Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 28
1. 5. 9. 13. 17. 21. 2. 6. 10. 14. 18. 22. 3. 7. 11. 15. 19. 23. 16. 8. 12. 4. 20. 24. Reykjavík | Málgagn Samfylkingarinnar í Reykjavík | 8 24 góðar ástæður til að kjósa Samfylkinguna Foreldrar barna með sérþarfi r eiga allir frekar svipaða sögu. Við höfum öll þurft að hafa töluvert fyrir því að börnin okkar fái að ganga í sína hverfi sskóla. Við þurf- um að halda fundi með stjórnend- um, oftar en ekki að okkar frum- kvæði, til að greina frá þörfum barnanna okkar. Við þurfum sum að auglýsa sjálf eftir starfsfólki til að annast börnin okkar. Við höfum mætt fordómum og van- þekkingu um fötlun barnanna okkar innan skólakerfi sins. Og ofan á allt búum við við stöðugar áhyggjur af því að þjónusta við börnin okkar kunni að skerðast. En sú þjónusta gerir börnunum okkar einmitt kleift að njóta sama réttar og önnur börn. Jöfn tækifæri Og hver er sá réttur? Jú, rétturinn til að ganga í skólann sinn. Við erum ekki að fara fram á neitt annað. Öll börn eiga að njóta sama réttar til menntunar samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna. Eins og ég lít á þetta sem kjósandi þá er „óhjákvæmilegur niðurskurður“ í velferðarmálum og málefnum fatlaðra nokkuð sem á ekki að vera í boði. Það er jafn nauðsynlegt fyrir barn með sérþarfi r að fá aðstoð og að eiga daglega samskipti við börn með venjulegar þarfi r. Stuðningur við börnin okkar snýst auðvitað um grundvallarréttindi fyrir börn- in sjálf en stuðningur við þau er til hagsbóta fyrir allt samfélagið. Fái þessi börn sömu tækifæri til að blómstra geta þau skapað jafn mikil verðmæti fyrir samfélagið og aðrir. Efst í huga Mér fi nnst erfi tt að hugsa til allra þeirra foreldra sem nú búa við stöðugar áhyggjur af niðurskurði. Vegna þess að við elskum börn- in okkar sjáum við verðmætin sem búa í þeim og gerum allt sem við getum til að hlúa að þessum verðmætum og gæta réttar þeirra. Og hjá mér, móður barns með sérþarfi r, verður þetta málefni efst í huga þegar ég kýs 29. maí næstkomandi. VERÐMÆTIN MÍN LÁRA BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR PISTLAHÖFUNDUR HEFUR LOKAORÐIÐ Vinnustöð XS Reykjavík Hafnarstræti 20, 2. hæð Sími 517 0980 Samfylkingin er eini fl okkurinn með raunhæfa áætlun um aukna atvinnu í borginni. Það þarf betri forgangsröðun – ekki 230 milljónir í golfvöll akkúrat núna. Það þarf að minnka kostnað fj ölskyldna við frístundastarf barna. Frjálshyggja er gamaldags og afskiptaleysi skilar engum árangri. Af því Sjálfstæðisfólk vill ekki segja hverjir styrktu það. Dagur yrði frábær borgarstjóri. Því aðgerðaáætlunin Unga Reykjavík verður að komast til framkvæmda strax til að bæta þjónustuna við börnin. Sjá á xs.is/ungareykjavik Hundrað daga meiri- hlutinn stöðvaði sölu Sjálfstæðis fl okksins á þekkingarhluta Orkuveitunnar til útrásarvíkinganna. Það er kominn tími á samvinnu sveitarfélaga í stað samkeppni. Samfylkingin býður fram fl otta blöndu af reyndu fólki og nýjum frambjóðendum. Það þarf að auka vægi samvinnu, siðfræði og skapandi greina á öllum skólastigum. Það þarf að gera leiguhúsnæði að öruggum valkosti. Samfylkingin sættir sig ekki við það að biðraðirnar eftir matar- aðstoð hjálparsamtaka lengist með hverri viku. Það verður að hindra að stéttskipting festi rætur í borginni. Það væri mikill fengur að Hjálmari Sveinssyni fyrir skipulagsmál Reykjavíkur. Samstilltur vaxtarsamningur að frumkvæði Reykjavíkurborgar skapar fl eiri störf. Sjá á xs.is/atvinna Reykvíkingar eru búnir að fá nóg af þessu. Bjarni Karlsson. Björk er óþreytandi baráttukona fyrir velferðinni. Aukinn stuðningur borgarinnar við nýsköpun skapar fl eiri störf og fyllir tómt húsnæði af lífi . Oddný hefur sannað sig sem kraft mikil umbótakona í skólamálum. Samfylkingin vill beita sömu aðferðum og gert var í Árósum. Þar er nú minnsta atvinnuleysið í Danmörku, aðeins 3,6%. Tvöföldun viðhalds skapar fl eiri störf. Framkvæmdir í þágu aldraðra, barna og fatlaðra eða aðra innviði borgarinnar skapa störf.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.