Fréttablaðið - 08.07.2010, Page 12
12 8. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
Arðsemi Landsbankans og
Arion banka er langt undir
eðlilegri arðsemiskröfu
ríkisins, sé litið fram hjá
skammtímaþáttum eins
og endurmati á eignum.
Nyti þeirra ekki við væri
rekstur bankanna tveggja í
járnum. Þetta segir í fyrstu
matsskýrslu Bankasýslu
ríkisins, sem telur að fækka
þurfi starfsfólki í fjármála-
geiranum hérlendis.
Bankasýsla ríkisins, sem komið
var á fót um áramót, fer með
eignarhlut hins opinbera í fjár-
málafyrirtækjum. Ríkið á í öllum
stóru bönkunum þremur, lang-
mest í Landsbankanum, eða 81,3
prósent, þrettán prósent í Arion
banka og minnst í Íslandsbanka,
aðeins fimm prósent. Alls eru 190
milljarðar króna af fjármunum
ríkisins bundnir í bönkunum.
Erfiður samanburður
Í fyrstu skýrslu Bankasýslunnar
er gerð tilraun til að meta arð-
semina af grunnrekstri bank-
anna þriggja, þegar búið er að
„leiðrétta“ reikningana, eins og
það er kallað, fyrir svokölluðum
óreglulegum liðum. Samanburð-
urinn er hins vegar vandasam-
ur, að því er segir í skýrslunni,
þar sem bankarnir beita ólíkum
aðferðum við uppgjör og fram-
setningu í ársreikningum. Tölu-
verðar tilfæringar þurfi því til að
greina grunnrekstrartölur og er
sá varnagli sleginn að einungis sé
um nálgun að ræða.
Óreglulegir liðir út fyrir sviga
Sá óreglulegi liður sem mest
fer fyrir er endurmat á eign-
um bankanna sem færðar voru
úr þeim föllnu yfir í hina nýju.
Áhrifanna af því endurmati mun
gæta á næstunni en hefur hins
vegar engin áhrif á reksturinn til
lengri tíma. Því er reynt að fjar-
lægja þennan þátt í útreikning-
um Bankasýslunnar.
Annar þáttur er gengissveiflur,
sem höfðu töluverð en mismikil
áhrif á afkomu bankanna í fyrra.
Hagnaður eða tap af gengis-
sveiflum segir hins vegar lítið
um grunnrekstur bankans og er
sá þáttur því einnig fjarlægður.
Aðrir þættir sem reynt er að
líta fram hjá er rekstrartekjur
og gjöld dótturfélaga í óskyldri
starfsemi og verðbólga, sem
hafði mismikil áhrif á afkomu
bankanna.
Tvö reiknilíkön eru notuð til að
finna út grunnreksturinn. Annað
er kallað kjarnarekstur og hitt
reglulegur rekstur, og eiga þau að
tákna efri og neðri mörk grunn-
rekstrarins.
Íslandsbanki stendur best að vígi
Niðurstaðan af útreikningun-
um er sú að Íslandsbanki stend-
ur langbest að vígi af bönkunum
þremur, með 28,7 til 32,5 pró-
senta arðsemi af grunnrekstri.
Sama tala hjá Arion banka er 3,8
til 7,9 prósent og einungis 2,4 til
6,4 prósent hjá Landsbankanum.
Samkvæmt útreikningum
Bankasýslunnar er eðlileg arð-
semiskrafa fyrir banka í blönd-
uðum rekstri ríflega 15 prósent.
Tveir bankanna standa hvergi
nærri undir því, og lengst frá
því er Landsbankinn, sem er að
stærstum hluta í eigu ríkisins.
Grípa þarf til ráðstafana
„Rekstur bankanna byggist nú að
stærstum hluta á þremur stoðum;
endurmati eigna og gjaldeyris-
hagnaði, viðskiptabankastarfsemi
og þóknunartekjum af eigna-
stýringu. Stærsti og veigamesti
tekjupósturinn, endurmat eigna,
er einungis til skamms tíma. Ef
hans nyti ekki við væri rekstur
tveggja af þremur stærstu bönk-
unum í járnum,“ segir í skýrsl-
unni.
Þá er kostnaðarhlutfall, það
er rekstrargjöld sem hlutfall af
hreinum rekstrartekjum, sömu-
leiðis allt of hátt í Arion banka og
Landsbankanum.
Í skýrslunni segir að líklegt sé
að grunnrekstur bankanna batni
þegar endurskipulagningu lána-
safna er lokið að því gefnu að
efnahagsaðstæður verði hagstæð-
ari. Því sé ljóst að grípa verði
til ráðstafana ef tryggja eigi að
rekstur allra bankanna þriggja
verði viðunandi.
FRÉTTASKÝRING: Fyrsta mat Bankasýslu ríkisins á stöðu íslensku bankanna
Óviðunandi staða Landsbankans og Arion
Of margt fólk starfar nú í íslenska fjár-
málakerfinu að mati Bankasýslunnar.
Hlutfall starfsmanna í fjármálaþjón-
ustu á Íslandi er með því hæsta sem
þekkist. „Þrátt fyrir bankahrunið er
hlutfall starfsmanna í fjármálaþjón-
ustu sem hlutfall af heildarvinnu-
afli svipað og það var árið 2007 er
stefnt var að því að gera Ísland að
alþjóðlegri fjármálamiðstöð,“ segir í
skýrslunni.
Á Íslandi starfa um 4,7 prósent
vinnufærs fólks í bönkum og fjármála-
fyrirtækjum, sem er líkt og áður segir
með því hæsta sem gerist. „Í Bret-
landi, sem segja má að sé fjármála-
miðstöð Evrópu, er hlutfallið 4,25%
og 5,6% í bankalandinu Sviss,“ segir í
skýrslunni. Í Evrópusambandinu öllu
er hlutfallið þrjú prósent.
„Ljóst er að miðað við núver-
andi umsvif bankakerfisins er fjöldi
starfsmanna mikill,“ segir í skýrslunni.
Töluvert verk sé enn óunnið við að
laga starfsemi fjármálafyrirtækja á
Íslandi að þeim breytingum sem hafa
átt sér stað.
Starfsmenn of margir miðað við umsvif bankakerfisins
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
Li
th
áe
n
Po
rt
úg
al
Le
tt
la
nd
Fi
nn
la
nd
N
or
eg
ur
Sv
íþ
jó
ð
Pó
lla
nd
G
rik
kl
an
d
Sp
án
n
H
ol
la
nd
Íta
lía
ES
B
Fr
ak
kl
an
d
D
an
m
ör
k
Þý
sk
al
an
d
B
el
gí
a
Au
st
ur
rík
i
B
re
tla
nd
Ís
la
nd
Írl
an
d
Sv
is
s
Lú
xe
m
bo
rg
Hlutfall í ESB til viðmiðunar
12,08%
5,60%
5,10%
4,69%
4,25%
3,55%
3,55%
3,46%
3,45%
3,42%
3,04%
2,82%
2,81%
2,51%
2,50%
2,35%
2,19%
2,15%
2,07%
2,02%
1,77%
1,56%
12%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
Arion banki Íslandsbanki NBI
40
35
30
25
20
15
10
5
0
16
,7
%
7,
9%
35
,3
%
32
,5
%
28
,7
%
10
,0
%
6,
4%
3,
8%
2,
4%
Arðsemi
Arðsemi reglulegs
rekstrar
Kjarnaarðsemi
Rekstrarniðurstöður bankanna og arðsemiskrafa hluthafa
Á súluritinu má sjá að töluverður munur er á arðseminni sem gefin er upp í
ársreikningum annars vegar (appelsínugula súlan) og á efri og neðri mörk-
um útreikninga Bankasýslunnar fyrir grunnreksturinn hins vegar.
Starfsfólk í fjármálageiranum sem hlutfall af vinnuafli
„Það kemur okkur ekkert á óvart að arðsemi eigin
fjár, leiðrétt fyrir þessum óreglulegu liðum, hafi verið
svona,“ segir Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins.
„Við viljum bara að það sé horft á stöðuna eins og hún
er núna og brugðist við þannig að horft sé til framtíð-
ar verði bankarnir búnir að ná arðbærum almennum
rekstri. Við höfum fulla trú á að það náist,“ segir Elín og
bendir á að þess sjái þegar stað í fyrsta ársfjórðungs-
uppgjöri Landsbankans í ár að staðan sé farin að batna.
Elín vill ekki tjá sig um það hvaða aðgerða hún telur
að þurfi að grípa til eigi þau arðbærnimarkmið að nást.
Spurð um hinn mikla fjölda starfsmanna í fjármálageiranum sem fjallað er
um í skýrslunni og hvort hagræðing á því sviði sé brýn, segir Elín það ekki
vera helsta forgangsatriðið. Þær tölur gefi hins vegar skýra vísbendingu um
að íslenska fjármálakerfið sé of stórt.
Elín segir það helst hafa komið á óvart við vinnslu skýrslunnar hversu
ósamanburðarhæfir ársreikningar bankanna eru. Æskilegt væri að bætt yrði
úr því.
Kemur ekki á óvart
ELÍN JÓNSDÓTTIR
Í MISGÓÐUM MÁLUM Íslandsbanki stendur langbest að vígi eftir útreikninga Bankasýslunnar og er sá eini af stóru bönkunum
þremur sem skilar viðunandi rekstrarhagnaði. Landsbankinn og Arion banki eru langt frá því að ná því marki. MYND / SAMSETT
Staðgreiðsluverð kr. 26.250*
Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil og með
stórum poka. Parketbursti að andvirði kr. 9.320 fylgir frítt með.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Sparaðu með Miele
Þú sparar
kr. 15.882
Fullt verð kr. 32.812
*Gildir á meðan birgðir endast.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur