Fréttablaðið - 04.06.2010, Qupperneq 12
12 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR
VEÐUR Veðurstofa Íslands, í sam-
starfi við Umhverfisstofnun,
vinnur að þróun öskufjúksspár
sem mun nýtast á næstu vikum og
mánuðum. Ekki er þó síður horft
til framtíðar og stofnunin lítur á
verkefnið sem undirbúning fyrir
hið óumflýjanlega; næsta sprengi-
gos á Íslandi og vandamál vegna
ösku sem því tengjast.
Sigrún Karlsdóttir, yfirverk-
efnisstjóri hjá Veðurstofunni,
segir að verkefnið sé nýhafið og
sé flóknara en margur heldur.
„Veður er margslungið fyrirbæri.
Til þess að það sé mögulegt að
gefa út marktæka öskufjúksspá
þarf að safna miklu af gögnum.
Fyrir okkur er þetta lærdómsferli
sem mun taka töluverðan tíma.“
Hún segir að fyrstu öskufjúks-
spár geti þó litið dagsins ljós áður
en langt um líður og muni batna
með tímanum.
Vandamál vegna ösku, hvort
sem hún fellur eða fýkur, eru
tekin mjög alvarlega á Veður-
stofunni, að sögn Sigrúnar. Stefnt
er að því að koma upp spálíkani
(reiknilíkani) sem mun nýtast
hér og erlendis. „Þegar búið er
að þróa slíkt tól erum við betur
undirbúin fyrir næsta gos. Það
gýs á Íslandi á fimm ára fresti
að meðaltali, og því lítum við á
þessa vinnu sem viðbót við þann
undirbúning sem er viðhafður
hjá stofnuninni að staðaldri.“
Sigrún segir að gosið virðist ætla
að valda stökki í rannsóknum
og þróunarvinnu í kringum öll
fræðasvið sem tengjast náttúru-
hamförum í líkingu við eldgosið í
Eyjafjallajökli.
Í nokkur ár hefur starfsfólk
Veðurstofunnar haldið æfingar
með tilliti til eldgosa. Viðbrögð
eru æfð út frá gefnum forsendum,
til dæmis út frá veðuraðstæðum
viðkomandi dags. Meginþunginn
hvílir á því að æfa samskipti og
gerð viðvarana. „Það kom sér vel
í Eyjafjallagosinu að hafa æft við-
brögðin með reglulegum hætti.
Svona atburður hefur óteljandi
hliðar sem ekki er hægt að und-
irbúa sig fyrir. Með þeirri fram-
þróun sem nú verður er hægt að
slípa enn betur þá hnökra sem
ekki koma fram á æfingum.“
Björn Oddsson jarðeðlisfræð-
ingur sagði í viðtali við Frétta-
blaðið á miðvikudag að öskufjúk
muni verða viðvarandi vandamál
í sumar. Þá sé það háð veðurfari
næstu mánuði hversu lengi glímt
verður við vandamál vegna ösk-
unnar. Ekki er útilokað að þeir
sem búa næst eldstöðinni þurfi
að reikna með þessum hvimleiða
gesti í nokkur ár.
svavar@frettabladid.is
Spá fyrir um fjúkandi ösku
Hafin er vinna hjá Veðurstofu Íslands við þróun spálíkans fyrir öskufjúk. Vinnan er ekki síst hugsuð sem
undirbúningur fyrir eldgos framtíðarinnar. Fyrstu spár eru hugsaðar fyrir allra næstu daga og vikur.
HREINSUNARSTARF Það liggur fyrir að lengi enn munu menn og málleysingjar þurfa
að búa við óþægindi af völdum öskunnar frá Eyjafjallajökli. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
TREÐUR Á FÉLAGA SÍNUM Hann lét sig
hafa það, þessi hermaður í Hvíta-Rúss-
landi, þegar félagi hans klifraði yfir
hann á æfingu í vikunni.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur karl-
maður hefur verið ákærður
fyrir tvær líkamsárásir á Akur-
eyri.
Samkvæmt ákæru átti sú
fyrri sér stað fyrir utan Kaffi
Akureyri. Maðurinn réðst á
konu, kýldi hana tvisvar í andlit-
ið, sneri hana síðan yfir öxlina
á sér og skellti henni í götuna.
Konan lenti á bakinu og höfuðið
skall í jörðina. Hún marðist og
hlaut eymsli.
Þá er maðurinn ákærður fyrir
að kýla annan mann tvívegis í
andlitið inni á veitingastaðnum
Down Under á Akureyri. Fórnar-
lambið hlaut nokkra áverka.
- jss
Ákærður fyrir líkamsárásir:
Kýldi konu og
skellti í götuna
Stálu fyrir nærri milljón
Tveir karlmenn hafa verið ákærðir
fyrir að brjótast inn í íbúð í Reykja-
vík og stela þar þremur fartölvum,
snyrti tösku með snyrtivörum og
skartgripaskríni, samtals að áætluðu
verðmæti um 735 þúsund krónur.
DÓMSTÓLAR
Fangi með fíkniefni
Fangi á Litla-Hrauni hefur verið
ákærður fyrir að vera með fíkniefni í
klefa sínum. Fanginn vísaði fanga-
vörðum á efnin, eftir að fíkniefnaleit-
arhundur hafði merkt á klefann.
AUSTAN- OG ASA-ÁTT: Lág -
sveitir Suðurlands, Suðurnes og í
áttina til höfuðborgarsvæðisins, yfir
Hvalfjörð og jafnvel Borgarfjörð.
NORÐANÁTT: Aðeins þarf golu
til að dimma öskumóðu leggi
yfir Eyjafjallasveit og á haf út og
jafnvel yfir Vestmannaeyjar.
SUNNANÁTT: Suð- og Suð-
vestanátt er hagstæðasta áttin.
Lengst er í byggð í þeirri vindátt
og miklar líkur á rigningu.
VESTANÁTT: Vík og Kirkju-
bæjarklaustur þegar vindáttir
eru vestanstæðar.
G
R
A
FÍ
K
: S
FA
Reykjavík Hellisheiði Bæir undir Eyjafjöllum
EyjafjallajökullRigning/Snjór
N
S
V A
Vindátt og úrkoma ráða mestu um öskufjúk næstu mánuði og ár
Aska
Öskufjúk
■ Lítilsháttar úrkoma við eldstöðina má sín lítils og
fljótt er að þorna á þessum árstíma sé loftið þurrt.
■ Ekki þarf nema smá golu til að þyrla öskurykinu
upp.
■ Miklar rigningar í sumar og haust gætu takmarkað
öskufjúk næstu ára.
■ Ef snjór fellur snemma og helst lengi geta
vandamál vegna öskufjúks orðið mikil á næsta
ári/árum.
■ Veður í byggð (vindur) segir ekki alla söguna.
Ef mjög hvasst er á Eyjafjallajökli getur það þýtt
öskufjúk í byggð í góðu veðri.
Dæmi: Ef vindur væri vestanstæður
þá er hætta á öskufjúki við bæi undir
Eyjafjöllum sem gæti náð til Víkur eða
jafnvel á Kirkjubæjarklaustur.
Vík og Kirkjubæjarklaustur