Fréttablaðið - 03.07.2010, Blaðsíða 78
50 3. júlí 2010 LAUGARDAGUR
„Tyson er ljúfur sem lamb,“ segir
athafnamaðurinn og vatnskóngur-
inn Jón Ólafsson.
Jón er nýkominn til Íslands eftir
að hafa verið einn af alþjóðlegum
gestum kvikmyndahátíðar í Kasak-
stan. Þar var hann í hóp með Holly-
wood-leikkonunni Hillary Swank,
sænska leikaranum og líkamsrækt-
arfrömuðinum Dolph Lundgren,
kvikmyndaframleiðandanum Har-
vey Weinstein og hnefaleikakappan-
um Mike Tyson.
Tyson og Jón urðu hinir mestu
mátar meðan á dvölinni í Kazakstan
stóð. „Tyson er stórvinur minn,“
segir Jón. „Ég var eiginlega settur
í það að sjá um hann, enda ekki hver
sem er sem ræður við kappann.“
Leikstjórinn Timur Bekmamb-
etov, sem leikstýrði meðal annars
kvikmyndunum NightWatch og
Wanted, er upphafsmaður hátíðar-
innar, en hann er góður vinur Jóns.
„Timur bauð mér að koma á hátíðina
og það var alveg svakalega gaman,“
segir Jón. „Við vorum þarna þrír
boðsgestir sem vorum saman. Þeir
vildu sem sagt vera með einn kvik-
myndaframleiðanda, einn leikara og
einn frumkvöðul, sem var ég. Þetta
var bara alveg frábært,“ Jón bætir
við að hann eigi heimboð inni hjá
Tyson á heimili hans í Las Vegas.
„Ég stefni á að heimsækja hann
innan skamms.“
Hnefaleikakappinn var á hátíð-
inni til að kynna heimildarmynd-
ina Tyson sem er um hann sjálfan
en myndin kom út 2008. Jón ber
myndinni vel söguna og segir hana
lýsa Mike Tyson sem karakter. „Ég
sá hana fyrst á Sundance-hátíðinni í
fyrra og hún er alveg mögnuð. Mæli
hiklaust með henni,“ segir hann.
Kvikmyndahátíðin, sem var hald-
in í fyrsta skipti í ár, ber nafnið
Astana International Action Film
Festival og er meðal annars sögð
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. kló, 6. í röð, 8. tala, 9. erfiði, 11. til,
12. sannfæringar, 14. fugls hljóð, 16.
skammstöfun, 17. óvild, 18. rönd, 20.
skst., 21. ungdómur.
LÓÐRÉTT
1. örverpi, 3. kraðak, 4. fúslega, 5.
gat á steðja, 7. pikkles, 10. blundur,
13. umfram, 15. skref, 16. frjó, 19.
karlkyn.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. nögl, 6. rs, 8. sjö, 9. púl,
11. að, 12. trúar, 14. krunk, 16. fr, 17.
kal, 18. rák, 20. no, 21. æska.
LÓÐRÉTT: 1. urpt, 3. ös, 4. gjarnan,
5. löð, 7. súrkrás, 10. lúr, 13. auk, 15.
klof, 16. fræ, 19. kk.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Munnharpa Davíðs Stefánssonar.
2 Bertha María Waagfjörð.
3 3-0 með sigri KR.
JÓN ÓLAFSSON: STEFNI Á AÐ HEIMSÆKJA TYSON INNAN SKAMMS
Sá um Mike Tyson á kvik-
myndahátíð í Kasakstan
STÓRVINIR Jón og hnefaleikakappinn Mike Tyson mynduðu góðan vinskap á kvik-
myndahátíðinni í Kasakstan þar sem þeir voru báðir gestir.
„Það var frekar furðuleg til-
finning að fá símtal frá Christi-
an Dior í Frakklandi sem var að
bjóða mér að koma á samning til
sín,“ segir Aníta Hirlekar, 24 ára
fatahönnunarnemi frá Akureyri.
Aníta lauk nú í vor öðru ári í
fatahönnun með áherslu á svokall-
að print, frá Central Saint Mart-
ins skólanum í London. Aníta mun
eyða næsta ári á samningum hjá
tveimur af stærstu fatahönnunar-
merkjum heims. Í ágúst er hún á
leið til Frakklands þar sem hún fer
á samning hjá Christian Dior. Þar
verður hún við hönnun á hátísku-
línu Dior. Eftir áramótin fer hún
svo til Bandaríkjanna þar sem hún
fer á samning hjá Diane Von Furst-
enberg. Þar mun hún starfa í hönn-
unarstúdíói fyrirtækisins.
„Christian Dior hafði samband
við skólann minn, því hann er
talinn mjög góður skóli, og ósk-
aði eftir nemendum í starfsnám.
Við vorum 26 sem sóttum um og
6 komust í viðtal. Ég var sú eina
sem fékk samning,“ segir Aníta,
bæði stolt og glöð yfir þeirri stað-
reynd. Kennarar við skólann voru
mjög ánægðir með Anítu þar sem
enginn nemandi komst að í fyrra.
Kröfur Christian Dior um hæfni
nemenda eru mjög miklar og því
um mikla viðurkenningu að ræða
fyrir Anítu.
Aníta dúllaði sér við að hanna og
sauma flíkurnar sínar í mennta-
skóla en ákvað eftir að hún kom
til London að þetta væri það sem
hún ætlaði að gera að starfsferli
sínum.
Eftir að Aníta lýkur þriðja ári
sínu á samningum, hannar hún
útskriftarlínuna sína á fjórða
árinu. „Það eru miklar líkur á því
að fá vinnu eftir útskrift hjá þeim
fyrirtækjum sem maður lýkur
samningi hjá þannig að þetta er
mjög spennandi tækifæri fyrir
mig.“ - ls
Á samning hjá Dior og DVF
SPENNT YFIR ÞESSU TÆKIFÆRI Aníta
segir það ótrúlegt tækifæri að komast á
samning hjá stærstu hönnuðum heims.
Hemildarmyndin um Mike Tyson
kom út árið 2008 og hefur hlotið
mikið lof gagnrýnenda. Gagnrýnandi
The New York Times sagði að mynd-
in væri skylduáhorf fyrir alla, ekki
bara áhugamenn um box og íþróttir.
Myndin er sett saman úr mynd-
böndum og viðtölum, þar sem Tyson
og fólk úr hans innsta hring kemur
fram. Sagt er frá lífi Tysons, allt frá
barnæskunni í Brooklyn til innkom-
unnar í boxheiminn. Tilgangurinn
með myndinni var að varpa ljósi á
þennan flókna karakter sem er einn
af alræmdustu boxurum í heimi.
Eitt af frægustu augnablikum
hnefaleikasögunnar var þegar Tyson
beit í bæði eyru mótherja síns,
Evander Holyfield, árið 1997 og er
eflaust fjallað um það í myndinni.
EINN ALRÆMDASTI BOXARI ALLRA TÍMA
vera haldin til að varpa nýju ljósi
á íbúa og menningu Kasakstans
eftir að kvikmyndin Borat var talin
afskræma ímynd landsins fyrir
alla heimsbyggðina. Dolph Lund-
gren var þarna sem kynnir og Hill-
ary Swank tók á móti verðlaunum.
Fleiri stórlaxar í Hollywood voru
einnig á svæðinu og fengu að kynn-
ast landi og þjóð, enda Kasakstan-
ar mjög stoltir af menningu sinni og
urðu mjög fúlir þegar Borat kvik-
myndin kom út.
Þetta var í fyrsta sinn sem Jón
kemur til Kasakstans og vitaskuld
tók hann Icelandic Glacial vatn-
ið með sér en hann segist sjaldan
skilja það við sig. „Ég mun klárlega
fara aftur. Landið er mjög fallegt og
höfuðborgin Astana, þar sem hátíðin
var haldin, er frábær.“
alfrun@frettabladid.is
Vigdís Guðmundsdóttir, sem
búsett er í borginni Puducherry
á Suður-Indlandi, rekur fyrirtæk-
ið D&G Agency, en það framleið-
ir meðal annars hágæða fartölvu-
töskur fyrir konur auk fylgihluta
og fatnaðar.
Vigdís hefur verið með annan
fótinn á Indlandi síðustu fjögur
árin og kann vel við sig, enda er
þar sumar allt árið um kring og
fólkið yndislegt. „Mér líkar mjög
vel á Indlandi. Ég er búin að koma
mér vel fyrir og er búin að fá mér
hund líka,“ segir Vigdís og hlær.
Vigdís hyggst opna eigin vinnu-
stofu á Indlandi innan skamms þar
sem hún mun sjálf hanna og fram-
leiða nýja fatalínu á bæði kynin.
Línan mun meðal annars innihalda
leðurjakka og aðrar flíkur unnar
úr leðri. „Allt sem ég hanna er úr
leðri. Ég er búin að læra svo mikið
um leður og leðurvinnslu í kring-
um töskuframleiðsluna og er nú
orðin svolítill sérfræðingur í því
og þess vegna langar mig að halda
áfram að hanna úr leðri,“ segir
Vigdís.
Nýverið gerði Vigdís samning
við hótelkeðjuna Zuri, sem rekur
lúxushótel víða á Indlandi, Afr-
íku og á Englandi, og mun hönn-
un hennar verða seld í hótelversl-
unum frá og með haustinu. „Þessi
samningur kemur sér mjög vel.
Það er mikið af viðskiptafólki
sem dvelur á þessum hótelum og
því verða töskurnar og fylgihlut-
ir í forgrunni til að byrja með, svo
sjáum við bara hvað setur. Það er
líka skemmtilegt að hugsa til þess
að nú sé hægt að kaupa íslenska
hönnun bæði á Indlandi og í Afr-
íku,“ segir Vigdís að lokum. - sm
Selur hönnun sína í Afríku
ÁNÆGÐ Á INDLANDI Vigdís Guðmunds-
dóttir hefur gert samning við lúxus-
hótelkeðjuna Zuri um að selja hönnun
hennar bæði á Indlandi og í Afríku.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Þýska teknóhljómsveitin Scooter
er mætt til landsins á ný
og kemur fram á Bestu
útihátíðinni í Galtalæk í
kvöld. Scooter kom síð-
ast til landsins árið 2003
og spilaði á tónleikum
sem Ásgeir Kol-
beins stóð fyrir.
Hljómsveitin
var þá gríðarlega vinsæl á Íslandi og
hafði sent frá sér plötuna The Stadi-
um Techno Experience sem innihélt
ofursmellinn Weekend …
Kröfur Scooter voru aðrar þá en í
dag, enda hefur tónlistarbransinn
þurft að laga sig að aðstæðum.
Árið 2003 bað hljómsveitin um
Mercendes Benz-limma sem var
ekki til á landinu. Hefðbundinn
limmi var því sendur í staðinn en
hljómsveitin ákvað svo á síðustu
stundu að ferðast með öryggis-
vörðunum í amerískri lúxuskerru. Í
dag biður hljómsveitin reyndar um
glæsikerrur, en nefnir enga sérstaka
tegund. Árið 2003 bað hljómsveitin
um gistingu á fimm stjörnu hóteli,
en slíkt er ekki til á Íslandi þannig
að fjögurra stjörnu var látið nægja.
Engar upplýsingar fást um gisting-
una í þetta skipti.
Listamaðurinn Ragnar Kjartans-
son á von á sínu fyrsta barni með
unnustu sinni Ásdísi Sif Gunn-
arsdóttur listakonu. Barnið er
væntanlegt í heiminn í lok næsta
mánaðar og styttist því óðum biðin.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær
er Ragnar staddur í Flórens með
móður sinni, Guðrúnu
Ásmundsdóttur, við
opnun á sýningu verka
sinna en þar festu þau
einmitt kaup á hand-
gerðri vöggu fyrir
barnið. - afb, áp
FRÉTTIR AF FÓLKI
PERSÓNAN
Berglind Björnsdóttir
Aldur: 42 ára
Starf: Ljós-
myndari og
með master
í hagnýtri
menningar-
miðlun.
Fjölskylda:
Arnór Kári,
Ýmir Hrafn og Móa Ylfa.
Foreldrar: Hrefna Jónsdóttir kenn-
ari og Björn Stefánsson flugumsjón-
armaður.
Búseta: Við Laugardalinn í Reykja-
vík.
Stjörnumerki: Naut.
Berglind fékk nú á dögunum fyrstu
úthlutun úr Minningarsjóði Magnúsar
Ólafssonar.
Lækjargata 2a 101 R. sími 511-5001 opið alla daga 9.00 - 22.00
Helgartilboð
30%
afsl.
tilboð 5.595,-
fullt verð 7.990,-