Fréttablaðið - 03.07.2010, Blaðsíða 6
6 3. júlí 2010 LAUGARDAGUR
EFNAHAGSMÁL Verði niðurstaða
Hæstaréttar sú að miða við samn-
ingsvexti á öllum gengistryggðum
lánum getur það haft alvarlegar
afleiðingar fyrir efnahagslífið,
tafið fyrir afnámi gjaldeyrishafta,
jafnvel verði að hækka skatta.
„Því lægri sem vextirnir verða
þeim mun meira verður áfall-
ið á bankana og ríkissjóð,“ segir
Franek Rozwadowski, sendifulltrúi
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
hér á landi, í samtali við Frétta-
blaðið. Hann segir tilmælin sem
Seðlabankinn og Fjármáleftirlitið
lögðu fram í vikunni jákvæð eftir
þá óvissu sem skapaðist í kjölfar
dóms Hæstaréttar fyrir hálfum
mánuði. Hann segir mikilvægt að
eyða óvissunni sem fyrst.
Franek segir áhyggjuefni að á
meðan óvíst sé við hvað eigi að
miða í stað gengistryggingar sé
útlit fyrir að endurskipulagn-
ing skulda heimila og fyrirtækja
landsins tefjist meir en orðið er.
Það sama eigi við um afnám gjald-
eyrishafta. Már Guðmundsson
seðlabankastjóri sagði á vaxta-
ákvörðunarfundi Seðlabankans í
síðustu viku fyrstu skref í afnámi
haftanna geta hafist í haust, eigi
síðar en í október. Franek vill ekki
dagsetja afnám hafta, en segir:
„Þetta er skólabókardæmi. Gjald-
eyrishöftum er ekki aflétt þegar
óvissa ríkir í efnahagsmálum.“
Franek leggur áherslu á að
Hæstiréttur skeri eins fljótt og
auðið sé úr um hvað taki við af
gengistryggðum lánum og hvern-
ig þau beri að skilgreina. Verði
niðurstaðan sú að samningsvext-
ir standi og að skilgreining á ólög-
mæti gengistryggðra lána nái til
bíla-, íbúða- og neyslulána auk
fyrirtækjaskulda muni það hafa
alvarlegar afleiðingar fyrir efna-
hagslífið.
„Bankarnir geta tekið eitthvað
á sig. En þeir munu aldrei ráða við
þetta allt,“ segir Franek og bætir
við að þótt kröfuhafar muni leggja
eitthvað af mörkum til að bæta
hag bankanna muni megnið af
nýju hlutafé koma frá ríkissjóði.
Það verði kostnaðarsamt, ekki síst
þegar við bætist að ríkissjóður
ábyrgist nú þegar allar innistæð-
ur í bankakerfinu. „Þetta gæti
leitt til hærri skatta og sársauka-
fullra aðgerða til að grynnka á
skuldum hins opinbera. Við það
mun hægja á efnahagsbatanum,“
segir Franek Rozwadowski.
jonab@frettabladid.is
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær karlmann til að
greiða áttatíu þúsund krónur í sekt
fyrir að hafa greitt fimmtán þús-
und krónur fyrir vændi.
Þá var annar karlmaður dæmd-
ur til að greiða fjörutíu þúsund
krónur fyrir tilraun til að vændis-
kaupa. Hulda Elsa Björgvinsdótt-
ir saksóknari sagði við Vísi.is að
verið væri að fara yfir það hvort
dómunum yrði áfrýjað því til þess
þarf sérstakt áfrýjunarleyfi frá
Hæstarétti vegna þess hve sekt-
arupphæðirnar eru lágar í báðum
málunum.
Alls voru ellefu manns ákærðir
vegna viðskipta sinna við Catalinu
Mikue Ncogo og vændiskonur á
hennar vegum á síðasta ári. Menn-
irnir keyptu vændi fyrir allt upp í
tuttugu þúsund krónur. Þetta eru
fyrstu dómarnir sem falla í mál-
inu, svokölluð útivistarmál þar sem
ákærðu mættu ekki við fyrirtöku.
Málin voru því dæmd að þeim fjar-
stöddum. Von er á dómum úr hinum
níu málunum í haust.
Upphaflega voru sautján vændis-
kaupamál rannsökuð en sex af þeim
voru felld niður þar sem þau þóttu
ekki líkleg til sakfellingar. - jss
ÞINGFEST Öll vændiskaupamálin hafa
verið þingfest.
Dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir vændiskaup og tilraun til vændiskaupa:
Tveir dæmdir í sekt fyrir vændiskaup
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Vest-
mannaeyjum fann marijúana, hass
og fjármuni í íbúð í fjölbýlishúsi í
bænum í fyrrakvöld.
Lögreglan gerði húsleit í íbúð-
inni. Við hana fundust um 55
grömm af marijúana og nokkur
grömm af hassi. Einnig fundust
um 170 þúsund krónur í peningum.
Húsráðandi var handtekinn og
færður í fangaklefa. Hann viður-
kenndi að eiga efnin en sagði þau
til eigin nota. Maðurinn er þrítug-
ur og hefur áður komið við sögu
lögreglu vegna fíkniefnamála. - jss
Lögregla gerði húsleit:
Fann fíkniefni
og fjármuni
STJÓRNMÁL Hafinn er undirbún-
ingur stjórnlagaþings og þjóð-
fundar. Sjö manna stjórnlaga-
nefnd var kjörin á Alþingi 16.
júní og nú hefur forsætisnefnd
þingsins skipað þriggja manna
undirbúningsnefnd stjórnlaga-
þings. Nefndin á að undirbúa
stofnun og starfsemi stjórnlaga-
þingsins ásamt undirbúningi
fyrir þjóðfund. Einnig að undir-
búa kynningu á starfsemi þings-
ins, setja upp vefsíðu, útvega
húsnæði og undirbúa ráðningu
starfsmanna þingsins. Formaður
undirbúningsnefndarinnar er
Þorsteinn Magnússon, aðstoðar-
skrifstofustjóri á Alþingi. - gar
Undirbúningur á Alþingi:
Ráða starfsfólk
stjórnlagaþings
ALÞINGI Forsætisnefnd hefur skipað
undirbúningsnefnd fyrir væntanlegt
stjórnlagaþing.
Innifalið í verði: Flug aðra leið til Alicante með flugvallarsköttum.
Flogið allt að þrisvar í viku út október.
SKIPULAGSMÁL Fjölmargir íbúar
í nágrenni Háskóla Íslands hafa
sent skipulagsyfirvöldum í
Reykjavík athugasemdir vegna
breytinga á deiliskipulagi vegna
Vísindagarða Háskóla Íslands
ehf. Meðal annars á að skipta
lóð Háskólans upp í sjö lóðir
fyrir Vísindagarða, Stúdenta-
garða og spennistöð Orkuveitu
Reykjavíkur. Auk þess sem
athugasemdir hafa borist frá
íbúum í nálægum götum gerir
Max Dager, forstjóra Norræna
hússins, athugasemdir við nýju
skipulagsáformin. - gar
Háskólinn mætir andstöðu:
Íbúar gagnrýna
breytt skipulag
FULLTRÚAR AGS Taki samningsvextir við af gengistryggingu getur það haft alvarlegar
afleiðingar, að sögn Franeks Rozwadowskis, sendifulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Hann situr hér á hægri hönd Mark Flanagan, yfirmanni sendinefndar sjóðsins,
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Vaxtaóvissa dregur
kreppuna á langinn
Samningsvextir í stað gengistryggingar krónulána gætu komið harkalega niður
á bankakerfinu. Sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir mikilvægt að
Hæstiréttur skeri úr um við hvað eigi að miða við útreikninga á lánunum.
AGS hafði ekki haft hönd í bagga þegar Seðlabanki og Fjármálaeftirlitið
ákváðu að gefa út tímabundin tilmæli um það við hvaða vexti skuli miða
við útreikning á gengistryggðum lánum. „Þetta er hlutverk stofnananna. Við
vissum ekki hvað þær ætluðu að gera og sáum tilmælin í fjölmiðlum eins
og aðrir,“ segir Franek Rozwadowski.
AGS hafði ekkert með tilmælin að gera
ÍÞRÓTTIR Íslenska landsliðið í
bridds vann tvo leiki og gerði eitt
jafntefli á Evrópumótinu í bridds
í gær. Ísland vann Portúgal og
Ísrael en gerði svo jafntefli við
England síðdegis.
Lokaumferðin í mótinu fer
fram á morgun en Íslendingar
eru í fjórða sæti sem stendur.
Ítalir eru efstir með 304 stig og
Pólverjar koma þar næstir með
297 en þessar þjóðir eru þær einu
sem enn eiga möguleika á sigri.
Verði úrslit Íslendingum í hag á
morgun, er möguleiki á brons-
verðlaunum.
Efstu sex liðin á Evrópumót-
inu vinna sér inn keppnisrétt
á heimsmeistaramótinu sem
fram fer í Hollandi að ári og er
íslenska liðið langt komið með að
tryggja sér sæti á því móti. - mþl
Íslenska landsliðið í bridds:
Gott gengi hjá
íslenska liðinu
ÍSLENSKA LIÐIÐ Tveir liðsmannanna, Jón
Baldursson og Þorlákur Jónsson, voru
hluti íslenska liðsins sem varð heims-
meistari árið 1991.
Fylgdist þú með tónleikunum
Iceland Inspires á fimmtudag?
Já 13,7%
Nei 86,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ferðaðist þú um landið um
helgina?
Segðu þína skoðun á visir.is
Tíu pör vilja í hjúskap
Tíu pör hafa óskað eftir því að fá
sambönd þeirra staðfest sem hjúskap
eftir að ný hjúskaparlög tóku gildi. Eru
þetta níu pör kvenna og eitt par karla.
RÚV greindi frá þessu í gærdag.
NÝ HJÚSKAPARLÖG
Actavis opnar skrifstofu
Lyfjafyrirtækið Actavis ætlar að opna
nýja skrifstofu í Svartfjallalandi. Með
því vilja forsvarsmenn fyrirtækisins í
Serbíu og Svartfjallalandi færa íbúum
bestu fáanlegu lyf á markaðnum á
viðráðanlegu verði.
SVARTFJALLALAND
KJÖRKASSINN