Fréttablaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 28
4 föstudagur 4. júní
Anna Sigríður Pálsdóttir,
gjarnan kennd við hár-
greiðslustofuna Gel, er
einn vinsælasti hárstílisti
landsins. Hún klippti hár
í fyrsta sinn aðeins sex
ára gömul og endaði
það með vinslitum.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmyndir: Stefán Karlsson
A
nna Sigríður fæddist
í Líbanon en er alin
upp í Vesturbænum
í Reykjavík. Áhuginn
á hárgreiðslu kvikn-
aði mjög snemma að hennar sögn
og klippti hún sína fyrstu klipp-
ingu aðeins sex ára gömul. „Þegar
ég var yngri vildi ég helst alltaf
vera að fikta í hárinu á fólki, þetta
var hálfgerður „fetish“ hjá mér.
Ég man að ég gerði mína fyrstu
klippingu sex ára og hún heppn-
aðist vægast sagt illa. Ég klippti
hár vinkonu minnar mjög stutt og
það var ekki vel tekið í það, hún
fékk í það minnsta ekki að heim-
sækja mig aftur,“ segir Anna og
hlær. Það var þó ekki fyrr en hún
sá kvikmyndina Edward Scissor-
hands eftir leikstjórann Tim Burt-
on sem hún ákvað endanlega að
leggja fyrir sig hárgreiðsluna. „Það
bara gerðist eitthvað inni í mér á
meðan ég horfði á myndina og ég
ákvað að þetta væri það sem ég
ætlaði að gera í framtíðinni. Það
var eitthvað við klippingarnar
sem hann gerði sem vakti áhuga
minn og þessi tryllti tætingur sem
ég fílaði.“
LÉT GEL GANGA UPP
Anna Sigríður hóf nám í hár-
greiðslu árið eftir stúdentspróf
frá Kvennaskólanum og með-
fram náminu starfaði hún sem
nemi á hárgreiðslustofunni Mojo
sem hafði verið stofnuð skömmu
áður. Að iðnnáminu loknu ákvað
hún að taka sér stutt hlé þar sem
hún sinnti öðrum áhugamálum
og ferðaðist heiminn. „Ég tek mér
eiginlega tveggja ára pásu eftir
iðnnámið. Mér fannst einhvern
veginn vanta upp á þá menntun
sem ég fékk og hæfileika mína og
fannst ég ekki vera búin að upp-
fylla það í náminu hér. Ég frétti
svo af diploma námi úti í Lond-
on á vegum Vidal Sassoon og ég
klára það árið 2003.“ Námið í
London var að sögn Önnu Sigríð-
ar mjög tæknilegt og lítil áhersla
lögð á greiðslur og lagningar ólíkt
því sem viðgekkst hér heima.
„Námið hentaði mér mjög vel.
Það var mikið lagt upp úr því að
kenna okkur alla tækni sem best
og áherslan var fyrst og fremst á
hana.“
Eftir dvölina í London flutti
Anna Sigríður aftur heim til Ís-
lands og tók skömmu síðar við
rekstri hárgreiðslustofunnar Gels
af Jóni Atla Helgasyni, sem er
betur þekktur sem Hárdoktorinn.
„Jón Atli var búinn að nefna það
við mig nokkrum sinnum að hann
vildi að ég tæki við Geli af honum
og ég var til í það. En þegar ég tek
við stofunni misstum við húsnæð-
ið sem við vorum í og þá stóð ég
frammi fyrir því að annað hvort
hætta með stofuna eða vera tut-
tugu og fjögurra ára og taka allan
pakkann, kaupa eigið húsnæði og
halda áfram rekstrinum. Á þeim
tíma fannst mér þetta vera mikil
ábyrgð og ég sá fyrir mér enda-
lausa pappírsvinnu, skattamál
sem ég skildi ekki og himinhá
lán. En þegar maður tekur ákvörð-
un um að láta eitthvað ganga upp,
þá bara gengur það upp og Gel
var slíkt verkefni.“ Anna Sigríð-
ur festi kaup á húsnæði sem er á
horni Hverfisgötu og Klapparstígs
og opnaði þar hárgreiðslustofu
og gallerí undir sama nafni. Stof-
an varð fljótt ein sú vinsælasta
í miðbæ Reykjavíkur og trekkti
fyrirbærið Freaky Fri day marga
að, en þar fengu hárstílistarnir
að hafa algjörlega frjálsar hend-
ur í hári viðskiptavinarins. „Þetta
voru mjög skemmtilegir dagar.
Þetta ýtti undir sköpunargleðina
og allar hömlur dóu,“ segir Anna
og hlær.
KLIPPTI SÍNA FYR
KLIPPINGU SEX Á
Anna Sigríður Pálsdóttir hefur lengi verið einn vinsælasti hárstílisti landsins.
„Þegar ég var yngri vildi ég helst allt-
af vera að fikta í hárinu á fólki, þetta
var hálfgerður „fetish“ hjá mér. Ég
man að ég gerði mína fyrstu klipp-
ingu sex ára og hún heppnaðist væg-
ast sagt illa.“
Fisk
isló
ð
Gra
nda
gar
ður
MýrargataÁna
nau
st
SALON REYKJAVÍK
Vertu velkomin(n)!
FULLT AF NÝJUM VÖRUM
Allir sem versla fyrir
8.000 kr. eða meira fá
hálsklút í kaupbæti.
Við erum á fyrstu
hæðinni í Firði.
VORUM AÐ TAKA
UPP NÝJA SENDINGU
AF SKOKKUM OG
KVARTBUXUM
STÆRÐIR 40–54
Nýja sumarlínan frá
KRON BY KRON
Kron minnir einna helst á sælgæti.
Skórnir eru litríkir og fallegir fyrir augað
en einnig dásamlega þægilegir á fæti.
Hjónin Heiðrún Árnadóttir og Magni
Þorsteinsson hanna skóna í sameiningu
og eru þeir framleiddir á Spáni. Skórnir
hafa slegið í gegn hér á landi bæði vegna
skemmtilegs útlits en einnig vegna þæg-
inda.