Fréttablaðið - 08.07.2010, Qupperneq 40
32 8. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 8. júlí 2010
➜ Tónleikar
20.00 Sálarhljómsveitin Moses
Hightower heldur útgáfutónleika í
Iðnó í kvöld kl. 21.00. Húsið opnar kl.
20.00 og mun Sóley úr Seabear hita
upp fyrir hljómsveitina. Aðgangseyrir er
1.000 krónur, en fyrir 2.500 krónur fæst
aðgangur og eintak af plötunni.
20.30 Í tilefni af útgáfu geisladisks-
ins Hymnodia sacra mun kammer-
kórinn Carmina halda útgáfutónleika í
Þjóðmenningarhúsinu í kvöld kl. 20.30.
Aðgangur er ókeypis og hægt verður að
kaupa nýja diskinn á afsláttarverði.
21.00 Jazzklúbburinn Múlinn heldur
tónleika í kvöld í Risinu (áður Glaum-
bar), að Tryggvagötu 20. Tríó Gunnars
Hilmarssonar, ásamt gestum, mun spila
á tónleikunum sem hefjast kl. 21.00.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur, 1.000
krónur fyrir nemendur.
➜ Tónlistarhátíð
Eistnaflug er árleg rokkhátíð sem
haldin hefur verið í Neskaupstað frá
árinu 2005. Rokk í þyngri kantinum
er í hávegum haft á hátíðinni en nær
allur skali rokktónlistarinnar þó spann-
aður og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir
rokkáhugamenn. Hátíðin hefst í dag.
Nánari upplýsingar má nálgast á www.
eistnaflug.is.
➜ Opið Hús
20.00 Stjórn Nýrrar dögunar verður
með opið hús einu sinni í mánuði í
sumar. Fyrsta opna húsið verður í kvöld
í safnaðarheimili Háteigskirkju og hefst
kl. 20.00.
➜ Kynningar
20.00 Fjölmenningarleg kvöldganga:
Reykjavík Safarí. Menningarlífið í
miðborginni kynnt á spænsku,
pólsku, ensku og tælensku. Hvar
eru leikhúsin, frægar styttur og
skemmtilegir staðir? Hvað er í boði
fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna?
Lagt er upp frá Grófarhúsi kl. 20.00
➜ Uppistand
12.00 Í Sundhöll
Reykjavíkur munu Ugla
og Saga ásamt Gunnari,
meðlimir Upp mín sál!
uppistandshópsins, fara
með uppistand á sundlaugarbakkanum
frá kl. 12.00-12.30.
➜ Félagsstarf
14.00 Ármenningar ætla að standa
fyrir fjáröflun til styrktar fórnarlömbum
fellibylsins Agöthu sem reið yfir Mið-
Ameríku í byrjun sumars. Iðkendur
fimleikadeildar Ármanns ætla að safna
áheitum í dag og ganga á höndum
niður Laugaveginn. Hand-skrúðgangan
hefst á Hlemmi kl. 14.00 og gengið
verður niður að Lækjartorgi.
➜ Leiðsögn
15.00 Í dag kl. 15.00 mun Anna Þor-
björg Þorgrímsdóttir sagnfræðingur
fara með gestum um Nesstofu og
fjalla um sögu hússins og búsetu
landlækna og lyfsala í Nesi. Nán-
ari upplýsingar má finna á www.
laekningaminjasafn.is.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@fretta-
bladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni
á visir.is.
Ragnheiður Gröndal söngkona og Guðmund-
ur Pétursson gítarleikari ásamt hljómsveitinni
The Fancy Toys efna til fernra
tónleika á Norðurlandi og í
Reykjavík þessa dagana. Með
þeim í för verða kvikmynda-
tökumenn sem hyggjast gera
heimildarmynd um Íslandsferð
hljómsveitarinnar.
Hljómsveitin The Fancy Toys
hefur áður komið hingað til
lands og auk þess spilaði einn
meðlimur sveitarinnar, James
Duncan, með Jethro Tull-
foringjanum Ian Anderson á
tónleikum í Reykjavík.
Þeir í The Fancy Toys hafa sýnt mikinn áhuga
á því að starfa með íslenskum listamönnum og
vonuðust til þess að fá þá til að semja með þeim
tónlist. Í framhaldi af því tóku þeir upp samstarf
við Ragnheiði Gröndal.
Breskir tónlistarmenn
lýsa tónlist The Fancy Toys
sem einstaklega grípandi og
áhugaverðri. „Það þarf eitthvað
sérstakt til að búa til tónlist
sem er svona einstök og svona
fjarri hinu hefðbundna en
samt sem áður virkilega hlust-
endavæn og heillandi,“ segir
til að mynda í einum dómi um
sveitina.
Hópurinn verður á Húsavík
8. júlí, í Mývatnssveit 9. júlí og
Reykjavík 10. júlí. Miðasala fer fram á midi.is og
er miðaverð 1.500 krónur, nema við Mývatn.
The Fancy Toys spila á Íslandi
Klukkan 12
Í hádeginu í dag mun Lára Bryn-
dís Eggertsdóttir organisti spila
verk eftir Rheinberger, Alain og
Buxtehude. Hápunktur vikunnar
verður um helgina þegar Alþjóð-
lega orgelsumarið fagnar komu
Dame Gillian Weir hingað til lands
í þriðja sinn.
> Ekki missa af …
Danski stúlknakórinn Klarup
er staddur hér á landi og mun
halda tónleika víðs vegar um
landið næstu daga. Kórinn, sem
er einn af vinsælustu kórum
Dana, samanstendur af 25
stelpum frá 14-25 ára. Kórinn
byggist á norrænni sönghefð og
syngur aðallega tónlist þaðan og
klassíska kirkjutónlist. Stúlkurnar
munu troða upp á laugardaginn
10. júlí í Selfosskirkju kl. 17, í
Víkurkirkju 12. júlí kl. 20 og að
lokum í Norræna húsinu 13. júlí
kl. 20.
Hinn heimsþekkti karlakór
St. Basil-kirkju er nú vænt-
anlegur til landsins í fjórða
sinn. Kórinn kemur fram á
Reykhólahátíð seinna í mán-
uðinum og mun það vera í
þriðja sinn sem hann kemur
fram þar.
Kór St. Basil-kirkju er nú vænt-
anlegur til landsins í fjórða sinn.
Kórinn er talinn einn sá besti í
heimi og hefur sungið sig ræki-
lega inn í íslensku þjóðarsálina
því í hvert sinn sem þeir heim-
sækja landið er uppselt á tónleika
þeirra, Kór St. Basil-kirkju kom
fyrst til landsins í maí 2004 á
vegum Listahátíðar í Reykjavík-
ur. Hélt kórinn þá tvenna tónleika
í Hallgrímskirkju og aðra í Reyk-
hólakirkju. Í ár mun hann koma
fram í þriðja sinn á Reykhólahátíð
þar sem hann hefur ávallt feng-
ið frábærar undirtektir hjá gest-
um.
Þessi heimsþekkti kór var stofn-
aður árið 1987 af stjórnanda kórs-
ins, Sergei Krivobokov, og hefur
hann séð um stjórnun hans síðan.
Kórinn er talinn einn sá fremsti
í flutningi á rússneskum þjóð-
lögum, miðaldartónlist og tónlist
rússnesku réttrúnaðarkirkjunnar.
Þykir flutningur þeirra einstak-
lega áhrifaríkur og tónsviðið sem
söngvararnir spanna er óvenju
stórt, allt frá dimmum flauels-
bössum til hárra silkitenóra.
Félagar í kór St. Basil-kirkju
eru allir langskólamenntaðir tón-
listarmenn og einsöngvarar sem
hafa helgað líf sitt rétttrúnað-
arkirkjunni. Kirkja kórsins, St.
Basil-kirkja, stendur við Rauða
torgið í Moskvu og er hún eitt af
táknum gamla Rússlands. Kór St.
Basil-kirkju söng í fyrstu guðs-
þjónustunni sem leyfð var árið
eftir að banni á kristnihaldi var
aflétt árið 1991.
Karlakór St. Basil-kirkju
væntanlegur til landsins
KÓR ST. BASIL-KIRKJU Þessi heimsþekkti kór kemur nú til landsins í fjórða sinn.
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
25 gönguleiðir á
höfuðborgarsvæðinu
Reynir Ingibjartsson
Aldrei framar frjáls
Sara Blædel
Eldur uppi – Iceland on Fire
Vilhelm Gunnarsson
Eyjafjallajökull
Ari Trausti Guðmundsson
Ragnar Th. Sigurðsson
Vegahandbókin 2010
Risasyrpa - Með allt í botni
Walt Disney
Volcano Island
Sigurgeir Sigurjónsson
Íslenska plöntuhandbókin
Hörður Kristinsson
Makalaus
Tobba Marinós
Syngjum saman
– píanóbókin
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
30.06.10 – 06.07.10