Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 26. maí 2010 Sarah Jessica Parker var svo stressuð vegna kjólsins sem hún valdi fyrir frumsýningu Sex and the City 2 að hún gat ekki sofið nóttina áður. Margir hafa beðið með spenningi eftir að þessi fram- haldsmynd yrði frumsýnd og það gerðist loks á mánudagskvöld. Sarah Jessica valdi skærgulan Valentino-kjól fyrir frumsýning- una og leit frábærlega út. „Ég svaf ekkert í gær. Ég er ennþá stress- uð,“ sagði hún á frumsýningunni. Sex and the City 2 verður frum- sýnd næsta miðvikudag, 2. júní, í íslenskum kvikmyndahúsum. Sarah svaf ekkert fyrir frumsýninguna GLÆSILEG Sarah Jessica Parker klæddist þessum glæsilega Valentino-kjól á frumsýningu Sex and the City 2 í byrjun vikunnar. NORDICPHOTOS/AFP Leikkonan Lindsay Lohan mætti loks fyrir dómara í gær vegna ýmissa brota og var dæmd til að ganga með ökklaband svo hægt yrði að fylgjast með ferðum hennar og hvort hún haldi sér edrú. Lohan deildi við dómarann og sagðist ekki vilja ganga með slíkt ökklaband því hún þyrfti að mæta í tökur í Texas næstu dagana. Svo virðist sem stúlkan hafi logið að dómaranum því fjöl- miðlar vilja meina að hún þurfi ekki að mæta í neinar töku. „Lindsay er aðeins með tvö verkefni í gangi og talsmenn beggja framleiðslufyrirtækja þvertóku fyrir það að hún þyrfti að mæta í tökur í Texas. Búið er að taka upp kvik- myndina Machete og tökur á næstu kvik- mynd Lindsay fara ekki fram í Texas,“ var haft eftir heimildarmanni. Laug að dómara DÆMD Linds- ay Lohan var gert skylt að ganga með ökklaband svo hægt væri að fylgjast með ferðum hennar. Dalahringur er nýr og bragðmildur hvítmygluostur. Lögun ostsins gerir það að verkum að hann þroskast hraðar en aðrir sambærilegir mygluostar á markaðnum. Gríptu með þér Dalahring í næstu verslun. airgreenland.com Höfuðborg Grænlands - spennandi áfangastaður Þú færð nýja sýn á lífið í ferð til Nuuk. Í þessari aðlaðandi höfuðborg mætast fortíð og framtíð í götumynd gamalla tréhúsa og nýrra bygginga. Það er ógleymanleg tilfinning að sigla inn 100 km langan Nuuk fjörðinn með 1000 metra há fjöll á hvora hlið og sjá í fjarðarbotninum hvernig skriðjökulinn teygir sig ofan í sjó. Frá Nuuk er einnig upplagt að heimsækja þorpið Kapisillit og kynnast hefðbundnu veiðimannaþorpi í stórfenglegri náttúru. FLUG FRÁ KEFLAVÍK TIL NUUK, ÖNNUR LEIÐIN FRÁ AÐEINS 39.160,- ISK* Skattar og gjöld innifalin. *1.749 DKK. Miðað við Visa kortagengi 20.05.2010 og 22.39 ISK = 1 DKK, með fyrirvara um breytingar á gengi ISK.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.