Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 16
16 26. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
JOHN WAYNE (1907-1979)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Talaðu lágt, talaðu hægt
og ekki segja of mikið.“
John Wayne var bandarísk-
ur kvikmyndaleikari þekkt-
astur fyrir túlkun sína á
karlmannlegum persónum í
klassískum kúrekamyndum.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Björn Nielsen
loftskeytamaður, Þverárseli 6,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum sunnudaginn 23. maí verð-
ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
2. júní kl. 15.00.
Þórdís Andrésdóttir
Hildur Nielsen Sigurður Sigurjónsson
Andrés Nielsen Ásta Guðrún Jóhannsdóttir
og barnabörn
Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu
samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Hjörleifs Guðnasonar
Gullsmára 9, Kópavogi.
Margrét Hjörleifsdóttir Eiríkur Ólafsson
Elín Hjörleifsdóttir Sumarliði Aðalsteinsson
Guðni Hjörleifsson Sigríður Margrét Vigfúsdóttir
Ingólfur Hjörleifsson Steinunn Jónsdóttir
og barnabörn og barna-barnabörn
Ástkær sonur minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir
Jón Þorsteinsson
frá Siglufirði
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn
20. maí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 28. maí kl 13.00. Blóm og kransar vinsam-
lega afþakkað, þeim sem vilja minnast hans er bent á
Samtök lungnasjúklinga.
Banki: 0115-15-372748 Kt: 670697-2079.
Kristín M. Aðalbjörnsdóttir
Gunnar Þór Jónsson
Anna K. Jónsdóttir
Sólrún H. Jónsdóttir
Margrét Hj. Jónsdóttir Richefeu Olivier
Sumarliði Þór Jónsson Unnur J. Guðbj.
og barnabörn
Björn Þorsteinsson Sigurlaug Indriðadóttir
Eyþór Þorsteinsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Tómas P. Óskarsson
Sóltúni 13, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardag-
inn 15. maí verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 28. maí kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Karitas Jensen
Steinunn Margrét Tómasdóttir Aðalsteinn Karlsson
Þórunn Elín Tómasdóttir Kjartan Jónsson
Bryndís María Tómasdóttir Thomas Möller
Lára Anna Tómasdóttir Hörður Jón Gærdbo
Óskar Már Tómasson Auður Pálmadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför elsku-
legs föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Magnúsar Þórðarsonar,
Hrafnistu Hafnarfirði áður til heimilis
Hraunhvammi 4.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Hrafnistu
Hafnarfirði.
Aðstandendur.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
Ása Sigurðardóttir
frá Eyvindarhólum, A-Eyjafjöllum,
lést 11. maí síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð og vinarhug við andlát hennar.
Baldvin Sigurðsson
Aðalsteinn Guðmundsson
Sigurður Baldvinsson Móeiður Skúladóttir
Ásdís Baldvinsdóttir Guðmundur Þór Brynjúlfsson
Guðjón Baldvinsson Auður Kristrún Viðarsdóttir
Ingunn Baldvinsdóttir Ragnar Þór Hartmannsson
Steingrímur Pétur Baldvinsson Steina Guðrún Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Útför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
Þórarins Stefánssonar
stýrimanns,
fer fram frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 28. maí, kl.
13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim
sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigurbjörg Jónsdóttir
Þökkum ykkur öllum sem sýnduð
okkur hlýhug og vináttu vegna andláts
og útfarar ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu
Guðrúnar Sigurbjargar
Tryggvadóttur
Hvammi Húsavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hvammi fyrir frábæra
umönnun.
Tryggvi Jóhannsson Guðlaug Sigmarsdóttir
Hermann Jóhannsson Gerður Gísladóttir
Óskar Jóhannsson Júlía Úlfdís Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum hlýhug og vináttu vegna and-
láts og útfarar föður okkar
Guðmundar Garðars
Guðmundssonar
Lilja Guðmundsdóttir
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Garðyrkjufélag Íslands var stofnað 26. maí 1885 og verður
því 125 ára í dag. Fyrsta garðaganga félagsins í sumar verð-
ur haldin í kvöld. „Ég ætla að leggja áherslu á gamla garða í
Kvosinni og kringum hana sem eru náttúrulega elstu garð-
ar Reykjavíkur,“ segir Jóhann Pálsson grasafræðingur og
leiðsögumaður göngunnar. „Þetta eru mjög skemmtilegir
garðar sem almenningur veit oft ekki um.“
Jóhann segir að garðar miðbæjarins tengist 125 ára sögu
Garðyrkjufélags Íslands nánum böndum. „Schierbeck sem
ræktar Víkurkirkjugarð stofnar í raun og veru Garðyrkju-
félagið ásamt nokkrum öðrum mönnum,“ upplýsir Jóhann
og segir þessa menn hafa haldið Garðyrkjufélaginu uppi
fyrstu árin. „Svo kemur Einar Helgason og setur á stofn
Gróðrarstöðina við Laufásveg. Raunverulega eru garðar
syðst í Skólavörðuholtinu meira og minna með efnivið frá
Einari Helgasyni.“
Garðagangan hefst klukkan 20 í gamla Víkurkirkjugarði
sem oft er kallaður Fógetagarðurinn. Gengið verður um
miðborgina og komið við í nokkrum elstu görðum borg-
arinnar. „Í þessum hverfum, Grjótaþorpinu, Þingholtun-
um og sunnanverðu Skólavörðuholtinu eru alveg geysilega
skemmtilegir gamlir garðar.“
Inntur eftir því hvernig tré og garðar hafi sett svip sinn á
miðborgina segir Jóhann: „Ef fólk stóð á horninu á Túngöt-
unni gat það séð nokkur fallegustu og elstu tré Reykjavíkur.
Þarna sá fólk silfurreyninn í Fógetagarðinum og gamla gljá-
víðinn sem var þar. Síðan var fallegi álmurinn í Túngötu og
í Grjótagötunni einn fallegasti reyniviður borgarinnar, því
miður er búið að fella hann. Svo er náttúrulega hlynurinn á
horninu á Vonarstræti og Suðurgötu.“ martaf@frettabladid.is
GARÐYRKJUFÉLAG ÍSLANDS: 125 ÁRA
Garðar í Kvosinni
ELSTU GARÐAR REYKJAVÍKUR Jóhann Pálsson segir garða Kvosarinnar,
sem almenningur veit oft ekki um, skemmtilega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AFMÆLI
PAM GRIER
leikkona er 61
árs.
LENNY
KRAVITZ
söngvari er 46
ára.
HELENA BON-
HAM-CARTER
leikkona er 44
ára.
FRIÐRIK
Danakrónprins
er 42 ára.