Fréttablaðið - 07.09.2010, Qupperneq 16
7. september 2010 ÞRIÐJUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
Í kvöld verður séra Árelíusar Níels-
sonar, fyrsta sóknarprests Langholts-
kirkju, minnst í kirkjunni, en hann
fæddist 7. september 1910 í Flatey á
Breiðafirði. Minningarathöfnin hefst
klukkan 20.
„Séra Árelíus var margþættur maður,
afar tilfinningaríkur og mátti ekkert
aumt sjá án þess að vera kominn til
hjálpar. Hann hafði ríka sýn fyrir sam-
félagið í heild og var fádæma duglegur
prestur sem meðal annars hratt af stað
sérstökum kirkjudegi fyrir sóknarbörn
sín, en það var heill dagur í samkomu-
haldi og skemmtun, sem lauk með balli
um kvöldið,“ segir Jón Helgi Þórarins-
son sóknarprestur í Langholtskirkju.
Séra Árelíus var kjörinn til kirkju-
lauss safnaðar Langholtssóknar 1952
og starfaði þar sem prestur til 1980, en
jarðvistina kvaddi hann 1992.
„Þegar Árelíus kom hingað var hverf-
ið ungt og í uppbyggingu. Hér var því
engin aðstaða komin; hvorki kirkja,
safnaðarheimili né prestsbústaður.
Því skírði hann og gifti sóknarbörn-
in heima hjá sér, en Ingibjörg Þórðar-
dóttir, eiginkona Árelíusar, var honum
mikil hjálparhella í kirkjustarfinu og
mæddi mikið á heimili þeirra sem árum
saman var miðstöð safnaðarins,“ segir
séra Jón Helgi.
Í kvöld mun María, dóttir Árelíusar,
segja frá heimilislífinu og mynd sinni
af þjónustu föður síns, ásamt fleirum
sem taka til máls og rifja upp persónu
og starf séra Árelíusar.
„Prestsstarfið var köllun séra
Árelíusar sem reyndar lauk kennara-
námi áður en hann lærði til prests.
Í hans huga var kennara- og prests-
starfið samtvinnað og alla tíð kenndi
hann meðfram prestsskap, bæði í for-
skóla smábarna heima hjá sér, Voga-
skóla og ýmsum framhaldsskólum.
Hans æðsta markmið var að fræða og
leiðbeina börnum að hinum góða vegi
og varna þeim að fara glapstigu, því
áfengi var eitur í augum séra Árelíus-
ar,“ segir séra Jón Helgi og bætir við
að séra Árelíus hafi verið stakur
bindindismaður.
„Hann vann mikið með bindindis-
hreyfingunni og í ungmennafélags-
anda, en ásamt Helga Þorlákssyni,
skólastjóra og fyrsta formanni sókn-
arnefndar, ákvað hann að byrja á
byggingu safnaðarheimilis í stað
kirkjunnar sjálfrar, þar sem þeim
þótti mikilvægara að byggja upp
félagsaðstöðu fyrir unga fólkið,“
segir séra Jón Helgi.
Þess má geta að safnaðarheimilin
tvö voru vígð 1959 og 1962, en kirkjan
sjálf 1984.
„Séra Árelíus hafði stórar hugsjón-
ir fyrir börn og unglinga. Hann vildi
að allir krakkar lærðu að dansa því
það tæki úr þeim feimni og þá þyrfti
ekki áfengi í samskiptum kynjanna
á erfiðum unglingsárum. Þá eru
ógleymanlegar barnasamkomur
hans í Hálogalandsbragganum við
Sund þar sem mættu um 500 krakkar
í mikið líf og fjör,“ segir Jón Helgi
og víst að margir muna eftir séra
Árelíusi.
„Hann var óskaplega vinsæll og
margir sem leituðu til hans. Í bókum
frá 1954 sést að hann gifti 50 hjón,
skírði 200 börn og jarðsöng tugi
Reykvíkinga. Þar lét hann tilfinn-
ingarnar ráða og var þekktur fyrir
að gráta með sorgmæddum söfnuði
sínum úr prédikunarstól, rétt eins
og þegar hann tárfelldi við hrifnæm-
ar stundir,“ segir séra Jón Helgi og
minnist ræðuhalds séra Árelíusar
líka, sem var lítt fyrir að endurskoða
sitt ritaða orð.
„Frekar vildi hann leyfa textum
sínum að fljóta svo mesta andagiftin
væri enn í þeim. Þá var hann þekkt-
ur fyrir að flytja blaðalaust ávarp í
messulok um eitthvað sem honum
lá á hjarta og urðu úr áhrifaríkar
ræður,“ segir séra Jón Helgi, viss um
að enginn fari í föt séra Árelíusar.
„Hann var sín eigin persóna sem
enginn getur apað eftir og kom ávallt
til dyranna eins og hann var klæddur.
Séra Árelíus var einlægur, hrifnæmur
og tilfinningaríkur og í kvöld ætlum
við að koma saman í hans glaðværa
anda, því þannig persóna var hann.“
Allir eru velkomnir í kirkjuna.
Þar syngur Davíð Ólafsson sálma og
veraldleg lög eftir séra Árelíus og
opnuð verður sýning með munum og
myndum sem tengjast séra Árelíusi.
thordis@frettabladid.is
LANGHOLTSKIRKJA: MINNIST 100 ÁRA AFMÆLIS SÉRA ÁRELÍUSAR NÍELSSONAR
Tárfelldi í prédikunarstólnum
ALDARMINNING Hér standa þau saman, María B. Árelíusdóttir og Jón Helgi Þórarinsson sóknarprestur í Langholtskirkju, en á milli þeirra sést
málverk af séra Árelíusi Níelssyni, föður Maríu og sóknarpresti sem hefði orðið hundrað ára í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AFMÆLI
GUÐRÚN
HELGADÓTTIR
rithöfundur
og fyrrum
alþingismaður
er 75 ára.
ÞORBJÖRN
JENSSON
handbolta-
maður og
forstöðumað-
ur er 57 ára.
ELMA LÍSA
GUNNARS-
DÓTTIR
leikkona er
37 ára.
HEIÐAR ÖRN
KRISTJÁNS-
SON
tónlistarmað-
ur og leik-
skólakennari
er 36 ára.
BUDDY HOLLY, tónlistarmaður fæddist þennan dag árið 1936
„Dauðinn er af mörgum álitinn hið besta framaspor.“
Mósaíkmynd Gerðar Helgadóttur á húsi
Tollstöðvarinnar í Reykjavík var afhjúpað
þennan dag fyrir 37 árum.
Forsaga þessa glæsta listaverks var að
á húsi Tollstöðvarinnar stóð 250 fermetra
gluggalaus veggur sem þótti hafa slæm
áhrif á heildargötumyndina. Á þessum tíma
fór mikið orð af Gerði Helgadóttur, sem
unnið hafði að mósaíklistaverkum erlendis,
og var afráðið að biðja hana um mynd
sem speglaði lífið við höfnina í Reykjavík.
Gerður hreifst strax að hugmyndinni og var
samningur gerður við hana og Bræðurna
Oidtmann í Þýskalandi, sem listakonan
hafði lengi starfað með að uppsetningu
frægra listaverka víða um Evrópu.
Það tók Gerði og listiðnaðarmennina á
Oidtmann-verkstæðinu um tvö ár að vinna
verkið sem þótti einstaklega vel af hendi
leyst og hefur staðist óblíða íslenska veðr-
áttu í áratugi, án þess að láta á sjá. Allar
götur síðan hefur Gerður Helgadóttir hlotið
einróma lof fyrir frábært verk, sem prýða
mun Reykjavík um ókomin ár.
Heimild: tollstjori.is
ÞETTA GERÐIST: 7. SEPTEMBER 1973
Mósaíkmynd Gerðar afhjúpuð
Merkisatburðir
1813 Fyrst er vísað til Bandaríkjanna sem Sáms frænda eða
„Uncle Sam“ í Troy Post of New York.
1822 Brasilía lýsir yfir sjálfstæði frá Portúgal.
1874 Sigurður Guðmundsson málari deyr, 41 árs.
1992 Haraldur fimmti Noregskonungur og Sonja drottning
koma í þriggja daga opinbera hemsókn til Íslands.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sigurður Ringsted
Ingimundarson
lést á dvalarheimilinu Hornbrekku,
Ólafsfirði sunnudaginn 5. september.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju mánudaginn
13. september kl. 14.00.
Sólveig Sigurðardóttir Matthías Ásgeirsson
Bjarki Sigurðsson Elín Haraldsdóttir
Þráinn Sigurðsson Dröfn Gísladóttir
Lísbet Sigurðardóttir Leó Sveinsson
Rögnvaldur Sigurðsson Margrét Kjartansdóttir
Sigurður Sigurðsson Hólmfríður Dóra Kristjánsdóttir
Ríkharður Hólm Sigurðsson
Hjörtur Sigurðsson Eygló Birgisdóttir
Kristinn Gíslason Sigríður Vilhjálmsdóttir
Halla Gísladóttir Guðlaugur Eyjólfsson
Björk Gísladóttir Kristinn Traustason
Ástkær eiginkona mín,
Jóna Björg Pálsdóttir
hjúkrunarfræðingur
lést á líknardeild Bispebjerg Hospital í Kaupmanna höfn
þann 4. september s.l. Útförin verður auglýst síðar.
Birgir Elíasson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún L. Kristjánsdóttir,
Skála Seltjarnarnesi,
lést að Hrafnistu Reykjavík, föstudaginn 3. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Unnur V. Duck
Elísabet Stefánsdóttir Kristján Jóhannsson
Kristjana Stefánsdóttir Guðmundur Þorkelsson
Anna Stefánsdóttir Reynir Hólm Jónsson
barnabörn og langömmubörn.