Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 2
2 26. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
Maðurinn sem drukknaði í
sjónum við Stykkishólm á
laugardagskvöld hét Marís
Þór Jochumsson. Hann var 39
ára, fæddur 28. október 1970.
Marís var til heimilis að Vind-
ási 4 í Reykjavík og lætur eftir
sig unnustu og börn úr fyrra
sambandi.
Marís var vanur sjósundi
að því er segir í tilkynningu
frá lögreglunni á Snæfells-
nesi. Hann lagðist til sunds um
klukkan ellefu á laugardags-
kvöld, rétt hjá sjúkrahúsinu í
Stykkishólmi. Þar eru sterkir
straumar. Leit hófst þegar
hann skilaði sér ekki til baka.
Hann fannst látinn um klukku-
stund síðar.
Fórst í sjósundi
DÓMSMÁL Heimilt verður að gera upptæk verðmæti
sem ætla má að einstaklingur hafi aflað með ólöglegri
starfsemi án þess að fyrst komi sakfelling í sakamáli,
verði frumvarp sem nú er fyrir Alþingi að lögum.
„Í raun ætti að vera lítið mál að taka þess konar
breytingar inn í íslenska löggjöf,“ segir Carlo van
Heuckelom, deildarstjóri fjármunarannsóknardeildar
Europol. Hann segir slíka breytingu sérlega eftirsókn-
arverða fyrir Ísland í kjölfar efnahagshrunsins. Þetta
gæti verið besti möguleiki íslenska ríkisins til að ná til
baka peningum sem tapast hafi á hruninu.
Í frumvarpinu sem nú er til umfjöllunar á Alþingi
er opnað fyrir möguleika á því að ríkið höfði sjálfstætt
skaðabótamál, jafnvel þótt enginn hafi verið sakfelld-
ur í sakamáli. Sönnunarbyrðin er mun léttari í skaða-
bótamálum en sakamálum, og því gæti einstaklingur
þurft að greiða bætur fyrir brot sem hann var ekki
sakfelldur fyrir í sakamáli.
Úrræði af þessu tagi eru þegar í löggjöf stórra lýð-
ræðisríkja á borð við Bandaríkin, Kanada, Bretland,
Ástralíu, Írland, Suður-Afríku og fleiri, segir van
Heuckelom.
Hann segir ekkert því til fyrirstöðu að slík lög séu
afturvirk, það er að hægt sé að sækja bætur fyrir brot
sem framin eru áður en lögin taka gildi. Mál þar sem
reynt hefur á lög af þessu tagi hafa farið fyrir Mann-
réttindadómstól Evrópu, og lögin staðist þar alla skoð-
un.
Van Heuckelom mun fjalla um þessar mögulegu
lagabreytingar á opnum fundi Lagastofnunar Háskóla
Íslands í Öskju klukkan 12 í dag. - bj
Mögulegt að gera eigur upptækar án sakfellingar segir sérfræðingur Europol:
Eftirsóknarvert eftir hrunið
FRUMVARP Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur
lagt fram frumvarp um eignaupptöku án sakfellingar. Málið er
nú í nefnd. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Haukur, er Dollý sjókind?
„Hún er að minnsta kosti vel synd
kind.“
Kindin Dollý slapp með skrekkinn þegar
hún féll í sjóinn úr 20 metra hæð á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Haukur
Guðjónsson er eigandi Dollýjar.
DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
að kýla lögreglumann í andlitið
og skalla annan lögreglumann í
ennið.
Fyrri árásin átti sér stað á lög-
reglustöðinni á Húsavík. Lög-
reglumaðurinn hafði afskipti af
manninum, sem sló hann þá. Hinn
fyrrnefndi marðist í andliti og
hlaut áverka undan högginu.
Síðara atvikið átti sér stað á
Akureyri. Þá hafði lögreglumaður
einnig afskipti af manninum sem
ákærður er fyrir að hafa þá skall-
að hann í ennið og slegið hann
með krepptum hnefa í höfuðið. - jss
Ákærður fyrir ofbeldi:
Kýldi og skall-
aði lögreglu
SAMGÖNGUR Olíufélögin lækkuðu
bensínverð um tvær krónur og
verð á dísilolíu um þrjár krónur í
gær, í kjölfar mikillar lækkunar
á olíuverði á heimsmarkaði.
Í gærkvöldi mátti finna ódýr-
asta eldsneytið í Hafnarfirði. Hjá
Orkunni og N1 kostaði bensín-
lítrinn 198,80 krónur og dísil-
olía 195,80 krónur. Verð hjá ÓB í
bænum var tíu aurum hærra.
Utan Hafnarfjarðar kostaði
bensínlítrinn minnst 201,30 krón-
ur og dísilolían 198,30 krónur hjá
Orkunni. Verð hjá öðrum sjálfs-
afgreiðslustöðvum var að jafnaði
tíu eða tuttugu aurum hærra.
Heimsmarkaðsverð á olíu fór í
gær undir 68 Bandaríkjadali. - bj
Eldsneyti ódýrast í Hafnarfirði:
Bensínverðið
þokast niður
FYLLT Á TANKINN Algengt sjálfs-
afgreiðsluverð á bensínlítranum var
rúmlega 201 króna á höfuðborgarsvæð-
inu í gær. NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL SP-Fjármögnun
lækkar höfuðstól bílalána um 28
prósent að meðaltali. Viðskipta-
vinum félagsins býðst að breyta
erlendum bílalánum í verðtryggð
eða óverðtryggð íslensk lán.
Höfuðstólslækkunin fer eftir
myntsamsetningu lána og hve-
nær þau voru tekin. Samkvæmt
útreikningum lækka um 80 pró-
sent lána til einstaklinga um
20 til 40 prósent. „Með þessari
lækkun tekur SP-Fjármögnun ein-
hliða upp það ákvæði í frumvarpi
félagsmálaráðherra, sem liggur
fyrir á Alþingi,“ segir í tilkynn-
ingu. Þá er hægt að lengja láns-
tíma um 12 eða 24 mánuði. - óká
SP lækkar höfuðstól bílalána:
Breyting í takt
við frumvarp
LISTIR „Þetta verða skilaboð til
allra hér á jörðu um að við verð-
um að takast á við hnattræna hlýn-
un,“ segir þýski listamaðurinn
Gert Hof, sem áætlar að lýsa upp
sjálfan Snæfellsjökul í október á
þessu ári.
Hof segist lengi hafa verið hug-
fanginn af Norðurpólnum og að
boð um að koma hingað hafi fallið
vel að því. Hann skoðaði aðstæð-
ur á Snæfellsjökli í gær og kveðst
hei l laður af
landslaginu hér.
„Það er virki-
lega undravert
og á sama tíma
ögrandi fyrir
mig sem lista-
mann,“ segir
hann.
Hof fæddist í
Austur-Þýska-
landi árið 1951.
Hann var lengi leikstjóri og óperu-
stjóri áður en hann gekk rokklist-
inni á hönd á tíunda áratugnum
og útvíkkaði sviðslist sína svo um
munaði. Hof hefur unnið mynd-
bönd með rokksveitum á borð við
Ramstein og Motorhead og lýst upp
fjölmargar byggingar og sögulega
staði um víða veröld. Meðal þeirra
má nefna Akrópólis í Grikklandi.
Hof segir margt þurfa að fara
saman svo verkefnið verði að
veruleika. „Við þurfum rétta fólk-
ið og við höfum rétta fólkið hér.
Í öðru lagi þurfum við réttu pól-
itísku kringumstæðurnar. Fólk-
ið vill þetta. Í þriðja lagi er þetta
ótrúlega fallegur staður. Í fjórða
lagi þarf verkefnið að hafa réttu
skilaboðin og þau eru þetta stóra
umhverfisvandamál allrar jarðar-
innar,“ útskýrir Hof.
Þá kveður Hof sögu Jules Werne
um Ferðina inn að miðju jarðar
í gegnum Snæfellsjökul ljá verk-
efninu sérstaka vídd. „Ég get ekk-
ert sagt á þessu augnabliki um það
hvernig þetta muni líta út en ég vil
segja að Jules Werne var í leiðangri
að miðju jarðar. Ég sjálfur, sem
listamaður, ásamt ykkur, íbúum
Íslands, mun reyna að senda ákall
til himins,“ segir Hof og bendir á að
í raun sé himininn eins og sýning-
artjald sem allir geta litið á.
Bergljót Arnalds og Páll Ásgeir
Davíðsson áttu hugmyndina að því
að fá Hof til landsins. Síðan fengu
þau til liðs við sig íslenska fyrir-
tækið Northern Lights Energy.
Bergljót leiðir tónlistarsköpun
sem verður hluti sýningarinnar
og byggir á hljóðum Snæfellsjök-
uls sjálfs.
Páll Ásgeir segir verkefnið unnið
út frá hugmyndinni um samfélags-
lega ábyrgð. Bæta hafa þurft ímynd
Íslands eftir eldgos og efnahags-
hrun. „Það er snilld fyrir Íslend-
inga eftir að hafa haft eldgos í jökli
á Íslandi að öðrum jökli á landinu
sé breytt í listaverk,“ segir Páll
Ásgeir. gar@frettabladid.is
Snæfellsjökull lýstur
upp til að vekja fólk
Þýski ljósalistamaðurinn Gert Hof stefnir að því að lýsa upp Snæfellsjökul í okt-
óber á þessu ári. Senda á mannkyni öllu skilaboð upp á himinhvelfinguna. Hof
hlaut heimsfrægð fyrir að ljósasýningar við frægar byggingar víða um veröld.
GERT HOF Þýski ljósalistamaðurinn fór
ásamt samverkafólki sínu á Snæfellsjök-
ul í gær og kveðst heillaður af landslag-
inu á Íslandi. MYND/SIGHVATUR LÁRUSSON
LJÓSADÝRÐ Meðal verka Hofs er þessi ljósasýning í Atlanta í Bandaríkjunum.
GERT HOF
Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann
fyrir að hafa í nóvember 2009 haft í
vörslu sinni á heimili sínu 28 kvik-
myndir og 61 ljósmynd sem sýna börn
á kynferðislegan eða klámfenginn hátt.
Myndirnar fundust á fjórum geisladisk-
um við rannsókn lögreglu.
DÓMSTÓLAR
Ákærður fyrir barnaklám
SEÚL, AP Norður-Kóreumenn lýstu því yfir í
gær að þeir myndu hætta öllum samskiptum
við Suður-Kóreumenn í refsingarskyni fyrir
ásakanir þess efnis að Norður-Kóreumenn
hefðu sökkt suður-kóresku herskipi fyrir
tveimur mánuðum.
Norður-Kóreumenn tilkynntu einnig að þeir
myndu reka úr landi alla suður-kóreska emb-
ættismenn sem starfa á sameiginlegu iðnaðar-
svæði landanna tveggja nálægt landamærun-
um.
Mikil spenna er nú á Kóreuskaga eftir að
alþjóðleg rannsóknarnefnd staðfesti að her-
skipinu hefði verið sökkt af norður-kóresku
flugskeyti í lok mars. 46 fórust.
Suður-Kórea hefur sett viðskiptabann á
nágranna sína í norðri og beitt sálfræði-
hernaði á borð við það að flytja áróður úr
stærðarinnar hátölurum sem staðsettir eru á
landamærunum.
Fregnir herma að Norður-Kóreustjórn hafi
skipað her sínum að vígbúast. Bandaríkjamenn
hafa lýst yfir ótvíræðum stuðningi við Suður-
Kóreumenn. Um 28.500 bandarískir hermenn
eru í Suður-Kóreu.
Sameinuðu þjóðirnar og stjórnvöld vest-
rænna ríkja hafa reynt að miðla málum undan-
farna daga og koma í veg fyrir að átök brjótist
út. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, er stödd í Kína í því skyni að sann-
færa Kínverja um að standa að baki ályktunum
og aðgerðum Sameinuðu þjóðanna í málinu. - sh
Kalt stríð er skollið á aftur milli Norður- og Suður-Kóreu eftir stirð samskipti um árabil:
Reynt að miðla málum í eldfimu ástandi
MIKIL REIÐI Suður-kóreskir mótmælendur brenna
norður-kóreskan fána með mynd af Kim Jong-Il, leið-
toga Norður-Kóreu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
Jafnrétti
er velferð
Vi
ns
tri
hr
ey
fin
gi
n
- g
ræ
nt
fr
am
bo
ð
vil
l b
ei
ta
sé
r f
yr
ir
ró
ttæ
ku
m
þjóðfélagsumbótum almenningi til hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta byggð um
allt land.
// sjá m
eira á w
w
w
.vg.is/stefna/
Kynntu þé
r
málið á vg
.is
Ragnar Frank Kristjánsson
VG Borgarbyggð