Fréttablaðið - 10.06.2010, Page 28
10. júní 2010 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Mér finnst alltaf gaman að eiga afmæli, ég er svo barna-
leg,“ segir skáldið og rithöfundurinn Gerður Kristný Guð-
jónsdóttir, sem heldur upp á fertugsafmælið sitt í dag.
Stórafmælinu fagnar hún með dömuboði síðdegis fyrir
um það bil fjörutíu vinkonur sínar og býður upp á tapas og
ljúfar veigar. „Þegar ég var krakki gat ég sjaldnast haldið
upp á afmælið mitt því þá voru vinkonur mínar alltaf farn-
ar upp í sveit, til útlanda eða í sumarbúðir. Nú sýnist mér
aftur á móti sem mætingin ætli að verða býsna góð svo ég
hlakka mikið til,“ segir skáldið.
Sumarið, og raunar bróðurpart ársins, nýtir Gerður til að
vinna að söngleik sem hún er að semja upp úr hinum vinsælu
barnabókum sínum, Ballinu á Bessastöðum og Prinsessunni
á Bessastöðum. Söngleikurinn nefnist Draugurinn á Bessa-
stöðum og verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í janúar í
leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Baggalúturinn Bragi Valdi-
mar Skúlason semur tónlistina. „Þessa dagana er ég því að
semja söngtexta upp í kýr, landnámshænu og svo auðvitað
forseta Íslands sem tekur líka lagið í sýningunni. Ég samdi
mikið af vísum þegar ég var í menntaskóla og það er gaman
að endurnýja kynnin af þeirri kúnst. Það er feikigaman að
hafa verið sjanghæjuð inn í leikhúsið og fá að kynnast því á
þennan hátt,“ segir Gerður.
Sumarið verður viðburðaríkt því í lok júlí fer hún til Visby
á Gotlandi og dvelur þar í þrjár vikur við að ljúka við ljóða-
bókina Blóðhófni sem kemur út í haust. Fyrstu tveimur vik-
unum eyðir hún við skriftir í rithöfunda- og þýðingamiðstöð,
en svo koma eiginmaður hennar og tveir synir í heimsókn.
„Ég var í Visby fyrir þremur árum og þá skall á Miðalda-
vika, þegar fólk klæðir sig upp í búninga og ríður um götur
með fána og vopn. Þá eru dansaðir miðaldadansar, keppt í
burtreiðum, snædd heilsteikt svín og fleira. Þetta er hrein-
lega það fyndnasta sem ég hef séð. Þá hugsaði ég með mér
að ég þyrfti að sýna strákunum þessa brjáluðu eyju og nú
er sem sagt komið að því,“ segir Gerður. kjartan@frettabladid.is
gerður Kristný: er fertug
Dömuboð í dag
afmæli gerður hlakkar mikið til boðsins. fréttablaðið/valli
90 ára afmæli
Jónína Jónsdóttir
frá Gemlufalli
Í tilefni af 90 ára afmæli mínu væri
mér það sönn ánægja að sjá vini og
vandamenn í félagssal SH, Ásvallalaug,
Ásvöllum 2, Hafnarfi rði, föstu daginn
11. júní á milli kl. 17.00 til 19.00.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og ástkær vinur,
Páll Gestsson
skipstjóri frá Siglufirði,
Tjarnabóli 6, Seltjarnarnesi,
andaðist á Landspítalanum 7. júní.
Anton Valur Pálsson
Rakel Guðný Pálsdóttir Gunnlaugur Ingimundarson
Svanbjörg Pálsdóttir Mia Bergström
Sjöfn Pálsdóttir Þórhallur Sigurðsson
Kristjana Pálsdóttir Andrés Bjarnason
Gestur Pálsson Linda Guðlaugsdóttir
Árni Valur Antonsson Marleen van Geest
Björg Finnbogadóttir
barnabörn og langafabörn.
Ástkær sonur okkar,
Óskar Sigurður
Þorsteinsson,
Brekkum III, Mýrdal,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
7. júní 2010,
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorsteinn Einarsson Guðlaug Matthildur Guðlaugsdóttir
Systir mín,
Margrét Halldórsdóttir
frá Skeggjastöðum, Flóa, Kleppsvegi 30,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 5. júní. Útförin verður
auglýst síðar.
Guðmundur Helgi Halldórsson
Okkar innilegustu þakkir til allra
þeirra er auðsýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar
sambýliskonu minnar, systur, mágkonu
og frænku,
Kristínar Maríu Bagguley,
Rafnkelsstaðavegi 8, Garði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu
Garðvangi, fyrir sérstaklega góða umönnun og hlýtt
viðmót.
Reidar Óskarsson,
ættingjar og vinir.
Okkar ástkæri
Stefán Þorkell Karlsson,
Nýbýlavegi 78, Kópavogi,
lést á heimili sínu 2. júní sl. Jarðarförin fer fram frá
Digraneskirkju þriðjudaginn 15. júní kl. 15.00.
Þóra Vilhjálmsdóttir
Stefán Bjartur Stefánsson Bryndís Guðmundsdóttir
Helga Sonja Hafdísardóttir Ragnar Garðarsson
Ingibjörg Ósk Elíasdóttir Þórður Már Sigurðsson
Davíð Stefánsson Alma Ösp Árnadóttir
Stefanía Katrín Sól Stefánsdóttir
Júlíus Þór Halldórsson
Vilhjálmur Þór Þóruson
Jóna Karlsdóttir
Stefanía Karlsdóttir Jóhannes G. Pétursson
Guðbjörg Edda Karlsdóttir Gunnar Sigurðsson
Sólveig Gyða Guðmundsdóttir Gunnar Ólafsson
Stefanía Júlíusdóttir Vilhjálmur Þorsteinsson
og barnabörn.
100 ára afmæli
Páls Kristins
Maríussonar
Fæddur 10. júní 1910
Dáinn 3. september 1989
Ástkær dóttir okkar, systir og barna-
barn,
Sigrún Mjöll
Jóhannesdóttir,
sem lést fimmtudaginn 3. júní, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 11. júní
klukkan 15.
Jóhannes Kr. Kristjánsson Brynja Gísladóttir
Elma Helgadóttir Halldór Hilmir Helgason
Helga Egla Björnsdóttir
Gunnar Pálsson
Alexander Gunnarsson
Arnór F. Gunnarsson
Björn Aron Jóhannesson
Bríet Arna Jóhannesdóttir
Gísli Kristján Jóhannesson
Þórunn Kr. Bjarnadóttir Ingimundur Guðmundsson
Eydís Ólafsdóttir Bergur Thorberg
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
Jón Eiríksson
Vorsabæ
verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugar-
daginn 12. júní kl. 11.00. Jarðsett verður í
Ólafsvallakirkjugarði.
Emelía Kristbjörnsdóttir
Valgerður Jónsdóttir
Eiríkur Jónsson Hulda Nóadóttir
Björn Jónsson Stefanía Sigurðardóttir
Ingveldur Jónsdóttir Guðmundur Ásmundsson
afa- og langafabörn
Okkar innilegustu þakkir til allra
er auðsýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Liss Mudie Ólafsson,
áður til heimilis að Suðurtúni 1, Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og
hlýtt viðmót.
Ólafur Einarsson Guðbjörg Halldórsdóttir
Maríanna Einarsdóttir Þorsteinn Marteinsson
Guðrún Einarsdóttir Einar Páll Svavarsson
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Þorleifur Þorláksson
Langhúsum, Fljótum, Skagafirði,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar, Siglufirði
5. júní 2010. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
föstudaginn 11. júní kl. 13.30. Jarðsett verður að Barði
í Fljótum. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð
en þeim sem vilja minnast hans er bent á minning-
arsjóð Rakelar Pálmadóttur nr. 0310-13-703015 kt.
561179-0189.
Sigurbjörn Þorleifsson Bryndís Alfreðsdóttir
Guðný Ó. Þorleifsdóttir Elías Æ. Þorvaldsson
Jóhanna Þorleifsdóttir Hallgrímur S. Vilhelmsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra
er auðsýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Liss Mudie Ólafsson,
áður til heimilis að Suðurtúni 1, Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og
hlýtt viðmót.
Ólafur Einarsson Guðbjörg Halldórsdóttir
Maríanna Einarsdóttir Þorsteinn Marteinsson
Guðrún Einarsdóttir Einar Páll Svavarsson
barnabörn og langömmubörn.
judy garland (1922-1969) fædd-
ist þennan dag:
„Á bak við sérhvert ský er
annað ský.“
Bandaríska leik- og söngkon-
an Judy Garland er best þekkt
fyrir lagið Over the Rainbow og
leik sinn í kvikmyndinni Galdra-
karlinum í Oz frá árinu 1939.
Hún lést í London af of stórum
skammti eiturlyfja aðeins 47
ára gömul.