Fréttablaðið - 03.07.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.07.2010, Blaðsíða 2
2 3. júlí 2010 LAUGARDAGUR Jóhannes, hefurðu marga fjöruna sopið? „Já og margt á fjörur mínar rekið á undanförnum tuttugu árum.“ Jóhannes Viðar Bjarnason er vert á Fjörukránni í Hafnarfirði, sem er tuttugu ára um þessar mundir. TOLLGÆSLA Fjórir Rúmenar, tveir karlar og tvær konur, voru látin greiða rúmlega 50 þúsund krónur í sekt eftir að þau höfðu verið grip- in með um 26 kíló af smygluðum skartgripum í fyrradag. Tollgæsl- an á Seyðisfirði hafði afskipti af fjórmenningunum sem komu með Norrænu til landsins frá Dan- mörku. Góssið hafði verið vand- lega falið í frambrettum tíu ára gamallar Benz-bifreiðar, að sögn Árna Elíssonar, yfirmanns toll- gæslunnar á Seyðisfirði. Hann sagði að þar hefði einkum verið að finna hringa og hálsmen, sem virtust vera óekta glingur. Smyglvarningurinn var gerður upptækur. „Fólkið hefur líklega ætlað að koma þessu í verð hér,“ sagði Árni. „Þegar lyktir málsins urðu þessar hafði það hins vegar enga löngun til að dvelja hér lengur og keypti sér farmiða með Norrænu úr landi með það sama. Það verður þó að bíða hér í viku áður en það kemst burt með næstu ferð.“ Árni sagði að vissulega væri sektin sem fólkið hefði fengið ekki há. En höfuðrefsingin hefði í raun verið að missa vöruna. „Það er í raun og veru það sem kippir fótunum undan fólki,“ sagði hann.“ Svo endar þetta náttúru- lega á uppboði og ríkið fær vænt- anlega einhverja peninga að auki þar. Síðast en ekki síst fer þetta ekki á almennan markað þar sem menn eru í lögmætum viðskiptum. Venjan hjá þessu fólki er að reyna að telja viðskiptavinum trú um að þetta séu verðmætir skartgripir og reyna að selja þá á sem hæstu verði.“ jss@frettabladid.is SMYGLVARNINGURINN Vel hafði verið búið um glingrið, eins og myndin sýnir, áður en það var kirfilega falið í frambrettum bílsins. Gripin með 26 kíló af smygluðu glingri Fjórir Rúmenar voru gripnir á Seyðisfirði með 26 kíló af smygluðum skartgrip- um. Þeim hafði verið komið fyrir í frambrettum gamallar Benz-bifreiðar. Að sögn yfirmanns tollgæslunnar á Seyðisfirði átti líklega að selja gripina hér. MEXÍKÓ Forsprakki eiturlyfjahrings í Mexíkó hefur lýst því verki á hendur sér að fyrirskipa morð á bandarísk- um ræðismanni, Lesley Enriquez, og eiginmanni henn- ar sökum þess að hún hafi veitt andstæðingum hans vegabréf í landamæraborginni Ciudad Juarez. Maðurinn heitir Jesus Ernesto Chavez og var hand- tekinn í síðustu viku. Er hann leiðtogi hóps leynimorð- ingja sem vinna fyrir gengi, samkvæmt fíkniefnadeild lögreglunnar í landinu. Lögreglan staðfestir orð Chavez um að hafa fyrir- skipað morðið á Enriquez og eiginmanni hennar, sem framið var 13. mars. Enriquez var gengin fjóra mán- uði með barn þeirra hjóna, en þau voru bæði skotin til bana í bifreið sinni á leið heim úr afmælisveislu. Sjö mánaða gömul dóttir þeirra fannst grátandi í aftur- sætinu í kjölfarið. Jorge Alberto Salcido, eiginmaður annars banda- rísks ræðismanns, var einnig skotinn til bana í bíl sínum eftir að hann yfirgaf sömu afmælisveislu. Átök samtaka Chavez við aðra fíkniefnahringi í borginni hafa gert Ciudad Juarez að einni hættuleg- ustu borg í heimi. Rúmlega 2.600 manns voru myrtir á síðasta ári, en íbúar borgarinnar eru 1,3 milljónir. - sv Bandarískur ræðismaður, ófrísk af sínu öðru barni, myrtur í bíl sínum í Mexíkó: Myrt ásamt manni sínum á leið heim úr afmælisveislu Í JÁRNUM Chavez sést hér í miðið ásamt félögum í glæpa- gengi, en þeir voru handteknir nýverið. NORDIPHOTOS/AFP ICESAVE „Það hefur gengið mjög erfiðlega að koma þessum við- ræðum aftur í gang eftir þjóðarat- kvæðagreiðsluna í mars. En það er jákvætt að menn eru nú tilbúnir til að fara í þessa vinnu aftur,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra. Samninganefnd íslenskra stjórn- valda fundaði hér á fimmtudag og í gær með fulltrúum breskra og hollenskra stjórnvalda um lyktir Icesave-málsins. Síðast var fund- að um málið 5. mars. Daginn eftir felldi meirihluti kjósenda Icesave- lögin frá því í desember í fyrra í þjóðaratkvæðagreiðslu. Stefnt var að því að halda viðræðum áfram eftir atkvæðagreiðsluna en af því varð ekki. Fyrir samninganefndinni fór bandaríski lögfræðingurinn Lee Buchheit auk ráðuneytisstjóranna Guðmundar Árnasonar og Einars Gunnarssonar og lögfræðinganna Jóhannesar Karls Sveinssonar og Lárusar Blöndal. Þeim til ráðgjaf- ar eru sérfræðingar ráðgjafarfyr- irtækisins Hawkpoint og lögfræði- stofunnar Ashurst. „Þetta var upplýsingafundur þar sem farið var yfir stöðuna og frek- ari viðræður undirbúnar. Menn eru sestir við borðið aftur og til- búnir til að vinna í málinu,“ segir Steingrímur sem reiknar með að næsti fundur verði boðaður eftir sumarfrí í ágúst. - jab Fundað í fyrsta sinn um Icesave-málið eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í mars: Erfitt að fá menn að borðinu STEINGRÍMUR J. Menn eru nú tilbúnir að vinna í málinu á ný segir ráðherra. HEILBRIGÐISMÁL Notendum sýkla- lyfja á Íslandi fækkaði um níu pró- sent á árinu 2009. Landlæknisemb- ættið segir hugsanlegar skýringar á þessu vera hátt verðlag, kostnað- arþátttöku Sjúkratrygginga Íslands og fækkun landsmanna. Þá hafi læknar verið hvattir til að forð- ast notkun ákveðinna sýklalyfja. Í heild urðu afar litlar breytingar á fjölda lyfjaávísana frá árinu 2008 þótt töluverðar sveiflur hafi orðið innan einstakra lyfjaflokka. Þannig jókst fjöldi notenda blóðlyfja um ellefu prósent. Þá er vitnað til skýrslu OECD sem sýnir að notkun þunglyndislyfja er mest á Íslandi af öllum OECD-ríkjunum. Notkun- in hefur verið jöfn síðustu ár. - gar Breytingar í ávísun lyfja: Færri eru nú á sýklalyfjum ATVINNA Reykjavíkurborg mun veita 37,5 milljóna króna auka- fjárveitingu til atvinnuskapandi verkefna fyrir unglinga á aldr- inum 17 til 18 ára í sumar. Var þetta samþykkt á borgarráðs- fundi í gær. Gera fjárveitingarn- ar það mögulegt að ráða 135 ung- menni til tímabundinna starfa í borginni í júlí og ágúst. Tillaga Vinstri grænna um að veita Hinu húsinu 2,5 milljón- ir króna til ráðningar ungmenna með fötlun til sumarstarfa var einnig samþykkt. - sv Fjárveiting samþykkt í gær: Skapa 135 störf fyrir ungmenni EVRÓPUMÁL Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna og formaður utanríkismálanefndar, telur að það væru mistök að draga umsókn Íslands að Evrópusam- bandinu til baka. Þetta segir hann í grein í Frétta- blaðinu í dag. Árni Þór segir Vinstri græn eiga að vera óhrædd við að afla stefnu sinni í málinu fylgis. Nauðsynlegt sé hins vegar að ræða málið opinskátt og þess vegna væri óráð að draga umsókn- ina til baka. „Það myndi að ég tel setja lok á frekari þjóðarumræðu um kosti og galla aðildar og koma í veg fyrir að þjóðin tæki ákvörð- un á grundvelli upplýstrar umræðu og málefnalegra röksemda.“ Ekki sé heldur trúverðugt að draga umsóknina til baka á grundvelli skoðanakannana. - bs / sjá síðu 12. Árni Þór Sigurðsson um ESB: Mistök að draga umsókn til baka LÖGREGLA Umferð var í þyngri kantinum í austur og vestur út úr borginni síðdegis í gær og fram undir kvöld, samkvæmt upplýs- ingum frá umferðadeild lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var í samræmi við áætlan- ir lögreglunnar en í gær hófst ein af helstu ferðahelgum sumarsins. Lögregluyfirvöld og Landhelg- isgæslan hafa samræmt aðgerðir um helgina en þyrla Landhelgis- gæslunnar flaug yfir þjóðvegum með lögreglumann innan borðs í gær og sinnti vegaeftirliti. Hún mun sömuleiðis gera það eftir klukkan fjögur á morgun en þá er búist við þungri umferð aftur inn í borgina. - jab Þung umferð út úr bænum: Þyrla nýtt við vegaeftirlit ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON SPURNING DAGSINS STANGVEIÐI Úrhellisrigning í Borg- arfirði í fyrrdag varð til þess að vatnsmagn í Norðurá sexfaldaðist að því er segir á vef Stangveiðifé- lags Reykjavíkur. Leita þurfi aftur til ársins 2005 til að finna viðlíka rigningu í júlí. Eins og stendur sé áin mjög lituð og vart veiðandi en framhaldið lofi góðu. „Áður en lit- urinn brast á fóru á milli 60 og 70 laxar um teljarann en búast má við sprengingu er vatnsskyggni lagast og sá haugur af laxi sem safnast hefur neðan Glanna gengur foss- inn. Þetta eru stórkostleg tíðindi og vatn á myllu veiðimanna.“ - gar Rigning sögð himnasending: Vatn sexfaldast í Norðurá Allar hálendisleiðir opnar Frá og með deginum í gær eru allar leiðir á hálendinu opnar fyrir umferð. Góð færð er um allt land en fyrsta helgin í júlí hefur yfirleitt verið ein stærsta ferðahelgi ársins. SAMGÖNGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.