Fréttablaðið - 03.07.2010, Blaðsíða 66
38 3. júlí 2010 LAUGARDAGUR
Mel Gibson hefur náð
ótrúlegum hæðum á ferli
sínum sem leikari og leik-
stjóri. Síðustu ár hafa hins
vegar verið honum erfið
vegna drykkjuskapar og
kynþáttahaturs sem hann
hefur orðið uppvís að. Síð-
asta vika var afar slæm í
lífi leikarans en ný gögn
sýna að kynþáttahatur hans
hefur náð nýjum hæðum.
Fréttablaðið stiklar á stóru
um feril Gibsons til dagsins
í dag.
12. apríl 1979
Ástralska hasarmyndin Mad Max er
frumsýnd í Ástralíu og slær strax í
gegn. Ungur og óþekktur Mel Gib-
son leikur aðalhlutverkið og eftir
nokkrar framhaldsmyndir beinir
hann sjónum sínum að Hollywood.
6. mars 1987
Lethal Weapon er frumsýnd og
Gibson slær í gegn sem löggan
Martin Riggs.
19. desember 1990
Gibson fær lof fyrir frammistöðu
sína sem danski prinsinn Hamlet í
mynd Franco Zeffirelli.
24. maí 1995
Gibson reynir fyrir sér sem leik-
stjóri í annað sinn. Stórmyndin
Braveheart slær í gegn hjá gagn-
rýnendum og áhorfendum.
25. mars 1996
Braveheart fær fimm Óskarsverð-
laun, meðal annars sem besta mynd-
in og fyrir bestu leikstjórn.
1. janúar 2002
Gibson segir í viðtali að hann hafi
verið greindur með geðhvarfasýki.
25. febrúar 2004
Mel Gibson sendir frá sér hina
gríðarlega umdeildu Passion of
the Christ. Myndin er afar blóð-
ug og Gibson er gagnrýndur fyrir
að upphefja ofbeldið og ala á gyð-
ingahatri. Myndin þénar meira en
370 milljónir dollara í Bandaríkj-
unum þrátt fyrir að vera ekki á
ensku.
28. júlí 2006
Gibson er stöðvaður fyrir
hraðakstur á hraðbraut í
Malibu. Hann er látinn blása
og þá kemur í ljós að hann
er ölvaður. Lögreglan
finnur einnig opna
tekílaflösku við
hliðina á bílstjóra-
sætinu í bíl hans.
Hann brjálast
svo þegar hann
er handtekinn og
kennir gyðingum
um ófarir sínar
og öll stríð í heim-
inum. Loks kallar
hann lögreglukonu
„sykurtúttur“.
13. október 2006
Gibson biðst afsökun-
ar í viðtali við Diane
Sawyer og kallar
ummæli sín „heimskulegt röfl
fyllibyttu“.
13. apríl 2009
Robyn Gibson, eiginkona Mel,
sækir um skilnað eftir tæplega 30
ára hjónaband. Þau eiga saman sjö
börn.
28. apríl 2009
Gibson mætir á frumsýningu með
nýju kærustunni, hinni rússnesku
Oksönu Grigorievu. Mánuði síðar
er tilkynnt að þau eigi von á barni.
Mánuðum síðar fæðist dóttir
þeirra Lucia.
14. apríl 2010
Gibson og Grigorieva hætta saman.
Stuttu síðar fer allt í rugl og þau
sækja um nálgunarbann hvort
á annað. Hún sakar hann um
heimilisofbeldi en hann segir
þau einfaldlega hafa rifist.
1. júlí 2010
Fréttasíðan Radaronline seg-
ist hafa undir höndum upp-
töku af Gibson öskra á
Grigorievu. Ummæl-
in eru afar ógeðfelld
og Gibson segir
hana meðal ann-
ars líta út eins og
sveitt svín og að ef
henni verði nauðg-
að af „negrahjörð“
geti hún sjálfri sér
um kennt. Þá hótar
hann að kveikja
í húsi þeirra. Nú
velta menn fyrir
sér hvað Gibson geri
til að reyna að endur-
heimta orðspor sitt í
Hollywood.
SYKURTÚTTUR
OG GYÐINGAHATUR
SJÚKUR MAÐUR Mel Gibson sagðist vera með geðhvarfasýki í viðtali árið 2002.
Miðað við hegðun síðustu ára virðist hann hafa rétt fyrir sér.
Tíu ár eru síðan örlagaríka júníkvöldið
á Hróarskelduhátíðinni átti sér stað og
níu ungmenni tróðust undir á Pearl
Jam-tónleikum. Tónlistarhátíðin,
sem haldin er þessa helgina í Dan-
mörku, ber merki þessara tíma-
móta og á fimmtudagskvöldið
hélt söngkonan og pönkarinn
Patti Smith minningarstund
fyrir gesti hátíðarinnar.
Slysið er það hrikaleg-
asta í sögu hátíðarinnar
sem er haldin í 39. skiptið í
ár. Atburðarásin í aðdraganda
slyssins var dramatísk og setti
sitt spor á tónleikagesti og tón-
leikahald komandi ára.
Það var tilfinningaþrungin stund
þegar Patti Smith steig á svið með níu
rósir í fanginu, ein fyrir hvern lát-
inn, og kastaði niður sviðið og hrópaði
„þeir látnu lifa áfram í huga ykkar. Lifi
Hróarskelda!“
Á hátíðinni stíga tvær íslenskar
hljómsveitir á svið, FM Belfast og Sól-
stafir, en aðalnúmerin eru meðal ann-
ars hljómsveitirnar Muse og Gorillaz.
Patti minntist Hróarskelduslyssins
MINNINGARSTUND Patti Smith dreifði rósum til
að minnast ungmennanna níu sem létu lífið í
troðningi á Hróarskelduhátíðinni fyrir tíu árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
>KATY ROKSELUR
Nýjasta smáskífulag Katy Perry, Cali-
fornia Girls, hefur selst í 300.000 ein-
tökum á viku fjórar vikur í röð á
netinu. Lagið hefur verið keypt
alls 2,1 milljón sinnum, en
aðeins lagið Right Around
með Flo Rida hefur selst
hraðar á Netinu.
folk@frettabladid.is