyrir GSM síma, sækja PIN-númer fyrir VISA kreditkort, greiða inn á kreditkort og fletta upp í þjóðskrá. Farðu inn á l.is og prófaðu Einkabankann í símanum þínum. Innskráning er með sama hætti og þegar farið er í Einkabankann í tölvunni þinni. Þú skráir notendanafn, lykilorð og auðkennisnúmer og þar með er fyllsta öryggis gætt. „Við leggjum höfuðáherslu á að halda áfram aðgerðum til að bæta fjárhagsstöðuna,“ segir Jón Björn Hákonarson, oddviti Framsóknarflokksins. „Skuldastaðan er þung en reksturinn er góður og allar líkur á að okkur takist að koma okkur út úr þessu.“ Jón Björn segir áætlanir sem gerðar voru um uppbyggingu og framkvæmdir hafa staðist ágætlega fram að efnahagshruninu. Tekjustofn- ar sveitarfélagsins séu öflugir og til marks um umsvifin verði um fjórðungur allra útflutnings- tekna landsins til í Fjarðabyggð. Jón Björn segir Framsóknarflokkinn ætla að lofa fáu en reyna að standa við þau loforð sem hann gefur. „Við erum komin að þolmörk- um í niðurskurði í fræðslu- og félagsmálum og þurfum að finna nýjar leiðir til að standa við bakið á þeim málaflokk- um. Við þurfum líka að halda stöðu okkar gagnvart ríkinu en það hefur boðað niður- skurð í starfsemi sinni hér.“ Þá hafi Framsókn á stefnuskránni ýmis smærri mál sem ekki þurfi að kosta mikla peninga. Nefnir hann samstarf tón- og leikskóla, styrki til íþróttafélaganna og forvarnir. Framsóknarflokkurinn berst gegn fyrningu kvóta og er það mat Jóns Björns að sú aðgerð yrði rothögg fyrir stóru útgerðarfélögin þrjú í sveitarfé- laginu. Hann vill að ríkið ráðist í gerð Norðfjarðar- ganga auk annarra samgöngubóta. Margir íbúar sveitarfélagsins ferðist um langan veg til vinnu. Jón Björn segir sjálfsagt að skoða kosti og galla þess að sameina sveitarfélögin á Austurlandi en brýnna sé að ljúka sameiningu Fjarðabyggðar. Höfuðáhersla á að bæta fjárhagsstöðuna Björn Þór Sigbjörnsson bjorn@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.