Fréttablaðið - 04.06.2010, Síða 20
20 4. júní 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Brjóstsykursgerðin Nói var stofnuð árið 1920 og hefur því
starfað samfleytt í 90 ár. Árið 1933 bættist súkkulaðiverk-
smiðjan Síríus við og úr varð Nói Síríus.
„Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt gegnum árin og
verið í eigu sömu fjölskyldunnar nánast allan tímann. Hér
vinna um 140 manns í dag og við framleiðum flestar tegund-
ir af sælgæti,“ segir Finnur Geirsson en hann hefur gegnt
forstjórastöðu síðustu 20 ár.
Allt til ársins 1970 mátti ekki flytja inn í landið sælgæti
erlendis frá. Það breyttist þegar Ísland gekk í EFTA en í
framhaldinu voru lagðir háir tollar á innflutt sælgæti. Toll-
arnir lögðust svo af á næstu tíu árum og eftir árið 1980
hófst samkeppni íslenskra sælgætisverksmiðja við erlent
nammi fyrir alvöru. Finnur segir þó Nóa Síríus hafa haldið
sínum dampi enda Íslendingar duglegir að borða nammi.
„Menn bjuggust við að við myndum ekki ráða við sam-
keppnina en ég held að þetta hafi frekar hert okkur. Mark-
aðurinn óx líka þegar innflutningurinn var heimilaður. Það
sem hefur þó verið að gerast á íslenskum sælgætismarkaði
síðustu ár er að fyrirtækjum hefur fækkað mjög. Í dag eru
sælgætisfyrirtækin einungis fjögur en voru fyrir tuttugu til
þrjátíu árum á bilinu tíu til fimmtán. Það er í raun merkilegt
í sjálfu sér að eiga 90 ára samfellda sögu að baki og við erum
mjög stolt af því. Við vitum þó líka að við þurfum alltaf að
vera í viðbragðsstöðu. Fyrirtækið er ekkert gamalmenni þó
það sé orðið 90 ára. Við verðum að vera síung til að mæta
kröfum markaðarins,“ segir Finnur og bendir á að stöðugt
sé verið að bæta við vöruúrval Nóa Síríus og bæta við nýj-
ungum. Á móti detti einhverjar eldri tegundir þá jafnan út
sem einhverjir sakni.
„Það er nú því miður ekki hægt að gera öllum til hæfis.
Við munum þó ekki hrófla við Síríus súkkulaðinu sem við
höfum lagt mest upp úr í gegnum tíðina. Suðusúkkulaðið
sem pakkað er tveim plötum saman í smjörpappír hefur til
dæmis verið framleitt og pakkað eins frá upphafi, við ætlum
ekkert að breyta því.“
Íslendingar eru vanafastir á sitt sælgæti og algengt að
Íslendingar búsettir erlendis fái nammisendingar að heim-
an. Finnur segir útlendinga einnig hrifna af íslensku sæl-
gæti og selur Nói Síríus sælgæti með góðum árangri á Norð-
urlöndunum og í Bandaríkjunum og víðar.
Þegar Finnur er inntur eftir því hvort ekki sé erfitt að
standast freistingarnar í sælgætisverksmiðju segir hann
alla daga vera nammidaga hjá Nóa Síríusi. „Hér laumumst
við í súkkulaðið á hverjum degi og pössum bara að bursta
tennurnar vel.“ heida@frettabladid.is
NÓI SÍRÍUS: 90 ÁRA STARFSAFMÆLI
Laumumst oft
í súkkulaðið
ALLIR DAGAR NAMMIDAGAR Finnur Geirsson, forstjóri Nóa Síríus,
segir að laumast sé í súkkulaðið á hverjum degi hjá Nóa Síríusi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Jóhönnu Lúvísu
Þorsteinsdóttur
Víkurbraut 30, Hornarfriði.
Hjartans þakkir til starfsfólks HSSA á Hornafirði fyrir
góða umönnun.
Óskar Unnsteinn Guðmundsson Laufey Óskarsdóttir
Erlingur Kristinn Guðmundsson Kristín Auður
Gunnarsdóttir
Þorgrímur Guðmundsson Auður G. Sigurðardóttir
Sædís Guðmundsdóttir Andrés Ágúst Guðmundsson
Reynir Guðmundsson Sigríður Lárusdóttir
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri
Kjartan Ingi Kjartansson
Brákarbraut 10, Borgarnesi,
andaðist fimmtudaginn 27. maí. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey frá Ólafsvíkurkirkju.
Inga Nelly Husa
Anders Ólafur Kjartansson
Kristín Björg Kjartansdóttir Þorgrímur Benjamínsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Ásgerður
Sigurbjörnsdóttir
sjúkraliði, Byggðavegi 86 Akureyri,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðju-
daginn 1. júní s.l. Útför hennar verður auglýst síðar.
Haraldur Magnússon
Anton Haraldsson
Sigurbjörg Haraldsdóttir
Þorvaldur Rafn Kristjánsson
Sverrir Haraldsson
Magnús Orri Haraldsson
Sigurbjörn Haraldsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, dóttir, systir og amma,
Þuríður Þorbjörg
Káradóttir,
Strikinu 4, Garðabæ,
lést að heimili sínu laugardaginn 29. maí. Útför fer
fram frá Neskirkju föstudaginn 4. júní kl. 15.00.
Þökkum sérstaklega Karitaskonum fyrir frábæra
umönnun í veikindum hennar.
Geir Guðmundsson
Halla Kristín Geirsdóttir
Guðmundur Karl Geirsson Elín Sigríður Grétarsdóttir
Kári Geirsson Gan Songkrant
Kári Halldórsson
Þórhallur Kárason
Þórir Kristinn Kárason
Kristjana Káradóttir
Katla Sóley Guðmundsdóttir
Jóhann Jökull Salbergsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Auðbjörg
Guðmundsdóttir
Illugastöðum, Vatnsnesi,
andaðist mánudaginn 31. maí á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands Hvammstanga. Útförin auglýst síðar.
Jónína Ögn Jóhannesdóttir Birgir Jónsson
Guðmundur Jóhannesson Bjarney G. Valdimarsdóttir
Árni Jóhannesson Anna Olsen
Jónína Auðbjörg Sigurbjörnsdóttir Jóhann Ingi Haraldsson
Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson Þorbjörg Ásbjarnardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
við andlát og útför föður míns, bróður
og frænda okkar
Bjarna Helgasonar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á 4B Hrafnistu,
Hafnarfirði fyrir góða umönnun.
Sigurjón Ingiberg Bjarnason
Helgi Helgason
og frændsystkini.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Sigurðsson
fyrrv. fulltrúi á Landspítala
Herjólfsgötu 38, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn
2. júní. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík mánudaginn 7. júní kl. 15.00.
Dagmar Guðmundsdóttir
Elín Jónsdóttir Ólafur Hallgrímsson
Anna S. Jónsdóttir Jón Ólafur Ólafsson
Jörundur Jónsson Sigrún E. Þorleifsdóttir
Þorbjörg Elenóra Jónsdóttir Árni Gunnarsson
afabörn, langafabörn og aðrir aðstandendur.
Móðir okkar,
Margrét H. Sigurðardóttir
viðskiptafræðingur, Hörgshlíð 8,
Reykjavík,
lést 26. maí. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni
í dag föstudaginn 4. júní kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknarfélög.
Hallgrímur S. Sveinsson
Björg Sveinsdóttir
MOSAIK
GUNNAR DAL ER 87 ÁRA
„Göngum saman inn
um hlið vonarinnar.“
Gunnar Dal er rithöf-
undur og skáld. Hann
hefur skrifað fjölda
rita sem fjalla aðallega
um heimspeki. Einnig
liggja eftir hann nokkr-
ar skáldsögur og ljóða-
bækur auk þess sem
Gunnar Dal hefur þýtt
fjölda ljóða.