Fréttablaðið - 03.07.2010, Side 70
42 3. júlí 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Roy Hodgson var í vikunni ráðinn knattspyrnustjóri Liverpool en
hann hefur á löngum ferli sínum víða komið við. Hann var þjálfari
Viking í Noregi frá 2004 til 2005 en þá lék Hannes Þ. Sigurðsson
með liðinu.
„Það kom mér ekkert á óvart að maður með hans
getu og kunnáttu skuli hafa verið ráðinn til Liverpool,“
sagði Hannes í samtali við Fréttablaðið. „Það kom
mér frekar á óvart að hann hafi ekki fengið svona stórt
verkefni áður. Hann er einfaldlega í þessum gæða-
flokki.“
Hannes segir að Hodgson sé fyrst og fremst afar
skipulagður þjálfari. „Hann er með mjög fínar hugmyndir
um hvernig eigi að spila og fylgir því eftir. Það er allt upp
á 100 prósent hjá honum og allir leikmenn vita hvert
þeirra hlutverk er upp á hár.“
Hodgson var síðast þjálfari Fulham þar sem hann
kom liðinu til að mynda í úrslitaleik Evrópudeildar
UEFA. „Árangurinn hjá Fulham talar sínu máli. Hann hafði
ekki mannskap til að ná svona langt en gerði það á gríðarlega
öguðum leik. Leikmenn bera mjög mikla virðingu fyrir honum
og eru tilbúnir að gera hvað sem er fyrir hann.“
Sjálfur fékk Hannes mikið að spila undir stjórn
Hodgson. „Við náðum mjög vel saman og ég tel að ég
hafi lært hvað mest af honum af öllum þeim þjálfurum
sem ég hef verið með.“
Hannes er sjálfur Liverpool-maður en hann spilaði
um tíma með Stoke. „Ég hef nú mest fylgst með Stoke
síðustu ár enda orðinn þreyttur á Liverpool. En ég held
að það breytist núna fyrst Hodgson er kominn. Mér finnst
hann rétti maðurinn til að snúa gengi liðsins við og að það
hafi verið hárrétt hjá Liverpool að ráða hann. Hodgson er
mikill nagli og veit upp á hár hvað hann er að gera. Hann er
skemmtilegur karakter, hógvær og kurteis en þegar þess gerist
þörf lætur hann í sér heyra.“
HANNES Þ. SIGURÐSSON: SPILAÐI Í EITT OG HÁLFT ÁR UNDIR STJÓRN ROY HODGSON
Hárrétt hjá Liverpool að ráða Roy Hodgson
> Hannes stefnir á Þýskaland
Hannes Þ. Sigurðsson vill losna frá sænska
B-deildarliðinu GIF Sundsvall. Þetta sagði
hann í samtali við Fréttablaðið í gær.
„AIK hefur sýnt áhuga og einhver fleiri
lið en ég vil komast frá Skandinavíu.
Ég reikna með að eitthvað gerist
á næstu dögum og vikum,“ sagði
Hannes sem hefur helst áhuga á
að komast að í þýska boltanum.
„Ég vonast til að það gangi í gegn
en við erum líka með félög frá öðrum
löndum í skoðun.“
FÓTBOLTI Eftir níu umferðir í
Pepsi-deild karla er ÍBV aðeins
stigi á eftir toppliði Keflavíkur.
ÍBV hefur ekki verið þekkt fyrir
að byrja mót með miklum látum
en nú er breyting á.
Árangur Eyjaliðsins er ekki síst
athyglisverður fyrir þær sakir
að liðið hefur aðeins leikið þrjá
heimaleiki í sumar. ÍBV mætir
Stjörnunni á „teppinu“ á sunnu-
dag og síðan fær liðið heila fimm
heimaleiki í röð sem er líklega
einstakt.
„Ég get ekki sagt að ég hafi
átt von á því að við yrðum þetta
öflugir. Innst inni leyfði ég mér
samt að vona. Planið var samt að
gera eitthvað af viti í sumar og
blanda sér í toppbaráttuna. Það
er ein ástæðan fyrir því að ég var
meðal annars fenginn til liðsins.
Heimir sagði í viðtali um dag-
inn að við ætluðum okkur Evr-
ópusæti. Þá hlógu margir en við
stefnum ótrauðir á að vera áfram í
toppbaráttu,“ sagði Tryggvi Guð-
mundsson, leikmaður ÍBV, en
hann segir Eyjaliðið vera sterk-
ara en margir telja.
„Ég vil meina að við séum með
bestu vörnina á Íslandi í dag í
Garner, Rasmus, Eiði og James
Hurst. Albert er síðan búinn að
vera frábær í markinu. Hann
hefur átt margar „sigurvörsl-
ur“. Hann hefur kannski varið úr
dauðafæri og svo förum við upp
og skorum,“ sagði Tryggvi og
segir stemninguna í liðinu vera
svipaða og þegar hann spilaði á
síðustu öld með félaginu.
„Það er mikil samvinna og sam-
kennd í þessu liði. Virkilega góð
stemning enda erum við Eyja-
menn og við erum svolítið sér-
stakir. Stemningin er ekki ósvip-
uð.“
Tryggvi segir það hafa skipt
máli að reynslumenn á borð við
hann og Finn Ólafsson séu í liðinu.
Þeir geti haldið bolta og hjálpað
liðinu við að komast upp völlinn.
„Andri og Finnur eru gríðarleg-
ir vinnuhestar og svo eru strák-
arnir frammi fljótir. Það vant-
aði reynslu í liðið en það er meiri
reynsla í þessu liði í ár en í fyrra.
Svo hafa menn stigið upp og eru
að spila betur en í fyrra.“
Tryggvi hefur hrifist mjög af
Heimi Hallgrímssyni, þjálfara
liðsins.
„Hann er ótrúlega jákvæður og
skemmtilegur þjálfari. Hann er
einn skipulagðasti og besti þjálf-
ari sem ég hef haft. Ég vissi að
hann væri mjög duglegur og nú
fæ ég að upplifa það sjálfur. Það
er magnað að fylgjast með honum
vinna. Hann er líka duglegur að
tala við menn og gefa þeim við-
brögð. Ég hef saknað þess hér á
Íslandi en það var mikið um slíka
vinnu í Noregi,“ sagði Tryggvi
sem bíður spenntur eftir því að
fá fimm heimaleiki í röð.
„Það blundaði alltaf í mér að
koma heim og loka hringnum. Ég
sá fram á meiri bekkjarsetu hjá
FH en fékk tækifæri til að vera
lykilmaður hér. Ég sé ekki eftir
því að hafa tekið því tækifæri.“
henry@frettabladid.is
Eyjamenn eru svolítið sérstakir
Tryggvi Guðmundsson er ein af ástæðum þess að ÍBV hefur komið allra liða mest á óvart í Pepsi-deildinni
í sumar. Hann sér ekki eftir því að hafa komið til Eyja. Hann segir gömlu Eyjastemninguna vera til staðar.
FYRIRLIÐINN Tryggvi hefur haft mjög jákvæð áhrif á Eyjaliðið á skömmum tíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI James Hurst mun spila
með ÍBV út ágúst eftir stutta dvöl
á Englandi. Hurst hélt að hann
hefði spilað sinn síðasta leik fyrir
ÍBV eftir leikinn gegn Selfossi og
snei því aftur á heimaslóðir.
Hann er samningsbundinn
Portsmouth og stefnan hans var
að hefja æfingar með félaginu
og reyna að koma sér í liðið sem
mun spila í 1. deildinni á Eng-
landi á komandi tímabili.
Þau plön eru líklega úr sögunni
enn sem komið er því félagið
hafði frumkvæðið að því að senda
hann aftur til ÍBV.
Hurst hefur slegið í gegn í
sumar og verið einn allra besti
leikmaður Pepsi-deildarinnar.
Hann verður með ÍBV í leiknum
gegn Stjörnunni í Garðabænum á
morgun. - hþh
Góðar fréttir fyrir ÍBV:
Hurst spilar með
ÍBV út ágúst
GÓÐUR Hurst hefur spilað mjög vel í
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Bjarni Gunnarsson, sautj-
án ára varamaður Fjölnis, tryggði
liðinu þrjú stig gegn Fjarðabyggð
í gær. Bjarni skoraði þegar ein
mínúta var til leiksloka en fram
að því hafði fremur lítið gerst í
leiknum. Leiknum var frestað á
fimmtudag vegna veðurs þar sem
flauta þurfti leikinn af. - hþh
1. deild karla í gær:
Þrjú stig Fjölnis
Sunnudaginn 4. júlí
Stjarnan - ÍBV kl. 16:00
Stjörnuvöllur
KR - Grindavík kl. 19:15
KR-völlur
Kefl avík - FH kl. 19:15
Sparisjóðsv. Kefl avík
Mánudaginn 5. júlí
Selfoss - Breiðablik kl. 19:15
Selfossvöllur
Haukar - Fylkir kl. 19:15
Vodafonevöllurinn
Fram– Valur kl. 20:00
Laugardalsvöllur