Fréttablaðið - 03.07.2010, Side 35
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Nú er tækifærið! Vilt þú læra listina að framreiða
með margverðlaunuðum meisturum?
Veitingahús Perlunnar leitar að framreiðslunemum.
Einnig vantar vaktstjóra í kaffiteríuna
sem getur hafið störf í ágúst
Sendið umsóknir til perlan@perlan.is.
Framreiðslunemar
og vaktstjóri
S l i p p u r i n n A ku re y r i e h f. – N a u stata n ga 2 – 6 0 0 A ku re y r i
Hagfræðingur á hagfræðisviði
Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar tvö störf hagfræðinga á hagfræðisviði. Hagfræðisvið
annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár
og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræðisvið hefur m.a. umsjón með útgáfu
ársfjórðungsritsins Peningamála og ensku útgáfu þess Monetary Bulletin.
Verkefni hagfræðinganna verða m.a.:
• Að fylgjast með framvindu efnahagsmála, greina gögn og skrifa um niðurstöður
• Almennar rannsóknir, einkum á sviði peninga- og þjóðhagfræði
• Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans og framþróun líkana til spágerðar
• Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðarsviðum Seðlabankans
Áskilið er a.m.k. meistarapróf í hagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun
hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og
ensku, og hæfi leika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfi leika og vera
reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi.
Upplýsingar um starfi ð veitir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur, í síma 569 9600. Umsóknum skal skilað fyrir 19. júlí 2010
til rekstrarstjóra Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.
Laust er til umsóknar starf tengiliðar vegna vistheimila
Lög nr. 47/2010
Starf tengiliðar
Umsækjandi
Ráðið verður í starfið
Laun
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur
rennur út. Öllum umsóknum verður svarað og eru karlar jafnt sem konur hvött
til að sækja um.
mæla fyrir um greiðslu sanngirnisbóta úr ríkissjóði til þeirra sem urðu
fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi á stofnunum eða heimilum sem falla
undir lög um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn,
nr. 26/2007. Dómsmála- og mannréttindaráðherra fer með yfirstjórn og framkvæmd
laganna.
felst í að koma með virkum hætti á framfæri upplýsingum til þeirra sem
kunna að eiga bótarétt samkvæmt lögunum. Hann skal m.a. leiðbeina þeim sem til hans
leita um framsetningu bótakrafna í kjölfar innköllunar sýslumanns. Þá skal hann aðstoða
fyrrverandi vistmenn sem eiga um sárt að binda í kjölfar vistunar við að sækja sér
þjónustu sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á, svo sem varðandi endurhæfingu og
menntun.
skal hafa lokið háskólaprófi sem nýtist í starfi, próf í lögfræði eða
sambærileg menntun æskileg. Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á gerð og
meðferð bótakrafna, þekkingu á sviði barnaverndarmála og opinberrar stjórnsýslu.
Umsækjandi skal jafnframt búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, vera sjálfstæður í
vinnubrögðum og æskilegt er að hann hafi þekkingu á þeirri félagslegu aðstoð sem
opinberir aðilar veita.
frá og með 1. september 2010. Samkvæmt 10. gr. laga nr.
47/2010 getur ráðherra eftir 1. janúar 2013 lagt niður starf tengiliðs að fenginni tillögu
úrskurðarnefndar um sanngirnisbætur.
taka mið af kjarasamningi ríkisins við Félag háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins. Um fullt starf er að ræða og ráðgert er að starfsstöð tengiliðar verði hjá
opinberri stofnun á grundvelli þjónustusamnings.
Skuggasundi 3, 150 Reykjavík,
eigi síðar en 22. júlí.
Þórunn J. Hafstein, settur ráðuneytissjóri, veitir nánari upplýsingar í síma 545-9000.
DÓMSMÁLA- OG MANNRÉTTINDARÁÐUNEYTIÐ