Fréttablaðið - 30.06.2010, Síða 26
30. JÚNÍ 2010 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● jaðarsport
Hjólreiðafélag Reykjavíkur og
Skógræktarfélag Reykjavíkur
stendur fyrir svokallaðri Heið-
merkuráskorun í kvöld.
Heiðmerkuráskorunin er árviss
hjólreiðakeppni og verða þrautirn-
ar með svipuðu sniði og undanfar-
in ár.
Keppt er í þremur flokkum,
börn, unglingar og fullorðnir.
Krakkakeppnin hefst klukkan
19.30. og er keppt í flokki 8-13 ára,
stelpur og strákar. Hjólaðir verða
1 til 2 hringir eftir aldri.
Keppnisgjald er 3.000 krónur og
fer skráning fram í dag. Frekari
upplýsingar er að finna á heima-
síðunni www.hfr.is. - rat
Hjólreiðakeppni
í Heiðmörk
Keppt er í þremur flokkum: fyrir börn,
unglinga og fullorðna.
„Þetta er einn af þeim hópum sem okkur þótti
vanta almennilega aðstöðu og af þeim sökum
var ráðist í þessar framkvæmdir,“ segir Atli
Steinn Arnarsson, formaður hjá frístunda-
miðstöðinni Gufunesbæ, um nýja hjólabretta-
aðstöðu, sem þar var tekin í notkun 24. júní.
Hjólabrettaaðstaðan var meðal annars
vígð af þekktum hjólabrettamönnum á
opnunarhátíðinni sem stóð fram undir kvöld.
Atli segir nýju hjólabretta-
aðstöðuna vera hluta af þeirri
stefnu ÍTR að bygggja upp útivist-
arsvæði með fjölbreyttum mögu-
leikum við Gufunesbæ. „Draum-
urinn er svo að láta byggja utan-
dyra sérhannað hjólabrettasvæði,
það er steypt svæði, fyrir þennan hóp
í framtíðinni,“ bætir hann við. - rve
Nýtt svæði fyrir
hjólabrettafólk
Á svæðinu er meðal annars gamli bóndabærinn, hlað-
an og súrheysturninn sem nýttur er til veggjaklifurs og
auk þess er golfvöllur á túnunum við Gufunesbæinn og
nú ný hjólabrettaaðstaða.
● FYRSTU SKREFIN Á
LÍNUSKAUTUM Línu-
skautar eru skemmtilegt og
vaxtarmótandi sport sem
krefst æfingar og því gott að
fara hægt af stað.
● Ef þú hefur aldrei áður
stigið á línuskauta getur verið
stórmál að standa á þeim í
fyrsta sinn. Byrjaðu að standa
í skautana í grasi eða öðru
mjúku undirlagi og stattu
smástund áður en þú reynir að
taka skref í ólíkar áttir. Með því
geturðu í það minnsta gengið
á línuskautum þótt þú kunnir
ekki enn að renna þér á þeim.
● Það er taugatrekkjandi að
renna sér í fyrsta sinn á línu-
skautum en til að ná árangri
er gott jafnvægi mikilvægast.
Æfingin skapar meistarann og
gott er að finna lítinn halla þar
sem þú getur látið þig rúlla
áður en þú stoppar. Fáðu svo
vin til að draga þig upp svo
þú getir æft þetta aftur og
aftur. Einnig er gott að æfa sig
á stað þar sem þú getur tekið
höndum tveim um handrið
eða stutt þig við veggi.