Fréttablaðið - 10.06.2010, Blaðsíða 18
18 10. júní 2010 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
Ekki er mikið um leigu-
framboð á fellihýsum
og tjaldvögnum þar sem
verkalýðsfélög á borð við
VR bjóða félögum leigu á
tjaldvögnum á mun lægra
verði heldur en gengur og
gerist.
Þórunn Jónsdóttir, starfsmaður
VR, segir að það sé alltaf að fær-
ast í aukana að fólk vilji leigja
sér tjaldvagna og þeir 22 vagnar
sem VR hefur til umráða á höfuð-
borgarsvæðinu, séu nánast alltaf
í útleigu. Einnig eru þrír vagnar
til leigu á Egils-
stöðum frá VR.
Vikuleiga kost-
ar 18.500 krón-
ur.
Fréttablaðið
ræddi að auki
við þrjá aðila
sem sjá um
verslun á felli-
hýsum og tjald-
vög nu m og
kannaði viðhorf þeirra til þess
breytta árferðis sem ríkt hefur
á landinu á síðustu árum: Ell-
ingsen, Víkurverk og Seglagerð-
ina Ægi. Allir voru sammála
um að fjölskyldufólk ferðist æ
meira hér innanlands og sækist
mun meira eftir notuðum vörum
heldur en þeim nýju.
Angantýr Agnarsson, sölu-
stjóri hjá Ellingsen, segir að
þrátt fyrir minnkandi sölu síðan
í fyrra, sé enn nóg að gera: „Not-
uðu vagnarnir stoppa ekkert við
hjá okkur, þeir rjúka út strax,“
segir hann.
Arnar Barðdal, framkvæmda-
stjóri Víkurverks, tekur í sama
streng og segir að nóg sé að gera
í sölu á vögnum. „Það er mikið
af fjölskyldufólki sem verslar
við okkur og svo eldri hjón sem
vilja njóta lífsins saman,“ segir
Arnar. „Helsti munurinn sem
maður finnur er sá að viðskipta-
vinir vilja helst kaupa notað og
staðgreiða nánast alltaf.“
Seglagerðin Ægir er eina fyrir-
tækið sem hefur vagna til leigu,
en VR og önnur verkalýðsfélög
eru nánast allsráðandi á leigu-
markaði og erfitt að undirbjóða
þau. Vikuleiga á tjaldvagni hjá
Seglagerðinni Ægi kostar 39.000
krónur. sunna@frettabladid.is
„Það er mjög auðvelt að
finna bestu kaupin: Skór,
derhúfur og romm,“ segir
tónlistar- og athafnamaður-
inn Erpur Eyvindarson. „Hin
heilaga þrenning. Ég þarf í
rauninni ekkert meira.“
Erpur segir að konur séu
þær einu sem skilji sig varð-
andi skóáráttuna og að
hann eigi óvenjulega
mikið af skóm, miðað
við það að vera karl-
maður. Uppáhalds
derhúfa Erps er
Adidas-hafnaboltahúfa merkt kúbverska
landsliðinu sem hann keypti sér árið
2003. „Einhverra hluta vegna er þetta
uppáhaldshúfan mín. Hún er eitthvað
bara svo rosalega flott.“ Besta fjárfesting
Erps í romminu er göturomm sem hann
keypti á götunni á Kúbu fyrir einn og
hálfan dollara.
Versta fjárfesting Erps upp á síðkastið
er matarkyns. „Hálfmeltur pappaborgari
á Metro. Það var satanískt og ég held að
hann sé enn þá í mér,“ segir Erpur og
tekur einnig fram að hann sé búinn að
bæta Jónínu Ben í hraðvalið á símanum
sínum eftir þessa lífsreynslu.
NEYTANDINN Erpur Eyvindarson, tónlistar- og athafnamaður:
Skór, derhúfur og romm
„Það er gott húsráð að
setja kaffikorginn alltaf
í eldhúsvaskinn í stað
þess að setja hann í
ruslið því þá stíflast
vaskurinn aldrei.“
„Svo mæli ég
eindregið með því að sem flestir verði
sér út um úkúlele. Það er hljóðfæri
sem allir geta kennt sjálfum sér að
spila á og það tekur aðeins klukku-
tíma að læra helstu hljómana en þá
getur maður spilað nánast öll lög. Svo
framkallar það ljúfa Havaí stemningu
sem lífgar upp á hvert heimili.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
KAFFIKORGINN Í
ELDHÚSVASKINN
■ Kristín Eysteinsdóttir, leikstjóri hjá
Borgarleikhúsinu.
Verkalýðsfélög með
lægsta leiguverðið
ÞÓRUNN
JÓNSDÓTTIR
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Notuð fellihýsi: 500.000-600.000-2.000.000
Notaðir tjaldvagnar: 500.000-1.000.000
Vikuleiga á tjaldvagni: 39.000
VÍKURVERK
Notuð fellihýsi: 1.000.000-1.800.000
Notaðir tjaldvagnar: 600.000-800.000
ELLINGSEN
Notuð fellihýsi: 1.000.000-1.500.000
Notaðir tjaldvagnar: 500.000-700.000
VR
Vikuleiga á tjaldvagni: 18.500
Verðdæmi á notuðum vögnum
Útgjöldin
> Verð á nýmjólkurlítra
Bensínlítrinn hjá Orkunni er
rúmum 10 krónum dýrari á Vest-
fjörðum heldur en á Suðurlandi,
þar sem hann er ódýrastur.
Orkan, sem er í eigu olíufélags-
ins Skeljungs, er með ódýrasta
bensínið á landinu. Hins vegar
er töluverður munur á verði eftir
landshlutum. Á Vestfjörðum kost-
ar lítrinn 196,70 krónur, en á Suð-
urlandi 186,20 krónur. Það munar
sem sagt rúmum 10 krónum á lítr-
ann þar sem hann er dýrastur og
ódýrastur. Á höfuðborgarsvæðinu
er rúmur 10 króna munur á dýr-
asta og ódýrasta dropanum; hjá
Orkunni kostar hann 191,40 krón-
ur og hjá Olís 201,90 krónur.
Framkvæmdastjóri Félags
íslenskra bifreiðaeiganda (FÍB),
Runólfur Ólafsson, segir engar sjá-
anlegar ástæður fyrir því að verð-
ið skuli vera hærra á Vestfjörð-
um en annarstaðar. Til að mynda
sé bensínið einna ódýrast í Vest-
mannaeyjum, þannig að ekki er
hægt að kenna flutningskostnaði
um.
Runólfur segir mjög jákvæða
samkeppni eiga sér stað þessa dag-
ana. Tekur hann sem dæmi nýtt
útspil Orkunnar um verðvernd
sem hófst í gær.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri
Skeljungs sem á og rekur Orkuna,
segir einmitt það vera ástæðuna
fyrir verðmuninum.
„Ef samkeppnisaðili lækkar sig
í einhverjum landshluta, verðum
við að lækka okkur um leið,“ segir
Einar. „Ég vona að þetta verði eitt
verð fyrir allt landið en þeir hafa
ekki farið í lækkanir á Vestfjörð-
um enn þá, svo á meðan stöndum
við einnig í stað.“
Vefsíðan www.bensinverd.is
veitir upplýsingar um bensínverð
og er hún uppfærð reglulega. - sv
Bensínið dýrast á
Vestfjörðum
ORKAN Lítrinn af bensíni hjá Orkunni kostar 186,20 krónur á Suðurlandi en 196,70
krónur á Vestfjörðum.
1999 2001 2003 2005 2007 2009
kr
ón
ur
73 78 83 63 76 11
0
TR ANGO K ID K IDS NEWPORT H2
Ökklaháir léttir gönguskór fyrir börn með góðum sóla,
styrkingu á tá og GORE-TEX® vatnsvörn.
La Sportiva
Verð: 19.800 kr. Verð: 7.800 kr. Verð: 8.500 kr.
CORONADO
Þægilegir strigaskór fyrir börn með gúmmívörn á tá.
Keen
Sterkir og endingargóðir barnasandalar með lokaðri tá.
Fást í brúnu og rauðu.
Keen
Stærðir:
30-40
Stærðir:
21-37
Stærðir: 33-35
með reimum
Verð: 7.900 kr.
Stærðir: 21-30
með rifl ás
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki