Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 27
miðvikudaginn 26. maí 2010 7 |
FJÖGURRA
ÁRA FARSI
AÐ BAKI
SIGRÚN ELSA
SMÁRADÓTTIR
SKIPAR 7. SÆTI Á LISTA
SAMFYLKINGARINNAR
Í REYKJAVÍK
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson varð
borgar stjóri eftir kosningar.
• Teknar voru upp nýjar úthlutun-
ar reglur lóða sem kyntu undir
lóða sölu og þenslu í Reykjavík.
• Bjórkælir var bannaður í ÁTVR í
Austurstræti.
• Sjálfstæðisfl okkurinn talaði fyr-
ir fyrirtækjareknum leikskólum,
Glitnis og Kaupþings.
• Tillaga um hlutafélagavæðingu
Orku veitunnar leit dagsins ljós.
• REI-málið sprengdi svo fyrsta
meiri hluta kjörtímabilsins þeg-
ar borgar fulltrúar Sjálfstæðis-
fl okks ins ákváðu að selja REI,
með 20 ára einkaréttarsamningi.
Þá naut GGE forkaupsréttar og
Sjálf stæðis fl okkurinn hafði ný-
verið tekið við 30 milljóna risa-
styrkjum frá FL-group sem átti
meirihluta í GGE.
F-listinn
Sjálfstæðismenn nörruðu Ólaf F.
Magnús son til samstarfs og gerðu
hann að borgarstjóra. Meiri hluta-
skipt in fóru fram við kröftug mót-
mæli borgarbúa.
• Verðmiðinn fyrir völdin voru 580
milljónir til að kaupa húsin við
Laugaveg 4 og 6.
Meirihluti Hönnu Birnu og Óskars
• Strax voru gefnar stórkarlaleg-
ar yfi rlýsingar um að herða á
fram kvæmdum og þar með auka
skuldir OR sem hafa vaxið um
400% á kjörtímabilinu.
• Milljarður var settur í viðbótar-
greiðsl ur umfram samninga til
verktaka.
• Orkuveita Reykjavíkur seldi hlut
í HS Orku til skúff ufyrirtækisins
Magma Sweden. Greiðslan var
kúlulán til sjö ára með veði í bréf-
unum sjálfum.
• Dýrt húsnæði er leigt af einka-
aðilum á meðan húsnæði borgar-
innar stendur víða hálf tómt,
meðal annars Ráðhús Reykja-
víkur.
• Nú er rætt um að auglýsa eftir
skipu lagseignum til að kaupa
í mið bænum fyrir allt að 400
milljónir, sem taka á að láni.
Síðasta kjörtímabil er ekki mæli-
kvarði sem við eigum að sætta
okkur við. Borgarbúar eiga betra
skilið. Nú er komið nóg af sér hags-
munagæslu og rugli. Nú er kominn
tími á vönduð vinnubrögð, sam-
hug og jöfn tækifæri. Undir for-
ystu Samfylkingarinnar getum við
unnið okkur út úr kreppunni með
markvissum hætti. Farsinn verð ur
að taka enda, boltinn er hjá kjós-
endum.
Lj
ós
m
yn
d:
H
ör
ðu
r S
ve
in
ss
on
Það er mannskemmandi að fara í pólitík. Þetta vita allir - fl estir hafa að
minnsta kosti heyrt eða jafnvel sagt þennan frasa. Ég velti stundum fyrir
mér hversu skaðlegur þessi frasi getur verið. Ég ætla að gefa mér að þeir
sem fara út í stjórnmál vilji á einhvern hátt hafa áhrif á samfélag okkar:
heilbrigðismál, menntamál, umhverfi smál, jafnréttismál eða félagslega
kerfi ð eða hvað þau heita öll þessi kerfi sem hafa orðið til á 20. öld og eru
orðin svo stór hluti af lífi okkar að við tökum ekki lengur eftir þeim.
En þegar einhver sem ég þekki
og treysti segist ætla að fara út í
pólitík - á ég að segja við hann:
Ekki fara - það er mannskemm-
andi að fara í pólitík? Vil ég að
pólitík sé til eða vil ég eitthvað
annað kerfi ? Hvaða kerfi þá? Og
ef ég segi góða fólkinu að bjóða
sig ekki fram, hvaða fólk vil ég
þá að stýri þessum mikil vægu
málafl okkum?
Ég geri mér ekki vonir um
að næstu ár verði sérlega auðveld,
það þýðir þó ekki endilega að
hlutir þurfi að vera leiðinlegir.
Samtakamáttur fólks getur verið
hlaðinn jákvæðri orku og rökræð-
ur geta skilað góðri niðurstöðu
og svo eru oft alveg ágæt og upp-
byggileg orka í mótmælum eða
reiði. En ég held að við komumst
ekkert nema gott fólk sé tilbúið
að leggja alla sína orku, tíma og
hugsjón í þau verkefni sem fram-
undan eru. Ég held að það sé þörf
á fólki sem hefur sýnt borgaralegt
„Trúi ekki á instant byltingar“
hugrekki, hefur sýnt þrautseigju
og fylgt hugsjónum sínum fast eft-
ir í orði og á borði. Mér fi nnst að
þegar slíkt fólk býður sig fram - þá
eigum við að taka á móti því.
Á lista Samfylkingarinnar
eru tveir frambjóðendur sem ég vil
gjarnan að nái kjöri núna á laugar-
dag. Bjarni Karlsson hefur í starfi
sínu sem sóknarprestur öðlast
gríðarlega þekkingu og skilning á
fl estum málafl okkum sem snerta
nánast allt sem kalla má „lífi ð“ -
frá vöggu til grafar. Hann hefur
innsýn í málefni barna, unglinga,
aldraðra og fatlaðra. Hann hefur
reynslu af því að vinna með fólki
á öllum aldri og af öllum stigum
þjóðfélagsins og hann hefur tek-
ið þátt í lífi fólks í gleði og sorg.
Hann hefur aldrei sótt í „þæg-
indin“, hann hefur unnið á virkan
hátt gegn kynþáttafordómum og
talað fyrir skilningi milli trúar-
hópa. Hann hefur einnig beitt sér
á virkan og opinberan hátt í þágu
samkynhneigðra og viðurkenn-
ingu þeirra innan þjóðkirkjunnar.
Hann er óhræddur við að takast á
við erfi ð og krefj andi viðfangsefni
og hann fylgir þeim eftir af ástríðu
og heilindum. Ég held að það sé
mikil þörf á slíkum manni í borg-
arstjórn einmitt núna.
Hjálmar Sveinsson þorði að
vera leiðinlegur á tímum þegar
ekki mátti vera leiðinlegur eða
gagnrýninn á Ís-
landi og það var
margoft reynt að
þjarma að stöðu
hans í útvarpinu á
sínum tíma. Á síð-
ustu árum hefur
hann vakið athygli
fyrir óvenju djúpa og
vandaða greiningu
á þeim skipulags-
vanda sem blasir við
á höfuðborgarsvæð-
inu og verið einn af fáum sem hefur
viljað hrófl a við smákóngaveldinu
sem er smám saman að eyðileggja
höfuðborgarsvæðið með van-
hugsuðum og illa skipulögðum
framkvæmdum. Það þarf að laga
mikið til í innviðum borgarinnar,
ég held að við þurfum menn með
sterka sýn til að stuðla að breyt-
ingum, svo að borgin þróist í rétta
átt þegar næsta byggingarskeið
hefst. Ég held að það þurfi menn
sem hafa hugsað mikið og lengi
um skipulagsmál og ég held að það
þurfi mikla þekkingu og brenn-
andi áhuga til að einhver breyt-
ing verði á. Þess vegna vil ég mjög
gjarnan sjá Hjálmar Sveinsson
komast að í borgarstjórn. Hjálm-
ar hefur auk þess mikla þekkingu
á hálendi Íslands og orkumálum
á Íslandi, hann hefur skrifað og
fj allað um myndlist og tónlist og
skrifað um borgarskáldin sem
hafa sett mark sitt á borgina og
borgarlífi ð á síðustu árum og
áratugum. Ég er alveg sannfærð-
ur um að kraftar hans og reynsla
muni gagnast Reykvíkingum vel.
Ég trúi ekki á neinar instant
byltingar. Ég vona að samfélagið
lagist smám
saman með því
að stjórnmálin
laði til sín gott
og reynslumikið
fólk sem hefur
einhverja sýn og
vill láta gott af sér
leiða. Ég held að
fólk haldi áfram
að vera fólk með
öllum sínum kost-
um og göllum.
Stjórnmál eru ekki mannskemm-
andi, við eigum að hvetja fólk til
að taka þátt í stjórnmálum og hafa
áhrif á mótun samfélagsins. Það
er eina byltingin sem mér dettur í
hug í augnablikinu.
Það vantar gott fólk í alla
fl okka, sem kjósandi hefur mér
sjaldan fundist jafn mikil þekking
og reynsla standa mér til boða og
fi nna má í framboði þeirra Bjarna
og Hjálmars, að öllum öðrum
ólöstuðum auðvitað.
Andri Snær Magnason
skrifar
„Ég held að það sé þörf
á fólki sem hefur sýnt
borgaralegt hug rekki,
hefur sýnt þrautseigju
og fylgt hugsjónum
sínum fast eftir í orði
og á borði.“
Ættu hverfi n í borginni að eiga
hvert sitt merki? Grafíski hönn-
uðurinn Bobby Breiðholt hannaði
merki fyrir átta hverfi . „Það er ekki
bara á landsbyggðinni sem fólk er
stolt af umhverfi sínu“, segir Bobby.
Þessi merki mætti nota á ýmsan
hátt til að gefa borgarlífi nu lit.